Bæjarins besta - 27.01.2011, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
Krossgáta og Vestfirðinga.
Höfundur: Hafliði Magnússon frá Bíldudal.
Lausn á síðustu krossgátu
Rafskaut ehf., hefur ráðið
Grétar Örn Eiríksson sem
verkefna- og framkvæmda-
stjóra fyrir Fánasmiðjuna
sem hefur starfsemi á Ísafirði
í mars. Grétar Örn lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólan-
um á Ísafirði og fór svo á
námskeið í grafískri hönnun
í Myndlistaskóla Reykjavík-
ur en lauk síðar námi í graf-
ískri miðlun/prentsmíð við
Iðnskólann í Reykjavík.
Hann hefur störf um næstu
mánaðarmót og byrjar á því
að fara austur á Þórshöfn og
kynna sér reksturinn næsta
mánuðinn og í kjölfarið flytja
verksmiðjuna vestur. Hann
er einnig að fara yfir starfs-
umsóknir fyrir önnur störf í
verksmiðjunni og mun sú
ákvörðun liggja fljótlega fyr-
ir að því er fram kemur í
tilkynningu.
Grétar Örn til
Fánasmiðjunnar
Bænabókin Einn dagur í einu
sem Ísfirðingurinn Stefán Dan
Óskarsson gaf út fyrir jólin fékk
afar góðar viðtökur. „Viðtökurn-
ar voru framar vonum og bókin
er nánast uppseld. Hún fer því í
endurprentun nú um mánaðar-
mótin,“ segir Stefán en um er að
ræða hans fyrstu bók. Hann segist
hafa fengið veður af því að bókin
nýttist vel í baráttunni gegn dep-
urð og þunglyndi. Bókin er
byggð þannig upp að í henni eru
að finna bænir út vikuna sem
hægt er að byrja upp á nýtt er
vikunni er lokið. Í henni er vitnað
í ýmis þaulreynd og góð fræði
svo sem AA bókina og 24 stunda
bókina. Stefán hyggur nú á útgáfu
annarrar bókar sem er vinnubók.
Svo er von á framhaldi bænabók-
arinnar áður en langt um líður.
Stefán er ráðgjafi hjá Ráðgjafa-
og nuddsetrinu á Ísafirði sem
býður upp á áfengis- og vímu-
efnaráðgjöf fyrir einstaklinga og
fjölskyldur. Einnig er boðið upp
á eftirmeðferð fyrir einstaklinga
og hópa. Þetta er í fyrsta sinn á
Vestfjörðum sem slík þjónusta
er í boði. Stefán hefur verið trún-
aðarmaður fyrir S.Á.Á. í 30 ár
og lokið prófi í Ráðgjafaskóla
Íslands. Hann hefur því hlotið al-
þjóðaskírteini frá ICRC/AODA
(International Certification and
Reciprocity Consortium / Alco-
hol and Other Drug Abuse).
– thelma@bb.is
Frumraunin seldist upp