Bæjarins besta - 24.01.2013, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013
Eldgos sameinar þjóðina
Stakkur hefur ritað viku-
lega pistla í Bæjarins
besta í mörg ár. Skoð-
anir hans á mönnum
og málefnum hafa oft
verið umdeildar og vak-
ið umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara saman
við skoðanir útgefenda
blaðsins. Þrátt fyrir það
bera ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á skrif-
um Stakks á meðan
hann notar dulnefni sitt.
Stakkur skrifar
Auglýsingasími Bæjarins besta og bb.is er 456 4560
smáar
Til leigu er 3ja herb. íbúð á 3ju
hæð í Stórholti. Upplýsingar í
síma 892 5054.
Til sölu er eldhúsinnrétting með
uppvöskunarvél og tvöföldum
vaski á kr. 60.000. Einnig skrif-
borð með efri hillu og skáp á kr.
40.000. Uppl. í síma 866 4642.
LeiklistarforkólfurVestfjarða
„Það er gott að vinna og skapa
fyrir vestan og ég hef langan sól-
arhring. Listin er erfið og það er
alveg eðlilegt að fólk spyrji sig
þegar sett er upp leikrit, hvort
ekki sé nóg að fá inn miðasöluna.
En það kostar mikið til að þetta
virki vel. Mörg fyrirtæki eru
einnig dugleg að styrkja,“ segir
Elfar Logi Hannesson, atvinnu-
leikari og forkólfur í listalífinu á
Vestfjörðum. Félög sem hann
hefur stofnað eða er í forsvari
fyrir, fengu sex verkefnastyrki
frá Menningaráði Vestfjarða á
síðasta ári að fjárhæð 4,5 millj-
ónir króna. Elfar Logi er að von-
um ánægður með styrkina og
þakklátur.
Hæsti styrkurinn, ein milljón
króna, rann til leiklistarhátíðar-
innar Act Alone, árlegrar ein-
leikahátíðar sem haldin er á Suð-
ureyri. Hátíðin var fyrst haldin á
Ísafirði árið 2004 en var færð
yfir á Suðureyri árið 2011 og
verður þar áfram að sögn Elfars
Loga. Hann er stofnandi hátíðar-
innar þar sem fram koma ýmsir
leikarar víðs vegar að og flytja
rjómann af þeim einleikjum sem
verkefnið „List á Vestfjörðum
2012“ en þar á Elfar Logi sæti í
stjórn. Félagið gefur út tímarit
sem kynnir vestfirska listamenn
og er sent inn á hvert heimili á
Vestfjörðum.
„Ég er bara eitt lítið peð þótt
manni detti ýmislegt í hug. Maður
gerir bara ekkert einn. Ég er bara
leikari,“ segir Elfar Logi sem
augljóslega er brautryðjandi fyrir
leiklist og fleiri greinar á Vest-
fjörðum. Ekki skortir hann hug-
myndir og virðist koma sumum
þeirra á fjalirnar. „Miðasalan
dugir ekki langt til að standa undir
kostnaði af sýningum, það vita
nú allir sem haldið hafa tóneika
eða leiksýningu. Stundum gengur
vel eða illa, maður veit aldrei
hvernig gengur. Ljós og perur,
leikmynd, húsaleiga á æfinga-
húsnæði, kaffi á æfingum og
annað týnist saman,“ segir Elfar
Logi. Menn setja sjálfan sig alltaf
síðast í röðina og enda oft á að
geta ekki haft af þessu há laun til
að framfleyta fjölskyldunni að
sögn Elfars en styrkirnir hljóta
að koma til góða fyrir listalífið
sem væri töluvert fátæklegra ef
ekki væri fyrir Menningarráð
Vestfjarða.
„Ég vil ekkert segja nema takk
fyrir mig og fyrir að hafa haft trú
á mér og mínum vitleysum og
hugmyndum. Þetta er æðislegt
og ég hefði aldrei getað þetta
nema út af þessu, eins og Act
Alone sem er risastórt dæmi sem
hleður utan á sig og er orðið eitt
flottasta menningarfyrirbærið á
landsbyggðinni,“ segir Elfar.
fluttir hafa verið í heiminum.
„Þetta hefur hlaðið upp á sig
og er stjórnlaust. Það eru mjög
margir einleikir sýndir frá fimm-
tudegi til sunnudags og er frítt
inn á þá alla. Það hafa verið haldn-
ar yfir 100 leiksýningar á hátíð-
inni,“ segir Elfar Logi. Hátíðin
ræður til sín atvinnufólk á öllum
sviðum og allt í kringum hátíðina
er mjög fagmannlegt að sögn Elf-
ars Loga.
Vestfirska skemmtifélagið
fékk 800 þúsund króna styrk frá
Menningarráði Vestfjarða til að
setja upp söngleikinn Hrafna
flóka. Um er að ræða frumsamið
verk eftir Elfar Loga þar sem tón-
listin er eftir Guðmund Hjaltason
tónlistarmann. Krakkar og ungl-
ingar eru fengnir til að leika í
sýningunni. Í dag standa yfir æf-
ingar með níu ungum leikurum
en mikil aðsókn var í áheyrnar-
prufurnar.
