Bæjarins besta - 24.01.2013, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013
FÓLK VIÐ LEIK OG STÖRF
Björg Guðmundsdóttir aðstoðarmaður sjúkraþjálfara, starfs-
maður á bókasafni og hlátursjógaleiðbeinandi segir frá
Mánudagurinn 10. desem-
ber 2012. Vaknaði klukkan
7. Fór í sturtu og hafði mig
svo til í rólegheitum. Ég á að
mæta í vinnu klukkan átta.
Ég er u.þ.b. 3-4 mínútur að
labba og fór af stað korter í
átta. Veðrið var mjög gott,
logn og kyrrð, en kolamyrkur
og þá breytir miklu að það
eru svo víða komin upp jóla-
ljós. Það er nokkuð autt en
hálka, svo það er eins gott
að vera með nagla undir
skónum. Vinnan mín frá 8-12
er á sjúkraskýlinu í Bolunga-
vík, eins og það er ennþá
yfirleitt kallað í daglegu tali,
þó það sé nú orðin hjúkrun-
ardeild út frá Heilbrigðisstofn-
un Vestfjarða. Ég byrja á að
skipta um föt, fara í hvíta
gallann, og stimpla mig inn.
Þá fer ég inn í eldhús og fæ
mér skeið af lýsi. Ég er þessa
dagana að prófa að taka
fljótandi lýsi á fastandi maga
og borða ekki fyrr en eftir ca.
tvo tíma. Ég las, að það væri
svo gott fyrir liðina.
Starfið mitt hjá Heilbrigðis-
stofnun heitir aðstoðarmaður
sjúkraþjálfara. Í því felst, að
ég er með heimilisfólkið, sem
er 12 manns, í stólaleikfimi
tvisvar í viku. Tvisvar í viku fer
ég með fólkið í sal sjúkra-
þjálfunar, en þangað er inn-
angengt af sjúkraskýlinu, og
fylgi því þar eftir, hjálpa því
að stilla tæki og færa sig á
milli tækja og hjálpa til við
að gera æfingar rétt. Ég fæ
upplýsingar frá sjúkraþjálf-
ara um, hvaða æfingar og
tæki henti hverjum og einum.
Ég fer oft þrjár ferðir fram og
til baka með tvo í hjólastólum
og tvo með göngugrindur.
Það kemst bara einn hjóla-
stóll í lyftuna á sjúkraskýlinu
og ég þarf að fara í tvær
lyftur á leiðinni. Í dag var stóla-
leikfimi í stofunni og þá sitjum
við í hring og gerum æfingar
fyrir höfuð og herðar, hendur
og fætur, syngjum með í
sumum æfingum og gerum
hláturæfingar. Ég er búin að
læra að verða hláturjóga-
leiðbeinandi og nú gerum
við hláturæfingar í hverjum
tíma. Það á að gera okkur
svo gott. Það eru víst orð að
sönnu, að hláturinn lengir líf-
ið! Ég hef verið víða með
hláturjóga, á ýmiss konar
fundum og í veislum, fyrir eldri
borgara á Kanarí og á frið-
arþingi skáta í Hörpu um
miðjan október. Það er mjög
gefandi og gaman og stór-
kostlegt að geta komið öllum
til að hlæja með ákveðnum
æfingum, sama hvort það
eru 10 manns eða 100.
En starfinu á sjúkraskýlinu
fylgir líka umönnun og annað
sem þörf er á. Ég er búin að
vera í þessu starfi í þrjú ár, en
þar á undan hafði ég verið
40 ár í ritara, bókhalds- og
öðrum skrifstofustörfum. Mér
líkar þetta starf mjög vel. Ég
hefði aldrei trúað því, að ég
ætti eftir að vinna í heilbrigð-
isgeiranum, en það er mjög
gefandi. Launin eru að vísu
lág og það er erfitt líkamlega
og ég er oft mjög þreytt þeg-
ar ég kem heim. Ég er að
reyna að standa mig vel í að
nota lyftara, sem eru á staðn-
um, til að færa fólk á milli
stóla, úr rúmum í stóla o.s.frv.
Dagmál
Klukkan átta byrja ég á að
sitja í rapporti með öðru
starfsfólki, þar sem farið er
yfir hvernig staðan er hjá
heimilisfólki eftir nóttina og
hvernig á að skipta verkum
þennan dag. Nú var upplit
á okkur, því ein hafði stungið
upp á því daginn áður, að
við kæmum allar með háls-
bindi eða slæður til að lífga
upp á daginn. Ég kom með
nokkur stykki til að lána þeim,
sem ekki voru í vinnu daginn
áður og vissu ekki af þessu
uppátæki.
Fram undir þetta hef ég
verið inni á göngum framan
af morgni (húsnæðið er á
tveimur hæðum) og hjálpað
fólki á fætur, á klósett, í bað
og í borðstofu og við að
borða, eftir því hvað hver þarf
aðstoð við. Síðan er búið um
rúmin og herbergi þrifin eins
og þörf er á hverju sinni, skipt
á rúmum á ákveðnum dög-
um, og þá eru herbergi þrifin
mjög vel. Gangar eru skúr-
aðir daglega og önnur rými
skúruð eftir ákveðnu skipu-
lagi.
Í síðustu viku var ákveðið
að prófa að breyta skipulag-
inu og nú er ég framan af
morgni í borðstofu, tek á móti
fólkinu þar, færi þeim morg-
unmat og annað, sem þarf,
og hjálpa þeim að borða
sem þess þurfa. Um tíuleytið
er kaffitími, þá fæ ég mér oft
grænmeti og ávexti, hrökk-
brauð með áleggi, vatn og
kaffi. Eftir kaffi fer ég í leikfim-
ina eða sjúkraþjálfunarsalinn
og á föstudögum er ég með
sögustund. Þá les ég upphátt
eða sýni mynd. Stundum
koma börn í heimsókn að
syngja og það er skemmti-
legast.
Miðdegi
Hádegismatur er kl. 11:30
og þá þarf ég að vera búin
að skila fólkinu til stofu eða
borðstofu. Þá þarf að hjálpa
sumum á klósett og í sæti og
síðan við að borða. Þá að-
stoða ég við að bera fólkinu
matinn.
Klukkan tólf á hádegi fer
ég heim. Þá er maðurinn
minn yfirleitt heima og oftast
búinn að hafa til mat. Nú
borðuðum við brauð með
áleggi og kaffi. Ég fékk mér
trefjahylki og D-vítamínhylki.
Ég held að myrkrið dragi mig
niður á veturna nú orðið, og
kannski er það af D-vítamíns-
korti, sem er víst orðinn land-
lægur á Íslandi, svo ég vinn
að minni vellíðan. Eftir mat-
inn lagðist ég niður og hvíldi
mig, sofnaði smástund. Ég
var þreytt, þegar ég kom
heim, svo þetta var endur-
nærandi.
Klukkan eitt skrapp ég inn í
apótek og fór síðan í vinnu á
bókasafninu hér í Bolungavík.
Ég var atvinnulaus að hluta
til, en fékk svo tímabundið