Bæjarins besta - 23.01.2014, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
Kosningar framundan
Stakkur skrifar
Stakkur hefur ritað
vikulega pistla í
Bæjarins besta í
mörg ár. Skoðanir
hans á mönnum og
málefnum hafa oft
verið umdeildar og
vakið umræður. Þær
þurfa alls ekki að
fara saman við skoð-
anir útgefenda
blaðsins. Þrátt fyrir
það bera ábyrgðar-
menn blaðsins ábyrgð
á skrifum Stakks á
meðan hann notar
dulnefni sitt.
Guðmundur Tryggvi
Ásbergsson, athafnamaður
frá Hnífsdal, segir áhuga sinn
á að reisa smáhúsabyggð í
Tungudal, fara dvínandi
enda hafi málsmeðferð Ísa-
fjarðarbæjar tekið of langan
tíma. „Ég veit ekki hversu
mikla biðlund ég hef. Þetta er
búið að taka langan tíma,
mörg ár,“ segir Guðmundur
Tryggvi. Hann kveðst enn
hafa fullan hug á að reisa
smáhýsin en hvort það verð-
ur á Ísafirði er annað mál.
Hann segist hafa kannað
möguleika á að byggja smá-
hýsi á öðrum svæðum á land-
inu og þá fyrst og fremst á
suðvesturhorninu.
Guðmundur sótti fyrst um
að fá að byggja smáhýsin
haustið 2010. Hann hyggst
leigja þau út til ferðamanna.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
samþykkti fyrir ári að fara í
deiliskipulagsvinnu í Tungu-
dal. Án deiliskipulags er ekki
hægt að úthluta lóðum undir
smáhýsi. Jóhann Birkir Helga-
son, sviðsstjóri framkvæmda-
sviðs Ísafjarðarbæjar, segir
ekki alveg vitað hvenær
skipulagið verði tilbúið. Ætl-
unin sé að ljúka við önnur
skipulög sem bærinn var
byrjaður áður en skipulag
Tungudals verði klárað.
Hann gerir ráð fyrir að með
vorinu hittist skipulagshópur
bæjarins og farið verði yfir
verkefnið og það tímasett.
Áhuginn á
smáhúsabyggð
í Tungudal
dvínar
Sunnukórsball og áttræðisafmæli
Sunnukórinn fagnar 80 ára
afmæli sínu um helgina. Afmæl-
isárið hefst með hinu rómaða
Sunnukórsballi í Edinborgarhús-
inu á laugardag. Svavar Guð-
mundsson, formaður Sunnukórs-
ins, segir það afar heppilega til-
viljun að ballið hitti á afmælisdag
kórsins, en hann var stofnaður
25. janúar 1934. „Við hefjum af-
mælisárið með Sunnukórsballinu
sem verður með veglegra móti.
Það verður þríréttuð matarveisla
og svo verða sólarpönnukökurnar
náttúrulega á sínum stað,“ segir
Svavar.
Sunnukórinn mun taka nokkur
lög og lúðrasveitin syngur með
völdum kórfélögum. Kvennakór
Ísafjarðar hefur þekkst boð Sunnu-
kórsins um að samfagna merkis-
afmæli kórsins og ísfirska hljóm-
sveitin Kraflyfting leikur fyrir
dansi. Af öðrum viðburðum á
afmælisári kórsins nefnir Svavar
vortónleika og segir að í deiglunni
sé að æfa stærra verk sem verður
flutt með hljómsveit á Veturnótt-
um í haust.
„Allir eru velkomnir á Sunnu-
kórsballið nema mögulega gagn-
kynhneigðir Bolvíkingar í sam-
búð. En þar sem klíkuskapur við-
gengst hjá okkur eins og annars
staðar þá er allt til umræðu,“ segir
Svavar glettinn. Saga Sunnukórs-
ins var tekin saman á 70 ára af-
mælinu af Birni Teitssyni, sagn-
fræðingi og fyrrum skólameistar
MÍ. Um stofnun kórsins segir:
„Á fundi sóknarnefndar Ísa-
fjarðarkirkju 19. sept. 1933 var
lagt fram bréf frá Jónasi Tómas-
syni organista, „þar sem hann
telur sig ekki geta séð um og lagt
til söng við guðsþjónusturnar eins
og honum ber samkv. erindis-
bréfinu, og verði því að segja
starfinu lausu.“ Í framhaldinu
ákvað sóknarnefndin að efna til
funda með söngfólkinu í kirkj-
unni „til þess að ræða við það um
kirkjusönginn í framtíðinni og ef
unt er að koma á félagsskap sem
starfar að því að fegra og bæta
kirkjusöngin(n) og vinna að því
að flytja kirkjuleg tónverk í guðs-
þjónustum og á sérstökum söng-
samkomum í kirkjunni. For-
manni, sóknarpresti og organista
var falið að undirbúa fundinn.“
Á aðalsafnaðarfundi Ísafjarð-
arsafnaðar 15. október 1933 voru
sóknargjöld til umræðu, en söfn-
uðurinn átti þá nokkurt fé í sjóð-
um, einkum í kirkjubyggingar-
sjóði. Fram kom svohljóðandi
tillaga: „Þar eð búast má við
auknum útgjöldum á næstu tím-
um, sérstaklega til söngs við
guðsþjónustur, leggur sóknar-
nefndin (til), að kirkjugjöld verði
óbreytt um næstu 5 ár.“ Þessi
tillaga var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum.“
– smari@bb.is
Byggingu varaaflstöðvar miðar vel
Framkvæmdum við varaafl-
stöð Landsnets í Bolungarvík
miðar ágætlega að sögn Þórðar
Jónssonar, eiganda Stakkaness
ehf., sem sér um uppsteypuna
fyrir Íslenska aðalverktaka.
