Bæjarins besta - 23.01.2014, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
Selja 1.200 tonna kvóta
Ísfirðingurinn Gunnar Torfa-
son og Bolvíkingurinn Ólafur
Jens Daðason, hafa selt öll hluta-
bréf sín í fyrirtækinu Völusteini
ehf., í Bolungarvík. Völusteinn
gerir úr línubátinn Hálfdán Ein-
arsson ÍS. Á bátnum eru 1.200
þíg.tonn kvóti. Gunnar vildi í
samtali við blaðið, ekki gefa upp
söluverðið en kunnugir menn í
sjávarútvegi segja verðmæti báts
og kvóta ekki undir tveimur millj-
örðum króna. Kaupandinn er
Fiskmarkaður Vestfjarða. Völu-
steinn átti 20% hlut í fiskmark-
aðnum og fylgdi hluturinn með í
kaupunum. Gunnar og Ólafur
Jens eru því hættir afskiptum af
útgerð í Bolungarvík.
Eigendur Fiskmarkaðs Vest-
fjarða eru fyrirtækin Salting ehf.,
Jakob Valgeir ehf., og Blakknes
ehf., öll í Bolungarvík. Gunnar
segir ástæðu sölunnar vera þá að
hann vilji einbeita sér að upp-
byggingu á Flateyri þar sem hann
í félagi við Ólaf Jens rekur fyrir-
tækið Valþjóf ehf., sem gerir út
línubátinn Hrólf Einarsson ÍS.
„Við höfum rekið Völustein í
fimm ár og reksturinn í góðum
málum en við mátum það svo að
best væri að einbeita sér að upp-
byggingunni á Flateyri. Mark-
miðið er að byggja upp útgerðina
hægt en örugglega eins og í Bol-
ungarvík,“ segir Gunnar.
Aðspurður hvort ekki hafi
komið til tals að flytja rekstur
Völusteins og kvótann til Flat-
eyrar segir Gunnar það heilla-
vænlegast að raska ekki góðum
rekstri fyrirtækisins. „Það vinna
tuttugu manns hjá fyrirtækinu í
Bolungarvík og mikilvægt að
koma ekki róti á þau störf.“ Hjá
Valþjófi á Flateyri vinna nú sex
manns og segir Gunnar útgerðina
ganga vel. „Við löndum sirka
helmingi af öllu lönduðum afla á
Flateyri og leggjum bæði upp
hjá Arctic Odda og Fiskmarkaði
Vestfjarða.“
Gunnar Torfason gerir einnig
út rækjubátinn Eið á Ísafirði í
félagi við Ólaf Jens og Örn bróður
sinn, Torfason og segir hann eng-
ar breytingar fyrirhugaðar á út-
gerð hans.
Rækjuvertíðin hafi gengið vel
í Ísafjarðardjúpi, góð veiði og
rækjan dreifð um Djúpið. Eiður
leggur upp hjá rækjuverksmiðj-
unni Kampa á Ísafirði.
– smari@bb.is
Fasteigninni haldið í ákveðinni „gíslingu“
Óskað hefur verið eftir fyrir-
töku mál hjá Matsnefnd eignar-
námsbóta vegna Seljalandsvegar
102 á Ísafirði. Ísafjarðarbær tók
eignina eignarnámi í desember
síðastliðnum en sveitarfélagið
hafði um nokkurt skeið rætt við
eigendur fasteignarinnar um kaup
vegna ofanflóðavarna neðan
Gleiðarhjalla en ágreiningur
hefur verið um fjárhæð eignar-
námsbótanna. Í beiðni lögmanns
eigendanna, Huldu R. Rúriks-
dóttur hrl., um fyrirtöku málsins
til matsnefndarinnar segir meðal
annars að tæplega tvö ár séu liðin
frá því að umbjóðendur hans var
kunnugt um að Ísafjarðarbær
hygðist kaupa eignina eða taka
hana eignarnámi. Á þeim tíma
hafi þeir margsinnis þurft að yfir-
gefa heimili sitt vegna hættu á
snjóflóðum og þau hafi ekki getað
selt eða gert nokkrar aðrar ráð-
stafanir með eignina.
