Bæjarins besta - 24.01.2013, Side 17
FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013 17
Þjónustuauglýsingar
hálft starf á bókasafninu í eitt
ár. Það er í verkefni, sem
heitir Vinnandi vegur á veg-
um Vinnumálastofnunar og
sveitarfélaga. Á bókasafninu
þurfti að bæta við mann-
skap, vegna þess, að þar er
verið að taka í notkun nýtt
bókasafnskerfi, Gegni, sem
tekur við af gömlu kerfi, sem
á að fara að loka. Það þýðir
að það þarf að taka hverja
einustu bók og skrá, merkja
hverja bók með þremur lím-
miðum, plasta yfir þá eða
alla bókina eftir þörfum og
gera við um leið. Í dag er
bókasafnið ekki opið og ég
var að líma miða á bækur,
plasta, raða í hillur og hólf.
Ég þarf að lesa nöfnin á bók-
unum til að bera þau saman
við miðana, sem á þær fara,
og þar með að taka eftir
hvaða bækur þetta eru.
Stundum vinn ég í opnunar-
tíma. Þá er að taka við bók-
um sem fólk skilar, leita að
bókum, tala um bækur, ráð-
leggja eftir því sem ég best
veit og lána út bækur og
tímarit. Ég er búin að fara
heim með mikið af bókum til
að lesa, síðan ég byrjaði að
vinna hér. Fólkið mitt segir,
að þessi vinna hljóti að eiga
mjög vel við mig, því ég hef
mikinn áhuga á bókum,
bæði til að fræðast og sem
afþreyingu. Það á mjög vel
við mig að vinna hérna.
Miður aftan
Kl. 5 var ég búin að vinna
á bókasafninu. Þá fór ég í
Bjarnabúð að gera innkaup
fyrir hana Hiddu, sem er 85
ára. Ég aðstoða hana við
ýmislegt, sem við höfum
báðar gaman af og nú ætlar
hún að senda pakka til Dan-
merkur. Ég fór svo með inn-
kaupin til hennar og hjálpaði
henni að pakka inn. Svo fer
ég með pakkann í póst á
morgun. Þessu næst fór ég
til mömmu, sem er 86 ára og
býr ein heima. Ég fór með
smávegis, sem ég var að
kaupa fyrir hana, og stopp-
aði um stund. Svo hringdi
Bjarni, maðurinn minn, og
spurði, hvenær ég kæmi
heim, því kvöldmaturinn væri
að verða tilbúinn. Ég var
komin heim 18:30 og þá
borðuðum við fínan fisk á
pönnu með hvítlauk og engi-
fer, kartöflum og spergilkáli.
Allt annað en bara fiskur og
kartöflur er gert sérstaklega
fyrir mig. Þetta var mjög gott.
María Rebekka, dóttir Fríðu
minnar, sem er elsta barna-
barnið, hringdi í dag til að
bjóða okkur í 18 ára afmæli
seinnipartinn á miðvikudag-
inn. Jói, sonur minn, hringdi í
dag, til að leyfa mér að fylgj-
ast með, hvernig honum líkar
í nýja starfinu sem sérfræð-
ingur hjá Actavis. Freyja,
dóttir mín, hringdi, frá Vest-
mannaeyjum, þar sem hún
býr með sína fjölskyldu. Allt
gott hjá henni, en við ætlum
að vera hjá henni um jólin.
Náttmál
Eftir matinn var hvíldar-
stund við að horfa á fréttir í
sjónvarpinu og spjalla um
daginn. Klukkan níu fór ég
inn á Grundir til að hitta gott
fólk og fara með því í hug-
leiðslu og bænahring. Ég
fer oft þangað á mánudags-
kvöldum, nema þegar kven-
félagsfundir eru. Ég hef verið
í kvenfélaginu í 34 ár. Það
var jólafundur fyrir viku með
súkkulaði, brúnni lagköku,
smákökum og tertum, jóla-
pökkum, jólalögum og göml-
um jóladönsum, mjög nota-
legt. Það er oft mikið að
gera hjá okkur, þegar við
sjáum um erfidrykkjur t.d. Við
erum með fjáraflanir og gef-
um svo peninga til að styðja
við fólk hér í bæ, sem á erfitt,
og gefum ýmislegt til stofn-
ana bæjarins, sem eru til að
þjónusta bæjarbúa.
Lágnætti
Um miðnætti kom ég heim
úr hugleiðslustundinni að
lokinni tedrykkju og var þá
ekki mjög syfjuð. Mér líður
alltaf mjög vel á þessum
stundum og hef mjög gott af
því. Það gerir mann að betri
manneskju, ef eitthvað er,
og hjálpar til að ergja sig
ekki yfir smámunum og ein-
hverju, sem skiptir engu máli,
þegar upp er staðið. Ég fór
strax í rúmið og fór að lesa
Töfraðu fram lífið eftir Sigríði
Klingenberg, sem ég óskaði
mér og fékk í afmælisgjöf 8.
des. s.l., en þá varð ég 64
ára gömul. Mér finnst mjög
gott að hafa svona svona
bækur nálægt mér til að líta
í, les alltaf eitthvað gott, sem
passar fyrir mig. Sofnaði von-
andi fyrir klukkan eitt.