Bæjarins besta - 23.01.2014, Page 17
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 17
Við útnefningu á íþróttamanni
ársins í Ísafjarðarbæ var efnileg-
asti íþróttamanni bæjarins út-
nefndur í fyrsta sinn. Fyrsti hand-
hafi verlaunanna er knattspyrnu-
konan Sigrún Gunndís Harðar-
dóttir úr BÍ/Bolungavík. Sigrún
hefur æft knattspyrnu í 10 ár og
ávallt leikið með BÍ/Bolungar-
vík.
Sigrún var mikilvægur hlekkur
í kvennaliðinu á Íslandsmótinu í
fyrra. Hún spilaði alla 16 leiki
liðsins í 1.deild og alla fjóra leiki
BÍ/Bolungarvíkur í Lengjubik-
arnum og skoraði 1 mark. Í fyrra
var hún valin til æfinga með U-
17 og U-19 landsliðum kvenna á
árinu 2013 og spilaði vináttu-
landsleik með U-17 landsliðinu
gegn Dönum 27.janúar 2013.
Í umsögn valnefndar segir að
Sigrún Gunndís er heilbrigður
og metnaðarfullur íþróttamaður,
sem stundar íþrótt sína af miklu
kappi og er góð fyrirmynd yngri
íþróttamanna.
– smari@bb.is
Fimm voru tilnefndir sem efnilegustu íþróttamenn ársins. F.v. Gísli Jörgen
Gíslason handboltamaður úr Herði, Birkir Eydal, blakmaður úr Skelli, Linda
Marín Kristjánsdóttur körfuboltakona úr KFÍ, Guðný Birna Sigurðardóttir sundkona
úr Vestra, Sigrún Gunndís og Sigurður Óli Rúnarsson lyftingamaður úr KFV.
Sigrún Gunndís efni-
legust í Ísafjarðarbæ
Kristín íþróttamaður ársins
Kristín Þorsteinsdóttir hjá
Íþróttafélaginu Ívari var á sunnu-
dag útnefnd íþróttamaður Ísa-
fjarðarbæjar 2013. Kristín, sem
er 21 árs, hefur æft sund frá átta
ára aldri. Í umsögn valnefndar
segir að Kristín hafi ávallt stund-
að æfingar af elju og samvisku-
semi ásamt því að vera mikil
keppnismanneskja. Blaðamaður
náði á Kristínu og móður hennar,
Sigríði Hreinsdóttur, og eru þær
mæðgur að vonum stoltar af ár-
angrinum. Árið 2013 var gott
sundár hjá Kristínu. Hún tók þátt
í Reykjavík International Games,
Íslandsmeistarmóti í 50m laug,
bikarmóti á Akureyri og Íslands-
meistarmóti í 25m laug. Á þess-
um mótum vann hún fjögur gull,
tvö silfur og einu sinni vann hún
til bronsverðlauna.
Á bikarmótinu var Kristín
einungis þremur sekúndum frá
heimsmetinu og er það ótrúlegur
árangur sé tekið tillit til smæðar
Íþróttafélagsins Ívars og bágbor-
innar aðstöðu sundfólks á Ísa-
firði. Kristín æfir í Sundhöllinni
á Ísafirði og segja þær mæðgur
það vissulega erfitt að æfa í 16
metra laug en allar keppnir fara
fram í 50 og 25 metra laugum.
Sigríður bætir við að aðgengis-
mál fatlaðra séu ekki eins og best
verði á kosið í Sundhöllinni sem
gerir fötluðum erfitt fyrir að
stunda sund en segir að vissulega
sé erfitt að koma aðgengismálum
í topp ástand í svo gömlu húsi.
Sem dæmi um frábæran árang-
ur Kristínar í fyrra má nefna að á
fyrrnefndu bikarmóti, sem er
stigamót, mætti Kristín ein til
leiks frá Ívari vegna forfalla en
skilaði engu að síður 1.709 stig-
um í pottinn. Næsta lið á undan
náði 4.757 stigum en notuðu til
þess 39 sundmenn. Kristín æfir
þrisvar í viku og segir að þau séu
fimm sem æfi sund hjá Ívari en
einungis hún taki þátt í mótum
og getur það verið ansi einmana-
legt. Næsta mót á dagskránni hjá
Sundið á allan hug Kristínar
og lítill tími fyrir önnur áhuga-
mál. Hún starfar á endurhæfing-
ardeild Heilbrigðisstofnunar
Vestfjarða. Auk Kristínar voru
Kristínu er Íslandsmót í apríl.
Draumurinn er að fara á stórt
sundmót á Ítalíu í haust en slík
ferðalög eru kostnaðarsöm og
ekki ákveðið hvort Kristín fari.
eftirtaldir íþróttamenn tilnefndir:
Sigfús Fossdal lyftingamaður,
Guðmundur Valdimarsson, skot-
íþróttamaður, Jón Hrafn Bald-
vinsson körfuknattleiksmaður,
Guðmundur Sigurvin Bjarnason
gönguskíðamaður, Hafsteinn
Rúnar Helgason, knattspyrnu-
maður og Anton Helgi Guðjóns-
son golfari. – smari@bb.is
Kristín Þorsteinsdóttir, íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2013.