Kómedíuleikhúsið fékk einnig
800 þúsund króna styrk frá
Menningaráði til að setja upp
leikverkið „Sálin hans Muggs
míns“. „Þetta er eina atvinnu-
leikhúsið á Vestfjörðum og væri
ekki til ef ekki væri fyrir Menn-
ingarráð Vestfjarða,“ segir Elfar
Logi, sem samdi verkið og leikur
í einleiknum sem byggir á mynd-
skreytingum Muggs á íslenskum
þjóðsögum og ævintýrum. Kóme-
díuleikhúsið fékk einnig 500 þús-
und króna styrk til að setja upp
verkið „Listamaðurinn með
barnshjartað“. Það verk samdi
Elfar um listamanninn Samúel
Jónsson í Selárdal. Hann leikur
einnig í verkinu.
Vestfirska kvikmyndafyrir-
tækið Gláma fékk 800 þúsund
króna styrk en að því stendur
öflugur hópur hugsjóna- og lista-
fólks, Eyþór Jóvinsson, Baldur
Páll Hólmgeirsson, Ársæll Níels-
son, Marsibil Kristjánsdóttir og
Elvar Logi Hannesson. Þau fram-
leiða sögulegar vestfirskar stutt-
myndir sem eru teknar upp á
sögulegum vestfirskum stöðum.
Félag vestfirskra listamanna fékk
600 þúsund króna styrk fyrir
Elfar Logi Hannesson.
Hinn 23. janúar 1973 er skráður með skýrum hætti í Íslandssöguna
líkt og gildir um margar aðrar náttúruhamfarir. Þá um nóttina hófst
eldgos í Heimaey sem stóð til 3. júlí um sumarið. Hið merkasta var
að íbúum tókst að flýja Heimaey á skömmum tíma. Slys urðu vart
á fólki. Um fimm þúsund íbúar sigldu til lands með skipaflotanum
sem var í Vestmannaeyjahöfn vegna slæmra gæfta deginum áður.
Aðstæður voru allar hinar bestu til að fara í land. Enginn dó í eld-
gosinu sjálfu. En þegar í land var komið biðu óleyst vandamál. Hús-
næði vantaði fyrir nærri fimm þúsund manns sem misstu heimili
sín. Óvissa brottflúinna var mikil þegar á fastalandið var komið.
Heimilislausir þurftu aðra lausn en þá að búa inn á ættingjum eða
góðhjörtuðum, sem buðu fram aðstoð. Þjóðin fylltist samúð og
samhug um viðbrögð. Hið sama var uppi á teningnum erlendis.
Safnað var fé er rann til húsnæðismála Vestmanneyinga. Alþingi og
ríkisstjórn voru sammála um að setja á fót viðlagasjóð, sem síðar að
loknum fleiri miklum náttúruhamförum var breytt í viðlagatryggingu.
Afgreiðsla gekk hratt og vel fyrir sig á Alþingi og pólitísk landamæri
máðust út við afgreiðsluna, en einungis um stundarsakir.
Í gær voru liðin 40 ár frá þessum minnisverða degi, sem breytti
viðhorfi Íslendinga til atburða og afleiðinga náttúruhamfara, þótt
margt væri ólært líkt og við Vestfirðingar kynntumst á tíunda
áratugnum í snjóflóðunum. En 1995 kom aftur upp samhugur
meðal þjóðarinnar sem sýndi sig í tveimur stórum fjársöfnunum
meðal þjóðarinnar, hinni fyrri vegna snjóflóða í Súðavík, hinni
seinni vegna snjóflóða á Flateyri. Þá máðust landamæri stjórnmála-
flokka út á alþingi, en aðeins um skamma hríð, því miður. Þannig
var það einnig 1973 og 1974, þegar snjóflóðin féllu á Neskaupstað.
Í síðustu viku voru liðin 18 ár frá snjóflóðinu mannskæða í Súða-
vík.
Því hefur verið haldið fram á þessum vettvangi fyrr, að banka-
hrunið hefði í raun kallað á almannavarnaviðbrögð fremur en þær
um margt lítt heppnuðu pólitísku aðgerðir sem gripið var til. Neyð-
arlögin virkuðu, en þá var samstaða á alþingi í líkingu við þá sem
að framan hefur verið rakið. Eina aðgerðin önnur kom að utan, af-
skipti Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, sem reyndar hafa verið umdeild.
Aðrar heimatilbúnar aðgerðir hafa síður virkað, enda hefur skort
pólitíska samstöðu sem sagan segir okkur að hafi náðst tímabundið
í kjölfar náttúruhamfara. Nú þörfnumst við hennar til að leysa brýn
vandamál, fjölskylda, heimila og fyrirtækja og mun fremur en
nýrrar stjórnarskrár, sem á að byggja á illa unnum drögum. Eldgos
væri hins vegar hið síðasta sem við þurfum, en það myndi skapa
sárvantaða samstöðu.