Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.01.2011, Side 8

Bæjarins besta - 27.01.2011, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Vilj líf í Þau Wouter Van Hoeymissen og Janne Kristensen hrifust af Íslandi hvort í sínu lagi. Leiðir þeirra lágu saman í Reykjavík, en í dag eru þau búsett á Þingeyri, þar sem þau reka kaffihúsið Simbahöllina í húsinu sem geng- ið hefur undir sama nafni í ára- raðir. Frá því að Simbahöllin opnaði snemmsumars 2009 hafa fjöl- margir lagt leið sína þangað til að dást að húsakynnunum eða gæða sér á kaffibolla og belgísku vöfflunum sem eru aðalsmerki kaffihússins. Janne Kristensen hefur staðið vaktina á bak við afgreiðsluborðið, og hún sagði blaðamanni frá aðdraganda þess að hún og Wouter, sem er Belgi, réðust í kaffihúsarekstur á Vest- fjörðum. Ætlaði ekki aftur í smábæ Janne og Wouter kynntust í Reykjavík fyrir nokkrum árum síðan. „Ég var þá skiptinemi í háskólanum,“ segir Janne, sem er dönsk. „Ég var að læra bók- menntafræði í Danmörku, en kom til landsins sem skiptinemi til að læra íslensku og fræðast um íslenska menningu,“ útskýrir hún. Janne hafði þá heimsótt landið margsinnis áður. „Ég kom fyrst til Íslands fyrir svona tíu árum síðan og var þá að vinna í gróð- urhúsi á Suðurlandi. Ég kom svo oft aftur, fór á Airwaves og var mikið í Reykjavík. Ég var að vinna fyrir plötbúðina 12 tóna, sem var líka með verslun í Kaup- mannahöfn,“ útskýrir Janne, sem segist þó ekki hafa séð fyrir að hún ætti eftir að setjast að á Þing- eyri. „Ég hafði alltaf áhuga á Íslandi, en ég hafði aldrei hugsað mér að flytja hingað, og alls ekki út á land!“ segir hún og hlær við. Smábæjarlífið er henni þó ekki ókunnugt, þar sem hún er fædd og uppalin í litlum bæ á Jótlandi. „Ég fluttist hins vegar þaðan og til Kaupmannahafnar, þar sem ég bjó í nokkur ár, og hafði ekki hugsað mér að snúa aftur í smá- bæ,“ segir hún og brosir. Hrifust af húsinu Þegar þau Janne og Wouter kynntust, hafði hann þegar dval- ist á Þingeyri um skeið, þar sem hann vann meðal annars við byggingu á víkingasvæðinu. „Hann snéri reglulega aftur til Þingeyrar og sá að þetta hús var til sölu. Þegar við kynntumst var hann farinn að hugsa alvarlega um að kaupa húsið og gerði það svo svona hálfu ári síðar. Þá vor- um við samt ekkert farin að hugsa um að flytja hingað eða opna kaffihús,“ útskýrir Janne. Hún segir þá hugmynd hafa fæðst smátt og smátt, eftir því sem þau hrifust meira af húsinu. „Smám saman fór okkur að langa að gera eitthvað meira úr húsinu. Við urðum alltaf ástfangnari af því,“ segir hún og brosir. „Fólk kom líka mikið til okkar og sagði okkur sögur af búðinni. Við fór- um þess vegna að hugsa um hvað það væri gaman að geta gert eitt- hvað fyrir Þingeyri, og íbúana, með því að hafa aftur líf í húsinu,“ segir hún frá. Simbahöllin dregur nafn sitt af versluninni sem kaupmaðurinn Sigmundur Jónsson starfrækti í yfir sextíu ár. Húsið var þá þekkt sem Sigmundarbúð eða Simba- höllin, enda var kaupmaðurinn kallaður Simbi af vinum og kunningjum. Húsið lét Sigmund- ur flytja inn frá Noregi, en það er svokallað katalóghús. Hann greiddi þá tíu þúsund krónur fyrir bygginguna. Hún hafði hins vegar verið í mikilli niðurníðslu í fjölda ára, áður en Wouter og Janne tóku til hendinni. Hafði reynslu af leikmyndasmíði „Wouter er í rauninni sjálf- lærður. Hann hefur unnið mikið með tré, en hann er ekki lærður smiður,“ útskýrir Janne. „Hann hafði hins vegar unnið mikið í kvikmyndum og smíðað leik- myndir og svið. Þá var hann hins vegar alltaf að byggja eitthvað sem var svo rifið og hent þegar verkefninu lauk. Hús eru öðru- vísi, þau geta staðið í hundrað ár,“ segir Janne, sem segir verk- efnið þess vegna hafa höfðað til Wouters. Vinnan tók nokkur ár, enda framkvæmdi hann stærstan hluta hennar sjálfur. „Hann gerði þetta smátt og smátt, byrjaði úti og gerði meira að segja gluggana sjálfur upp í gömlum stíl, því það var allt of dýrt að kaupa þá tilbúna. Ég var þá í skóla í Dan- mörku á veturna, en kom hingað yfir sumarið. Wouter var hins vegar meira og minna hér á Þing- eyri á þeim tíma,“ segir Janne. Hálfgert ævintýri

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.