„Jafnvel hefur bæjarfélagið
látið að því liggja í bréfum til um-
bjóðenda minna að bæjarfélagið
getið dregið það til ársins 2020
að ganga frá kaupum fasteignar
þeirra. Fasteign umbjóðenda
minna er á meðan í ákveðinni
„gíslingu“, þ.e. hendur umbjóð-
enda minna eru með öllu bundn-
ar,“ segir m.a. í beiðni lögmanns-
ins. Þá segir enn frekar að réttur
umbjóðenda hennar til að tala
máli sínu um verðmæti fasteign-
arinnar hafi ekki verið virtur og
að bæjarfélagið hafi ekki viljað
raunverulegar sáttatilraunir.
„Umbjóðendur mínir hafa því
ríkar ástæður til að ætla að bæjar-
félagið muni draga mál þeirra
enn meira en orðið er.“
Erindi lögmannsins var lagt
fram til kynningar á fundi bæjar-
ráðs Ísafjarðarbæjar í síðustu
viku og lét bæjarráð bóka að það
taki undir mikilvægi þess að mál-
ið verði til lykta leitt með skjótum
hætti og tekur undir óskir um að
matsnefnd eignarnámsbóta taki
mál fasteignarinnar Seljalands-
vegar 102 til meðferðar eins og
ákveðið hafði verið í bæjarstjórn.
„Það er síður en svo vilji bæjar-
yfirvalda að málið verði tafið á
nokkurn hátt og hefur slíkt hvergi
komið fram í bókunum eða
umræðum sem bæjarfulltrúar
þekkja til. Bæjarráði þykir miður
að ekki hafi náðst saman um verð
á fasteigninni sem um ræðir. Ekki
er þó hægt að skella skuldinni á
annan samningsaðilann þegar
ekki næst saman í slíkum samn-
ingum. Þegar ljóst varð í lok árs
2013 að aðilar væru sammála
um að ekki næðist saman var því
ákveðið að hefja eignarnámsferli
án frekari tafa.“
– harpa@bb.is
Seljalandsvegur 102 á Ísafirði.
Mikill viðsnúningur hefur orð-
ið á rekstri og skuldastöðu Edin-
borgarhússins ehf., á Ísafirði, að
því er fram kom á aðalfundi fé-
lagsins sem haldinn var í desem-
ber. Jón Sigurpálsson, formaður
stjórnar Edinborgarhússins, segir
að verulega sé búið að grynnka á
skuldum félagsins. Þegar húsið
var opnað árið 2007 var gerður
samningur við Vestfirska verk-
taka um leigu og rekstur á veit-
ingahluta hússins. Þann samning
yfirtók Sveitasæla ehf., árið 2012
og regur félagið veitingahús
undir nafninu Edinborg Bistro.
Að sögn Jóns hafa náðst samn-
ingar við eigendurna um að þeir
sinni húsvörslu Edinborgarhúss-
ins og rekstrarstjóri í hlutastarfi
hefur verið ráðin Ólöf Dómhildur
Jóhannsdóttir. Í stjórn Edinborg-
arhússins sitja Jón Sigurpálsson,
formaður, Gísli Jón Hjaltason og
Sveinbjörn Björnsson. Í húsinu
er sjálfstætt starfandi menningar-
nefnd, sem er óháð rekstri húss-
ins. Hún hefur það hlutverk að
efla menningartengda viðburði á
svæðinu.
Jón segir að á fyrstu árum húss-
ins hafi þurft að taka á ýmsum
málum sem hafi verið kostnaðar-
söm og ekki bætti kreppan rekstr-
arstöðu hússins. – smari@bb.is
Skuldir Edinborgarhússins lækka
Bjartari tíð framundan í Edinborgarhúsinu eftir mörg mögur ár.