Bæjarins besta - 24.01.2013, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013
Föstudagur 18. janúar
22:00: Edinborg Bistro: Bjórbingó
24:00: Edinborg Bistro: DJ heldur uppi stuði fram eftir nóttu.
24:00: Húsið: Trúbadorinn Denni spilar til kl. 03:00.
Laugardagur 19. janúar
24:00: Húsið: Michelle og Eggert Nielson
með kántrý-stemmningu til kl. 03.
24:00: Edinborg Bistro: DJ heldur uppi stuði fram eftir nóttu.
Þeir sem hyggjast nýta sér atburðardagatalið hér að ofan er
bent á að senda inn tilkynningar á bb@bb.is fyrir hádegi á
mánudegi í þeirri viku sem blaðið fer í dreifingu.
Hvað
er að
gerast?
Sælkeri vikunnar er Ólafur Arnar Ingólfsson á Ísafirði
Hátíðarfiskur stórfjölskyldunnar
Skötuselsuppskriftin er gam-
algróin fjölskylduarfleifð, ég
veit ekki hvaðan hún er ættuð
en ég hef fyrir löngu gefið aðrar
uppskriftir af skötusel upp á
bátinn. Ég hef velt því fyrir
mér að fá steinbítskinnar hjá
Kára og prófa í stað skötusels-
ins en ekki látið verða af því
enn. Focacciabrauð er tiltölu-
lega nýtt fyrir mér, hér er ein-
föld uppskrift sem ég ræð við
vandræðalaust og sjávarsaltið
úr Reykjanesi tekur sig einstak-
lega vel út. Okkur finnst nafnið
óþjált og það heitir bara fokka-
brauð hjá okkur.
Hátíðarfiskur
800 gr skötuselur
2 saxaðar paprikur
1 sneiddur blaðlaukur
2 saxaðar sellerístangir
150 gr rifinn ostur
2 dl. muldar kartöfluflögur
með papriku
2 1/2 dl. rjómi
4 msk hveiti
1 dl. ananassafi eða hvítvín
4 msk smjör
2 msk olifuolía
1-2 tsk tómatkraftur
1/4 tsk turmeric
1/4 tsk karrí
1 tsk italian seasoning
1 tsk salt
1/2 tsk svartur pipar
1 fiskiteningur
Aðferð:
Látið grænmetið krauma í 2
msk. af smjöri þar til það verður
meyrt. Bætið 1 msk. af hveiti út í
ásamt ananassafa/hvítvíni, rjóma,
tómatkrafti og örlitlu af vatni ef
sósan er of þykk. Kryddið með
turmeric, karrí, italian seasoning
og fiskiteningi. Látið krauma við
vægan hita í nokkrar mínútur og
hrærið af og til. Skerið skötusel-
inn í u.þ.b. 4 cm þykkar sneiðar.
Blandið saman 3 msk af hveiti, 1
tsk af salti og 1/2 tsk af pipar.
Hitið á pönnu 2 msk af smjöri og
2 msk af olíu. Veltið skötuselnum
upp úr hveitinu og skeikið fiskinn
í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Hellið
grænmetissósunni í smurt eldfast
mót og raðið fiskibinunum þar
ofan á. Blandið saman osti og
muldum kartöfluflögum og stráið
yfir fiskinn. Berið undir glóð í
nokkrar mínútur eða þar til ost-
urinn er bráðinn. Mjög gott að
hafa ferskt salat með réttinum,
hrísgrjón og að sjálfsögðu fokka-
brauð.
Fokkabrauð
500 g hveiti
1 bréf þurrger
smá salt
1/2 dl ólífuolía
3 dl vatn eða þar um bil
1/3 staukur rósmarín
Ólífuolía til að pensla og gróft
sjávarsalt til að strá yfir
Blandið þessu öllu saman og
hnoðið, deigið á að verða nokkuð
blautt. Setjið deigið svo í pass-
andi eldfast form með háum
börmum og leyfið að lyfta sér í
drykklanga stund á volgum stað.
Þessi volgi staður vill reyndar
oftar en ekki vera bara eldhús-
bekkurinn en ef það er búið að
vera mikið ráp í ísskápinn er volgi
staðurinn gjarna ofan á honum.
Þegar deigið hefur lyft sér nógu
mikið til að við trúum því að úr
þessu verði loftkennt brauð er
það penslað með ólífuolíu, gerð í
það fullt af puttaförum og Reyk-
janessaltinu stráð yfir. Þetta er
svo bakað við 200°C í uþb 20
mín.
Eftirréttaruppskriftin kemur
frá Noregi og er alveg ljómandi
einföld og sæt
Haframjölsbaka
1 poki af frosnum blönduðum
berjum sett í eldfast mót,
smá sykri stráð yfir berin
ásamt 1-2 msk af kartöflu
mjöli.
5 dl. haframjöl
1 dl. sykur
1 msk hveiti
1 tsk lyftiduft
Þessu er öllu blandað saman
og svo er 165 gr brætt smjör
hrært saman við þurrblönd-
una. Allt sett yfir berin, bakað
við 180 gráður í 20 mínútur.
Borið fram heitt með ís.
Njótið vel og verði ykkur að
góðu. Ég skora á samstarfs-
félaga minn hann Arnþór
Kristjánsson til að vera næsti
sælkeri vikunnar.
Af hverju ljósmyndun?
Af illri nauðsyn. Var ritstjóri
Króniku, skólablaðs Fjölbraut-
ar í Ármúla og það var eng-
inn frambærilegur ljósmynd-
ari í ristjórninni svo ég keypti
mér bara myndavél og tók
allar ljósmyndirnar fyrir blaðið
sjálfur. Í framhaldi af því verk-
efni fékk ég áhuga á ljós-
myndun.
Fyrsta græjan?
CNikon FG-20 (filmuvél)
Skemmtilegasta kódak mó-
mentið?
Þau eru nokkur, til að mynda
þessi svakalega tækling hjá
félaga mínum Bigga.
Hvað er í dótakassanum?
Fullt af gömlu drasli, en
það sem er fyrir framan vél-
ina og aftan hana er það
eina sem skiptir máli. Nikon
D200, Nikkor 50mm f1,4,
Sigma 12-24 f4,5-5,6, Sigma
70-300, Sigma 70-300 f4-5,6,
flöss og meira smádót.
Á hvern skorar þú?
Steinunni Matthíasdóttur.
Hún er ein þeirra fjölmörgu
sem átti fallegar ljósmyndir í
vestfirsku ljósmyndabókinni
sem ég gaf út fyrir jólin.
Nafn:
Eyþór Jóvinsson
Uppruni:
Flateyri
Flickr-síða:
jovinsson.is / 500px.com/jovinsson
og flickr.com/jovinsson
Brandur, einhver sá magnaðasti köttur sem ég hef átt.