„Þetta hefur verið barátta í vetur
en við erum harðir kappar og
það þýðir ekkert að gefast upp,“
segir Þórður. Bæði heima- og
aðkomumenn starfa við bygging-
una og eru aðkomumennirnir
venjulega í tveggja vikna úthaldi.
Illviðriskaflinn í lok desember
og byrjun janúar tafði ekki fyrir
þeim þar sem þeir voru í jólafríi
frá því fyrir jól og fram á þrett-
ándann. „Það tók tvo daga með
stórvirkum vinnuvélum að moka
framkvæmdasvæðið þegar við
mættum aftur.“
Með byggingu varaaflstöðv-
arinnar er ætlunin að tryggja
orkuafhendingu á norðanverðum
Vestfjörðum, en hún hefur lengi
þótt afar óörugg. Stöðin verður
sjálfvirk, og í skoðun er að setja
þar upp búnað til að gera henni
kleift að veita rafmagni á meðan
vélar hennar keyra sig upp, þann-
ig að straumur detti ekki út á
meðan. Verkefnið er unnið í sam-
starfi við Orkubú Vestfjarða, en
það mun einnig hafa aðstöðu fyrir
búnað sinn í tengivirkinu. Sam-
hliða tengivirkinu verða gerðar
breytingar á Bolungarvíkurlínum
1 og 2, en Gámaþjónusta Vest-
fjarða mun annast þá framkvæmd
næsta sumar.
– smari@bb.is
Tölvuteikning af varaaflstöðinni.
Stutt er í kosningar og listar taka á sig mynd, en ekki er
vitað enn hver stefnan verður hjá hverjum og einum og
má kannski einu gilda. Best verður ef svo vel tekst til að
við taki konur og karlar sem kunna að fara vel með pen-
inga almennings. Ekkert er víst um loforð um meðferð er
kemur að skattfé almennings sem vel verður að fara með
hverju sinni annars fer illa. Flokkarnir eru að stilla upp
listum um allt land og nota mismunandi aðferðir eins og
uppstillingu, flokksval og kosningar með hlutdeild allra
flokksmanna sem vilja velja menn, konur og karla, til
setu í sveitarstjórnum um allt land. Uppstilling er að
verða algengari leið, sennilega til að jafnt verði með kynj-
um á framboðslistum og allir verði glaðir og uni við end-
anlega lista. Best er ef vel tekst til og traustir menn, konur
og karlar, sem kunna fótum sínum forráð fyrir okkur hin,
veljast til setu.
Komandi vor nálgast hratt og gott er að klára listagerð
fljótt svo stefnan komi fram, sem sennilega verður kunnug-
leg hjá flestum flokkum og listum, gamalt vín á nýjum
belgjum og kannski verða breytingar litlar. Spennandi
verður að sjá hvað gerist í Reykjavík. Hvernig mun Halldóri
Halldórssyni ganga, en hann er efstur á lista sjálfstæðis-
manna, sem ekki er vinsæll vegna fárra kvenna? En Halldór
er seigur og gaman verður að fylgjast með gengi hans og
tökum á kosningabaráttunni. Erfitt verður að snúa vörn í
sókn en Vestfirðingum er allt kleift segir sagan.
Hvað verður í Ísafjarðarbæ er forvitnilegt og nú skiptir
Daníel Jakobsson um hlutverk og fleira nýtt fólk kemur
fram enda eru margir að hætta. Vonandi gengur öllum vel
og bærinn eflist fyrir vikið. Hvert stefnum við, mun fólki
fjölga og atvinnulíf eflast eru stóru spurningarnar sem
svarað verður að loknum kosningum. Allir vilja betra mann-
líf og trygga atvinnu góða menntun og takist að efla allt
þetta er til einhvers barist. Megi listafólkið hverju nafni
sem listarnir nefnast ná saman um að efla umhverfi sitt og
vorið verður gott.