Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2008, Blaðsíða 27
DV Sviðsljós fimmtudagur 26. júní 2008 27
1
2
3
4
5 6
1 Kristen Bell Er pottþétt ekki
með harðsperrur eftir daginn í
garðinum. Hún teygði svo
rosalega vel.
2 Jú, hún náði honum á
lappir Kristen fékk dax
með sér í teygjuæfing-
arnar.
3 Nammi-namm Það er
gott að koma með smá
piknik með sér í garðinn
eins og Kristen gerir.
4 Djúsí varir Kristen tók
með sér varasalva í
garðinn til að viðhalda
rakanum í vörunum.
5 „Komdu aðeins að leika,
Dax,“ gæti Kristen verið að
segja hér við kærastann.
6 Knús, knús og kossaflens
Eftir nokkrar teygjur og
æfingar er gott að slaka aðeins
á og knúsast.
Kattliðug og tælandi
Cheryl og Ashley Cole
Vinna úr
sínum málum
Tommy Lee gerðist græn-
metisæta til að vinna aftur hjarta
sinnar heittelskuðu Pamelu
Anderson. Tommy og Pammie
náðu saman á ný á dögunum
og er rokkarinn sannfærður um
að ákvörðun hans um að ger-
ast grænmetisæta hafi haft sitt
að segja til að vinna aftur ástir
dýraverndunarsinnans Pamelu.
„Núna er ég búinn að vera
grænmetisæta í fjórar vikur. Ég
var tilbúinn að prófa hvað sem
væri til að vinna hana aftur,“
sagði Tommy.
Parið hefur alltaf haldið
nánu sambandi eftir að þau
skildu enda eiga þau saman
synina Brandon, tólf ára, og
Dylan, tíu ára. Pamela var svo
ánægð með það hversu stað-
fastur Tommy var í grænmet-
isátinu að hún féll kylliflöt fyrir
honum.
Pamela Anderson og
Tommy lee á góðri
stundu Saman gæða þau
sér á gómsætum
grænmetisréttum til að
rækta sambandið.
Féll Fyrir
grænmetisátinu
Tommy lee gErðiSt grænmEtiSæta til að vinna aftur áStir PAmelu ANDersoN.
Fyrrverandi Girls Aloud-söngkon-
an Cheryl Cole hefur ákveðið að fyr-
irgefa eiginmanni sínum, fótbolta-
manninum Ashley Cole, framhjáhald
hans með hárgreiðslukonu fyrr á ár-
inu. Þessar myndir náðust af parinu í
fríi á Marbella á Spáni og eru þau sögð
vera að vinna úr sínum málum og líta
hlutirnir vel út fyrir söngkonuna, en
hún á taka við dómarasæti í X-Factor.
Allt fór í háaloft er fréttir af fram-
hjáhaldi Chelsea-mannsins birtust í
slúðurpressunni í Bretlandi. Á endan-
um þurfti Cheryl að flýja land vegna
niðurlægingar og lét hún sig hverfa
til Asíu ásamt vinkonum sínum í At-
omic Kitten til að jafna sig. Síðan hélt
hún til Los Angeles og hefur væntan-
lega bankað upp á hjá vinkonu sinni,
Victoriu Beckham sem lenti einmitt í
sömu stöðu fyrir nokkrum árum. En
hver getur gleymt málinu með David
Beckham og Rebeccu Loos?
Victoria ákvað að standa við bakið
á sínum manni. Svo virðist sem Cher-
yl ætli að gera slíkt hið sama. Miðað
við þessar myndir getur ekki nokk-
ur manneskja skilið af hverju Ashley
myndi nokkurn tímann halda framhjá
Cheryl.
Við sundlaugarbakkann
Cheryl Cole nýtur sín í
sólinni á marbella á Spáni
og spjallar við eiginmann
sinn, ashley Cole.
Flott stúlka Cheryl Cole er
svakaskutla. Hún hefur ákveðið
að láta reyna á hjónaband sitt á
ný eftir að fréttir um framhjá-
hald eiginmanns hennar komu
upp á yfirborðið fyrr á árinu.
Flúði land Cheryl Cole lét sig
hverfa úr sviðsljósinu eftir að
hún frétti af framhjáhaldi
ashleys.
heppinn gaur mörgum finnst
ashley Cole virkilega hafa klúðrað
sínum málum er hann hélt
framhjá eiginkonu sinni. Þau eru
nú tekin saman á nýjan leik og
eru að vinna úr sínum málum.