Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.01.2014, Qupperneq 10

Bæjarins besta - 23.01.2014, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 Stefán Kristinn íþrótta- maður ársins í Bolungarvík Stefán Kristinn Sigurgeirsson, 15 ára sundmaður hjá UMFB, hefur verið útnefndur íþróttamað- ur ársins 2013 í Bolungarvík. Stefán Kristinn byrjaði að æfa sund sex ára og þykir hafa sýnt mikla eljusemi á æfingum. Hann er mikill leiðtogi í lauginni og fyrirmynd sem margir yngri iðk- endur líta upp til. „Stefán Kristinn er á nokkurs vafa einn efnilegasti sundmaður landsins og eru marg- ir þjálfarar og velunnarar sund- íþróttarinnar farnair að taka eftir skriðsunds stráknum frá Bolung- arvík. Gaman er að geta þess að Stefán Kristinn er ekki sá fyrsti af systkinum sínum til að hljóta þessa eftirsóttu nafnbót, því Svala Sif systir hans var útnefnd íþrótta- maður ársins 1998 í Bolungarvík, þá aðeins 10 ára gömul,“ segir á vikari.is. Auk Stefáns Kristins voru til- nefndir sem íþróttamaður ársins þau Janusz Pawel Duszak fyrir golf, Pétur Bjarnason fyrir knatt- spyrnu og Sigríður Magnea Jóns- dóttir fyrir hestaíþróttir. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir árangur og framfarir í íþróttum á árinu. Jónína Arndís Guðjóns- dóttir, Karólína Sif Benedikts- dóttir og Rebekka Lind Ragnars- dóttir fengu viðurkenningu fyrir góða ástundun, framfarir og ár- angur í sundi og hjónin Guðrún Dagbjört Guðmundsdóttir og Jóhann Þór Ævarsson fengu viðurkenningu fyrir góðan árang- ur í frjálsum íþróttum 50 ára. Sérstaka heiðursviðurkenningu fékk stjórn sunddeildar UMFB og sundþjálfarinn Svala Sif fyrir góð störf í þágu sundíþróttar- innar. – harpa@bb.is Stefán Kristinn Sigurgeirsson, íþróttamaður ársins 2013 í Bolungarvík ásamt Elíasi Jónatanssyni bæjarstjóra. Jónína Arndís, Karólína Sif og Rebekka Lind fengu viður- kenningu fyrir góða ástundun, framfarir og árangur í sundi. Hjónin Guðrún Dagbjört og Jóhann Þór fengu viðurkenn- ingu fyrir góðan árangur í frjálsum íþróttum 50 ára og eldri.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.