Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.06.2011, Qupperneq 14

Bæjarins besta - 23.06.2011, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011 Krossgáta og Vestfirðinga. Höfundur: Hafliði Magnússon frá Bíldudal. Lausn á síðustu krossgátu „Við erum að spá í hvert við getum farið á henni,“ segir ungur skútueigandi á Ísafirði. Þrír fjór- tán ára strákar og einn fimmtán ára hafa keypt sér skútu í félagi og eru að lagfæra hana fyrir sum- arið. Markmiðið er að geta siglt inn í Seyðisfjörð og tekið þátt í siglingaævintýri sem þar er um verslunarmannahelgina. Strák- arnir hafa allir tekið mikinn þátt í starfi siglingaklúbbsins Sæfara og sótt námskeið á vegum hans og sumir þeirra eru aldir upp við sportið. „Pabbi eignaðist fyrstu skút- una sem kom til Ísafjarðar og ég var þriggja mánaða þegar ég fór í fyrsta túrinn minn,“ segir Albert Jónsson. Kolmar Halldórsson tekur við keflinu og segir að pabbi sinn hafi smitast af áhugan- um og hann hafi alist upp við þetta. „Við vorum að spá í hvað skút- an Tópas kostaði. Pabbi Kolmars sagði að Tópas kostaði örugglega krónu en hann væri ekki til sölu,“ segir Hákon um tildrög þess að þeir fóru að hugsa um skútukaup. Halldór Sveinbjörnsson, faðir Kolmars, benti þeim á skútu sem væri til sölu og þeir ákváðu að nota fermingarpeningana og aðra fjármuni sem þeir áttu í banka til að festa kaup á skútunni sem þeir nefna nú Lipurtá. Foreldrarnir tóku vel í málið og hafa stutt þá dyggilega. „Mín- um foreldrum fannst þetta besta hugmyndin sem ég gæti fengið, “ segir einn. „Frænka mín sagði að ég ætti að safna mér fyrir bíl, nota fermingarpeningana í það,“ segir annar. Frá þessu er greint á mbl.is. Keyptu skútu fyrir fermingarpeningana Ungir skútueigendur: Hákon Jónsson, Albert Jónsson, Kolmar Halldórsson og Guðmundur Sigurvin Bjarnason. Ljósm: Mbl.is / Helgi Bjarnason.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.