Bæjarins besta - 10.01.2013, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Auglýsingasími Bæjarins besta og bb.is er 456 4560
Kristinn til liðs við Dögun
Kristinn H. Gunnarsson,
fyrrum alþingismaður gekk í
stjórnmálasamtökin Dögun
um áramótinu. Hann segir
málefnaundirbúning kominn
töluvert langt á leið og líst vel
á það sem komið er. Þá er
hann að tala um sjávarútvegs-
málin, byggðamálin og breyt-
ingar á stjórnskipan landsins.
Efnahagsmálin eru enn í
vinnslu. „Það er ófrágengið
að ljúka efnahagsmálunum og
ég ákvað að ganga þarna inn
á þessum tímapunkti til að
koma að því að móta það því
framboð sem ætlar að ná ár-
angri verður að hafa raunhæfa
áætlun í efnahagsmálum,“
segir Kristinn.
Kristinn segist ekki vera
búinn að gera það upp við sig
hvort hann ætli að bjóða sig
fram fyrir Dögun í næstu
kosningum. „Það kemur í ljós
hvað verður í þeim efnum.
Það fer auðvitað eftir því
hvernig til tekst með stefnu-
málin. Ég er samt nokkuð
bjartsýnn og líst nokkuð vel á
það sem komið er en ég bíð
eftir endanlegri útkomu í
stefnumálum,“ segir Kristinn
um hvort hann stefni á framboð
fyrir stjórnmálasamtökin. Ef af
verður, mun hann bjóða sig
fram í 1. sæti í Norðvestur-
kjördæmi. Ef Kristinn býður
sig fram verður þetta í sjöunda
sinn sem hann verður í fram-
boði. Hann hefur áður boðið sig
fram fyrir Alþýðubandalagið,
Framsóknarflokkinn og Frjáls-
lynda flokkinn. „Þetta yrði
fjórði flokkurinn. Stundum er
það þannig með þessa flokka
að þeir eiga það til að skipta
um eðli og áherslur. Sami
flokkurinn getur verið búinn að
ganga í gegnum sjálfan sig
tvisvar til þrisvar eins og
Framsókn og Sjálfstæðisflokk-
urinn hafa gert. Síðan er maður
sjálfur alltaf með sömu
áherslumálin,“ segir Kristinn.
Ástæðan fyrir því að Kristinn
er kominn til Dögunar nú er sú
sama og fékk hann til að ganga
til liðs við Framsóknarflokkinn
árið 1998, þ.e. stefnumálin.
„Dögun er eina stjórnmálaaflið
sem hefur sett fram hugmyndir
um þessi mál sem mér líst á.
Dögun hefur alla burði til að
láta að sér kveða sem stjórn-
málaafl. Þetta snýst um stefnu-
málin og ef efnahagsmálin
gang vel mun þetta virka. Það
er vandfundið stjórnmálaafl
sem vill taka á stórum málum
eins og sjávarútvegsmálum og
bera ábyrgð á atvinnu-,
byggða- og efnahagsmálum.
Byggðamálin eru hornreka í
stjórnmálum í dag,“ segir
Kristinn og sem fyrr eru hans
helstu áherslur á byggðamálin
og atvinnumálin þar sem sjáv-
arútvegsmálin vega lang þyngst
að hans sögn og þá sérstaklega
sjávarútvegslöggjöfin.
„Við höfum lengi búið við
vont kerfi sem hefur dregið
þróttinn úr áður blómlegum
að staðirnir næst miðunum
hagnast á því og blómstri.
Það myndu Vestfirðir gera ef
löggjöfin væri þannig,“ segir
Kristinn og er ekki hrifinn af
sjávarútvegsstefnu stjórnar-
innar í dag þar sem hún ætlar
ekki að breyta kvótaúthlut-
uninni heldur festa hana í
sessi sem yrði dauðadómur
fyrir mörg sjávarpláss. Þó
finnst honum eðlilegt að
innheimta gjald fyrir veið-
arnar og útgerðamenn hafi
ákveðið veiðigjald fyrir
mörgum árum. „Aðferðirnar
í að reikna út veiðigjaldið eru
samt mjög umdeilanlegar og
umdeildar. Átökin í þessu
máli eru hörð því þetta eru
svo miklir peningar. Venju-
legir borgarar geta auðgast
mjög mikið ef þeir hafa
öðlast kvóta á réttum tíma og
geta þá selt hann og sest í
helgan stein,“ segir Kristinn
H. Gunnarsson.
– hordur@bb.is
byggðum sem geta orðið það
aftur ef löggjöfin verður
eðlileg. Ég vill sjá það gerast.
Það þarf að laga þetta þannig
Kristinn H. Gunnarsson.
Forréttindi að búa í Ísafjarðarbæ
„Reksturinn gekk mjög vel og
var í raun alger viðsnúningur frá
fyrri árum. Framlegðin er um
250 milljónum króna betri en á
árinu 2011. Það hefur gert það að
verkum að við gátum lækkað
gjaldskrár og gefið aðeins í við
gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið
2013,“ segir Daníel Jakobsson
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, að-
spurður um rekstur sveitarfélags-
ins á nýliðnu ári. Aðspurður um
hvað standi upp úr á árinu sam-
félagslega segir Daníel það vera
mannlífið í bænum.
„Við megum hinsvegar skoða
það að vera ekki eins dómhörð
og neikvæð. Það eru forréttindi
að búa í Ísafjarðarbæ og tæki-
færin eru endalaus. Það þarf bara
að nýta þau og takast á við við-
fangsefni af opnum huga,“ segir
Daníel, sem er einnig ánægður
með góðan starfsanda hjá Ísa-
fjarðarbæ. „Stjórnunarlega séð
finnst mér jákvæðast hvað starfs-
fólk bæjarins hefur verið jákvætt
og er tilbúið að takast á við það
að bæta reksturinn,“ segir Daníel,
en margir stjórnendur hjá sveitar-
félaginu hafa orðið að taka á sig
launalækkun. „Hjá Ísafjarðarbæ
er margt mjög hæft starfsfólk.“
Stærstu framkvæmdir sveitar-
félagsins á árinu voru við hjúkr-
unarheimilið, við gerð snjóflóða-
varnargarða og á höfninni. Daníel
segir það mjög jákvætt að náðst
hafi samkomulag við Olíudreif-
ingu um flutning olíubirgðastöð-
var, en við næstu áramót er mögu-
leiki á því að allir olíutankar verði
farnir úr miðbænum og losni þá
spennandi lóðir fyrir uppbygg-
ingu. „En ég verð líka að segja
að það hefur valdið mér von-
brigðum hversu erfið samskiptin
hafa verið við velferðarráðuneyt-
ið við hönnun hjúkrunarheimilis-
ins. Þar hefur allt verið stopp frá
því í júní en vonandi tefjast fram-
kvæmdir þar ekki frekar,“ segir
Daníel.
Markmið sveitarfélagsins fyrir
næstu ár segir Daníel felast fyrst
og fremst í góðum rekstri. „Það
er náttúrulega bæjarstjórn sem
setur stefnuna og mitt að fylgja
henni eftir. En í mínum huga er
mikilvægast fyrir bæjarbúa að
Ísafjarðarbær sé vel rekinn. Ég
skil vel að mörgum finnist leið-
inlegt að ræða niðurskurð en í
mínum huga er ekki hægt að
sækja fram ef reksturinn er ekki
í lagi. Þá verður þetta endalaus
vörn.“
Mikið verður um framkvæmd-
ir í Ísafjarðarbæ á næstu árum,
og áfram verða framkvæmdir við
hjúkrunarheimili, ofanflóðavarn-
ir, flutning olíubirgðastöðva og
fleiri stór verkefni. „Viðhaldsfé
bæjarins er mun meira en árið á
undan þannig að margar götur
verða malbikaðar og útlit bæjar-
ins vonandi bætt enn frekar. Einn-
ig má nefna að framundan eru
stór verkefni hjá einkaaðlilum
s.s. bygging nýrrar aðveitustöðv-
ar og varaaflstöðvar hjá Orkubú-
inu,“ segir Daníel.Daníel Jakobsson.