Bæjarins besta - 24.01.2013, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013
„Rafmagnið er okkur mjög
mikilvægt, það kostar okkur
stórar fjárhæðir þótt rafmagnið
slái ekki út nema í 10 mínútur.
Rafmagnsleysi veldur einnig
skemmdum á vélum. Við erum
með mikið af sjálfvirkum, tölvu-
stýrðum vélum sem hafa orðið
fyrir skemmdum vegna flökts á
rafmagni og einnig þegar raf-
magnið dettur út,“ segir Jóhann
Jónasson, framkvæmdastjóri 3X
Technology á Ísafirði, en fyrir-
tækið er einn af stærstu raforku-
notendum Vestfjarða og er al-
gjörlega rafmagnsháð fyrirtæki.
3X Technology sérhæfir sig í vél-
um til matvælaframleiðslu víða
um heim.
Þegar rafmagn fer af getur tek-
ið allt að þrjár til fjórar klukku-
stundir að koma framleiðslunni
aftur í gang. 3X Technology veltir
um 90 milljónum króna á mánuði
eða 3.750 þúsund krónum á dag,
miðað við 24 vinnudaga í hverj-
um mánuði. Ef hátt í hálfur vinnu-
dagur fer í að endurræsa vélar og
koma vinnslunni í gang á ný eftir
að rafmagn fer af, kostar það
fyrirtækið stórar fjárhæðir. Kostn-
aðurinn getur orðið enn meiri og
tafirnar lengri ef tæki skemmast.
Margir starfsmenn fyrirtækisins
eru háðir tölvum við vinnu sína
og ef rafmagn fer af, er ekkert
annað hægt að gera en að loka
framleiðslunni og senda alla
starfsmennina heim.
„Við búum á mjög erfiðu svæði
veðurfarslega og ef við viljum
hafa svona fyrirtæki sem eru háð
raforku á svæðinu, verður að búa
þannig um hnútana að öryggi raf-
magns sé tryggt. Grípa þarf til
aðgerða sem tryggja afhendingu
á rafmagni eða hreinlega gefa
það út að ekki sé gert ráð fyrir að
þannig fyrirtæki séu starfrækt
hér. Ég er samt bjartsýnn á að
menn bretti upp ermar og geri
eitthvað í málunum,“ segir Jó-
hann og tekur fram að fyrirtækið
lendi í vandræðum með að skila
vörum á réttum tíma þegar vegir
lokast vegna ófærðar.
Fyrirtækið hefur gert ráðstaf-
anir til að takast á við rafmagns-
leysi og fer eftir verkferlum sem
eru vottaðir af vinnuverndaryfir-
völdum til að lágmarka hættu
sem getur skapast við þær að-
stæður. Neyðarlýsing hefur verið
sett upp í fyrirtækinu til að tryggja
öryggi starfsmanna en hætta get-
ur skapast þegar menn sjá ekki
handa sinna skil. Menn geta rekist
á hættulega málma og fleira sem
óhjákvæmilega er á gólfum í
framleiðslurými fyrirtækisins.
Jóhann vill ekki gagnrýna neinn
og segir að fyrirtækið hafi sloppið
ótrúlega vel í rafmagnsleysinu
um áramótin. Það hafi ekki verið
mikil framleiðsla í gangi yfir há-
tíðarnar. Mikilvægast fyrir alla
aðila er að standa saman og finna
sameiginlega lausn á málinu. Það
er vitað að válynd veður koma
og þá skiptir varaaflið gríðarlegu
máli. Það stóð ekki undir nafni
um áramótin að sögn Jóhanns sem
hvetur alla aðila til að skoða sína
verkferla og skipulag til að tryggja
að rafmagn sé alltaf til staðar.
Rafmagnsleysi veldur tjóni hjá 3X
Hin 16 ára gamla Eva Margrét
Kristjánsdóttir var á sunnudag
útnefnd Íþróttamaður Ísafjarðar-
bæjar árið 2012 við hátíðlega at-
höfn í Stjórnsýsluhúsinu á Ísa-
firði. Eva Margrét spilar körfu-
bolta með KFÍ, en hún hefur síð-
astliðin tvö ár verið lykilmaður í
meistaraflokki liðsins, þrátt fyrir
ungan aldur. Á síðasta ári lék
hún einnig fimm leiki með U-16
ára landsliði Íslands og mun taka
þátt í verkefnum landsliðsins í
sumar. „Eva Margrét er afreks-
íþróttamaður sem leggur mikinn
metnað í æfingar og keppni, sem
hefur nú þegar skilað henni í
fremstu röð í kvennakörfunni á
Íslandi,“ sagði Margrét Halldórs-
dóttir sviðsstjóra skóla- og tóm-
stundasviðs Ísafjarðarbæjar við
afhendingu viðurkenningarinnar.
