Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2008, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2008, Síða 27
DV Sviðsljós fimmtudagur 26. júní 2008 27 1 2 3 4 5 6 1 Kristen Bell Er pottþétt ekki með harðsperrur eftir daginn í garðinum. Hún teygði svo rosalega vel. 2 Jú, hún náði honum á lappir Kristen fékk dax með sér í teygjuæfing- arnar. 3 Nammi-namm Það er gott að koma með smá piknik með sér í garðinn eins og Kristen gerir. 4 Djúsí varir Kristen tók með sér varasalva í garðinn til að viðhalda rakanum í vörunum. 5 „Komdu aðeins að leika, Dax,“ gæti Kristen verið að segja hér við kærastann. 6 Knús, knús og kossaflens Eftir nokkrar teygjur og æfingar er gott að slaka aðeins á og knúsast. Kattliðug og tælandi Cheryl og Ashley Cole Vinna úr sínum málum Tommy Lee gerðist græn- metisæta til að vinna aftur hjarta sinnar heittelskuðu Pamelu Anderson. Tommy og Pammie náðu saman á ný á dögunum og er rokkarinn sannfærður um að ákvörðun hans um að ger- ast grænmetisæta hafi haft sitt að segja til að vinna aftur ástir dýraverndunarsinnans Pamelu. „Núna er ég búinn að vera grænmetisæta í fjórar vikur. Ég var tilbúinn að prófa hvað sem væri til að vinna hana aftur,“ sagði Tommy. Parið hefur alltaf haldið nánu sambandi eftir að þau skildu enda eiga þau saman synina Brandon, tólf ára, og Dylan, tíu ára. Pamela var svo ánægð með það hversu stað- fastur Tommy var í grænmet- isátinu að hún féll kylliflöt fyrir honum. Pamela Anderson og Tommy lee á góðri stundu Saman gæða þau sér á gómsætum grænmetisréttum til að rækta sambandið. Féll Fyrir grænmetisátinu Tommy lee gErðiSt grænmEtiSæta til að vinna aftur áStir PAmelu ANDersoN. Fyrrverandi Girls Aloud-söngkon- an Cheryl Cole hefur ákveðið að fyr- irgefa eiginmanni sínum, fótbolta- manninum Ashley Cole, framhjáhald hans með hárgreiðslukonu fyrr á ár- inu. Þessar myndir náðust af parinu í fríi á Marbella á Spáni og eru þau sögð vera að vinna úr sínum málum og líta hlutirnir vel út fyrir söngkonuna, en hún á taka við dómarasæti í X-Factor. Allt fór í háaloft er fréttir af fram- hjáhaldi Chelsea-mannsins birtust í slúðurpressunni í Bretlandi. Á endan- um þurfti Cheryl að flýja land vegna niðurlægingar og lét hún sig hverfa til Asíu ásamt vinkonum sínum í At- omic Kitten til að jafna sig. Síðan hélt hún til Los Angeles og hefur væntan- lega bankað upp á hjá vinkonu sinni, Victoriu Beckham sem lenti einmitt í sömu stöðu fyrir nokkrum árum. En hver getur gleymt málinu með David Beckham og Rebeccu Loos? Victoria ákvað að standa við bakið á sínum manni. Svo virðist sem Cher- yl ætli að gera slíkt hið sama. Miðað við þessar myndir getur ekki nokk- ur manneskja skilið af hverju Ashley myndi nokkurn tímann halda framhjá Cheryl. Við sundlaugarbakkann Cheryl Cole nýtur sín í sólinni á marbella á Spáni og spjallar við eiginmann sinn, ashley Cole. Flott stúlka Cheryl Cole er svakaskutla. Hún hefur ákveðið að láta reyna á hjónaband sitt á ný eftir að fréttir um framhjá- hald eiginmanns hennar komu upp á yfirborðið fyrr á árinu. Flúði land Cheryl Cole lét sig hverfa úr sviðsljósinu eftir að hún frétti af framhjáhaldi ashleys. heppinn gaur mörgum finnst ashley Cole virkilega hafa klúðrað sínum málum er hann hélt framhjá eiginkonu sinni. Þau eru nú tekin saman á nýjan leik og eru að vinna úr sínum málum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.