Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2008, Síða 8
fimmtudagur 26. júní 20088 Fréttir DV
VANTAR YKKUR GRILL
HEIMA EÐA Í SUMARBÚSTAÐINN
ERUM MEÐ HÁGÆÐA RYÐFRÍ GASGRILL
Grillið er úr ryðfríu stáli (304)
með þremur pottbrennurum
og einum bakbrennara
(stærð 161 x 68 x 126 cm).
Grillið er með rafknúnum
grillteini, elektrónískum
kveikjubúnaði
og yfirbreiðslu.
Upplýsingar í
síma 517 2220
ÓTR
ÚLE
GT
VER
Ð
kr.
75.
000
Bakverk - heildsala ehf,
Tunguháls 10, 110 Reykjavík
GOLF & GAMAN
Golfvísur og gamanmál frá
Kristjáni Hreinssyni, eins
og honum einum er lagið.
„Frumleg, fyndin og
frábær skemmtun”
- Guðmundur Arnarsson,
ritstjóri Golfblaðsins
„Það mun sitthvað þessu líkt
um þjóðlíf hafa flogið
Hér er sjálfsagt eitthvað ýkt
en engu mun þó logið“
- Kristján Hreinsson
„Fyndin og frábær
lýsing á gleðinni sem
golfið geymir.”
- Jón Ásgeir Eyjólfsson,
forseti Golfsambands Íslands
Komdu til okkar,
taktu með
eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór
Borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík íhugar að fá utanaðkom-
andi aðila í samstarf um rekstur hjúkrunarheimilisins Droplaug-
arstaða. Þórlaug Guðbjörnsdóttir, eiginkona vistmanns á Drop-
laugarstöðum, segir að starfið verði að snúast um vistmennina.
„Það breytir kannski ekki öllu hver
rekur Droplaugarstaði. Ef rekstur-
inn verður svipaður og á Sóltúni eða
Grund er það allt í lagi. Reksturinn
þar er náttúrlega fyrirmyndarrekstur.
En þetta snýst allt um vistmennina.
Ég vil ekki trúa því að þær breytingar
sem verða gerðar eigi eftir að skaða
fólkið,“ sagði Þórlaug Guðbjörns-
dóttir, eiginkona íbúa á Droplaugar-
stöðum. „Ég vona að það verði ekki
gerðar neinar breytingar sem skaða
vistmennina.“
Tillögunni frestað
Borgarstjórnarmeirihlutinn lagði
til á fundi velferðarráðs í gær að aug-
lýst yrði eftir samstarfsaðilum til að
reka hjúkrunarheimilið Droplaugar-
staði sem er á Snorrabraut í Reykja-
vík. Velferðarráð Reykjavíkur ákvað
að fresta tillögunni um að fá einka-
aðila að rekstri hjúkrunarheimilisins
fram í ágúst.
„Ég er mjög ánægð með að
þessu hafi verið frestað fram á haust,
því það eru í farvatninu ný lög í sam-
bandi við rekstur hjúkrunarheimila,“
segir Ingibjörg Þórisdóttir, forstöðu-
maður Droplaugarstaða. „Áætlunin
er að þau fari í gegn í september.“
Guðlaugur Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra vinnur að lögum
í sambandi við rekstur hjúkrunar-
heimila á landinu.
Búið að skoða vandann
Mikill halli hefur verið á rekstri
Droplaugarstaða og er það forsenda
þessarar tillögu. Áætlað er að hallinn
verði allt að fjörutíu til sextíu millj-
ónir króna á þessu ári. Ríkisvald-
ið veitir öllum hjúkrunarheimilum
vissa upphæð í daggjöld og hefur sú
upphæð dugað flestum heimilum.
Búið var að endurskoða reksturinn á
Droplaugarstöðum en ekki hægt að
stöðva hallann.
Í nýju lögunum sem Guðlaugur
Þór heilbrigðisráðherra er að vinna
að verður ítarleg kostnaðargreining
á hvað hjúkrunarheimili geta eytt
miklum peningunum og hvað ýmsar
aðgerðir kosta og hvað sé eðlilegt að
borga fyrir. „Ef það gengur yfir verð-
ur þetta allt í eðlilegra horfi. Þá vit-
um við hvað hlutirnir kosta og hvað
við þurfum að gera til að vera innan
þeirra marka,“ segir Ingibjörg.
Hræðsla hjá íbúum
„Mannskapurinn verður ánægð-
ur að heyra að það sé búið að fresta
þessu fram á haust. Það var kominn
smá óróleiki í fólkið um hvort það
ætti eftir að búa hér áfram eða ekki
en við útskýrðum fyrir því að þetta
snúi að peningamálum,“ segir Ingi-
björg.
Má ekki skaða
vistMennina
„Ég er mjög ánægð
með að þessu hafi
verið frestað“
Droplaugarstaðir Það ræðst
væntanlega í ágúst hvort borgin
reki hjúkrunarheimilið ein eða
fái einhvern til samstarfs.