Athöfnin hófst á ávarpi Margrétar
Halldórsdóttur og annáli Krist-
jáns Óskars Ásvaldssonar for-
manns íþrótta- og tómstunda-
nefndar Ísafjarðarbæjar. Í ræðu
sinni fór Kristján yfir árangur
íþróttafélaga og einstaklinga í
íþróttum á síðasta ári. „Er það
aðdáunarvert og umhugsunar-
efni, að í ekki stærri bæjarfélagi,
þar sem íþróttamenn þurfa að oft
að sækja keppnir um langan veg,
skulum við státa af frambærilegu
íþróttafólki á öllum helstu íþrótta-
mótum Íslands,“ sagði Kristján.
Gísli Halldór Halldórsson for-
seti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
tilkynnti loks um valið á íþrótta-
manni Ísafjarðarbæjar 2012, og
veitti Evu viðurkenninguna. Í að-
faraorðum sínum sagði Gísli það
sérstaklega ánægjulegt að kona
yrði fyrir valinu, enda hafi mikið
verið ritað og rætt um brottfall
kvenna úr íþróttum.
Auk Evu fengu sjö aðrir íþrótta-
menn úr Ísafjarðarbæ viðurkenn-
ingar sem íþróttamenn ársins í
sinni íþrótt, og voru þeir að sama
skapi tilnefndir til íþróttamanns
Ísafjarðarbæjar. Anton Helgi
Guðjónsson úr Golfklúbbi Ísa-
fjarðar var valinn kylfingur árs-
ins, en Anton var eini kylfingur-
inn úr GÍ sem tók þátt í Íslands-
mótinu í höggleik. Birkir Örn
Stefánsson var valinn glímu-
maður ársins, en hann var Ís-
lands- og bikarmeistari í sínum
aldursflokki árið 2011. Hann var
útnefndur efnilegasti glímumað-
ur á Íslandi árið 2012 af Glímu-
sambandi Íslands.
Guðný Birna Sigurðardóttir úr
Sundfélaginu Vestra hlaut út-
nefninguna sundkona ársins, en
hún keppti m.a. á unglingamóti
Fjölnis í desember og hafnaði í
efstu fimm sætunum í öllum sín-
um sundum. Á mótinu var efni-
legasta sundfólk landsins saman
komið. Ívar Már Valsson úr
Skotíþróttafélagi Ísafjarðarbæjar
var valinn íþróttamaður ársins
hjá félaginu, en hann keppti fyrir
SÍ á Íslandsmeistaramótinu í
enskum riffli á vordögum og varð
Íslandsmeistari í sínum flokki.
Katrín Þorsteinsdóttir er íþrótta-
maður ársins hjá Íþróttafélaginu
Ívari, en hún hefur æft og keppt í
sundi hjá félaginu frá 8 ára aldri.
Hún keppti í innanfélagsmótum
og á Íslandsmeistaramótum fatl-
aðra bæði í mars og nóvember á
þessu ári og stóð hún á verðlauna-
palli í öll skiptin. Sigurgeir
Sveinn Gíslason var valinn knatt-
spyrnumaður ársins, en hann
leikur knattspyrnu með 1. deild-
arliði BÍ/Bolungarvíkur. Sigur-
geir spilaði 21 leik með liðinu í
1. deildinni síðastliðið sumar, og
alla leiki liðsins í bikarkeppni
KSÍ. Loks var Thelma Rut Jó-
hannsdóttir valin skíðakona árs-
ins, en hún keppir fyrir hönd
Skíðafélags Ísfirðinga. Hún vann
þrisvar til gullverðlauna á síðasta
ári og er í unglingalandsliðis
Skíðasambands Íslands. Thelma
var útnefnd Íþróttamaður Ísa-
fjarðarbæjar árið 2011.
Eva Margrét kjörinn íþrótta-
maður Ísafjarðarbæjar 2012
Eva Margrét ásamt Gísla Halldóri Halldórssyni forseta bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar.