Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.01.2011, Side 6

Bæjarins besta - 27.01.2011, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564. Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is. Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is. · Kristján Torfi Einarsson, sími 456 4560, kte@bb.is · Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson. Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. ISSN 1670 - 021X Spurningin Finnst þér ríki og sveitarfélag hafa brugðist Flateyringum? Alls svöruðu 481. Já sögðu 289 eða 60% Nei sögðu 192 eða 40% Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Helgarveðrið Horfur á föstudag: Vestan og suðvestan 8- 13 m/s og éljagangur, en bjartviðri Austanlands. Frostlaust út við sjóinn en vægt frost inn til landsins. Horfur á laugardag: Sunnan- og suðvestan- átt. Rigning sunnan- og vestanlands en annars úrkomulítið. Hiti 1-8 stig. Horfur á sunnudag: Sunnan- og suðvestan- átt. Rigning sunnan- og vestanlands en annars úrkomulítið. Hiti 1-8 stig. Ritstjórnargrein Ekki eina nefndina enn!!! Við þær aðstæður sem nú eina ferðina enn eru uppi á Flateyri rifj- ast upp ræða er Einar heitinn Oddur Kristjánsson, hélt á Alþingi 8. október 2001, er rætt var um kvótasetningu smábáta og hann við- hafði þau orð að ef ekki yrði horfið frá þeim áformum væri verið ,,að deyða þennan útgerðarflokk og þar með stóran hluta landsbyggðar- innar og mjög mörg sjávarþorp.“ Einu sinni trúðu allir, sjómenn þar engin undantekning, að sjórinn gleypti allt. Þess vegna var hann ein stór ruslakista. Nú vita menn betur. Einu sinni trúðu menn, sjómenn þar engin undanteking, að sjávarfangið væri óþrjótandi. Aflamagnið upp úr sjó var keppikeflið hverju sinni, sama hvaða aðferðum og tilkostnaði var beitt. Veiðieðlið hefur alla tíð verið samt við sig. Það flögrar að þegar ráðamenn hafa sest niður til að ígrunda lausnir á vandanum sem blasir við íbúum Flateyrar, þá væri þeim stoð í að glugga í ræðu EOK. Velkist einhver þeirra í vafa um hverj- ar grunnstoðir sjávarþorpa eins og Flateyrar hafa verið í gegnum aldir, tekur lestur ræðu EOK af allan vafa. Svo augljóst sem það ætti öllum að vera hafa Flateyringar frá öndverðu byggt afkomu sína á sjávarfanginu, sem segja má að bíði þeirra við bæjardyrnar. Þar liggur þeirra réttur, sem illu heilli var tekinn frá þeim, lík og íbúum fjölda annara sjávarþorpa, réttur fólks sem hefur ekki í önnur hús að venda. Frá því var greint á bb.is. í byrjun árs að fjórir bolvískir smábátar fiskuðu meira samanlagt en stærsti frystitogari Vestfirðinga, sem hafði þó slegið fyrri aflamet. Vera má að fréttin opni augu manna fyrir því að sjósókn á smábátum er önnur í dag en var á meðan sest var undir árar. Vandinn er bráður. Flateyringar geta ekki beðið eftir niðurstöðu í endalausu rifrildi um fiskveiðistjórnun, eða að fiskum fjölgi í tölvuforritum Fiskistofu. Lausn mála á Flateyri varðar velferð fólks, framtíð þess. Þess vegna verður að bregðast við tafarlaust. Ekki eina nefndina enn!!! Landsstólpi Útgerðarfélög og fiskvinnslufyrirtæki hafa orðið til og horfið í gegnum tíðina hér vestra líkt og annars staðar. Eitt þeirra hefur þó til þessa staðið af sér alla storma, Hraðfrystihúsið hf. í Hnífsdal, sem sautján manns stofnuðu 19. janúar 1941 og fólu Páli Pálssyni, Elíasi Ingimarssyni og Hirti Guðmundssyni, að varða veginn; forveri Hraðfrystihússins Gunnvarar, þess öfluga og kraftmikla útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækis, sem horft er til í dag með miklum vænting- um. Fátt er samfélagi jafn mikilvægt og traust og öflug fyrirtæki. Bæjarins besta sendir afmælisbarninu, eigendum og starfsfólki, kveðjur og árnaðaróskir. s.h. Stækkun háð umhverfismati Umhverfisráðuneytið hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofn- unar um að aukning þorskeldis í Skutulsfirði verði að fara í um- hverfismat. Ráðuneytinu barst í febrúar í fyrra stjórnsýslukæra frá Álfsfelli ehf. vegna ákvörð- unar Skipulagsstofnunar um að eldi á allt að 900 tonnum á ári af þorski í Skutulsfirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum sam- kvæmt lögum um mat á umhverf- isáhrifum. Samkvæmt gögnum málsins er fyrirhugað að kvíar fyrir eldisfisk verði átta talsins í vestanverðum firðinum, um 800 metra frá landi, ummál þeirra verði allt að 60 metrar, dýpt net- poka allt að 12 metrar og dýpi undir kvíum að meðaltali 22 metrar. Þá verði innsta kvíin rétt rúman kílómetra frá Eyrinni og jafnlangt frá næstu skólplögn. Einnig kemur fram að milli Arn- arness og Eyrar sé botndýpi mest um 30 metrar, en um 17 metrar við mynni Skutulsfjarðar. Í niðurstöðu ráðuneytisins seg- ir að er það mat ráðuneytisins að gögn málsins bendi til þess að núverandi eldisstarfsemi kær- anda í Skutulsfirði hafi nú þegar haft neikvæð áhrif á botndýralíf og að fyrirhuguð framkvæmd kunni þar af leiðandi að hafa frekari neikvæð umhverfisáhrif. Þá telur ráðuneytið að gögn um mikilvæga þætti séu ekki full- nægjandi til að unnt sé að meta hugsanleg umhverfisáhrif, þ.e. um lífríki svæðisins og um áhrif uppsöfnunar næringarefna á sjáv- arbotni á annað dýralíf og hvaða keðjuverkun breyting á botndýra- lífi gæti haft í för með sér fyrir vistkerfi svæðisins. Telur ráðu- neytið ljóst að upplýsingar um lífríki svæðisins séu grunnupp- lýsingar sem þurfi að vera til staðar til að unnt sé að meta áhrif uppsöfnunar næringarefna á dýralíf og að fara þurfi fram könnun á mögulegum áhrifum hinnar fyrirhuguðu framkvæmd- ar á botndýralíf og vistkerfi svæð- isins til að unnt sé að sýna fram á raunveruleg umhverfisáhrif fram- kvæmdarinnar. Þá liggja ekki fyrir af hálfu framkvæmdaraðila áætlanir um vöktun og hvíld svæða, sem væru til þess fallnar að draga úr mögu- legum neikvæðum áhrifum á botndýralíf. Í því sambandi tekur ráðuneytið undir það mat Skipu- lagsstofnunar og Hafrannsókna- stofnunar að takmarkaðir mögu- leikar séu á því að færa til sjókvíar og þar með að ráðast í mótvæg- isaðgerðir sem myndu draga úr álagi á botndýralíf vegna upp- söfnunar næringarefna. Telur ráðuneytið þær takmarkanir leiða til þess að meiri líkur eru á nei- kvæðum umhverfisáhrifum. Umhverfisráðuneytið hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um að aukning þorskeldis í Skutulsfirði verði að fara í umhverfismat.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.