Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2008, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2008, Blaðsíða 10
Ítalska dagblaðið 24 minuti setti fyrir mistök Slaven Bilic, landsliðs- þjálfara Króata í fótbolta, á forsíðu með fyrirsögninni MORÐINGI. Forsagan er sú að Vlado Taneski, blaðamaður í Makedóníu, var hand- tekinn um helgina fyrir morð á tveim- ur ítölskum konum. Ítalska lögreglan fór með rannsóknina og tengdi fljót- lega Taneski við málið. Enda skrifaði hann mjög ítarlega um morðin í sínu blaði. Komu þar fram miklar upplýs- ingar og meiri en hafði verið gefið út af lögreglunni. Hann var handtekinn um helgina eftir að DNA úr honum og sæði fannst á þeim látnu. Í fangelsinu framdi hann sjálfsmorð, fannst í klefa sínum á sunnudag með höfuðið í vatnsfötu. Ítalska blaðið hafði fjallað um málið og þegar það lak út að morðinginn hefði framið sjálfsmorð var hann sett- ur á forsíðu. En fyrir einhver stórkost- leg mistök var myndin af Slaven Bilic! Bilic er hár dökkhærður maður sem hefur verið mikið í heimspressunni undanfarið enda þjálfari Króatíu á Evrópumótinu í fótbolta. Taneski var lítill ljóshærður maður og eins ólíkur Bilic og nótt er ólík degi. Ritstjóri 24 minuti hefur beðist af- sökunar og komið með afsökunar- beiðni til handa Bilic. Hann sagði að ruglingurinn hefði orðið þannig til að blaðamaðurinn hefði verið að nið- urhala mynd af netinu þar sem orð- ið utrinski hafi orðið að jutarni, sem þýðir víst það sama í makedónsku. benni@dv.is a fimmtudagur 26. júní 200810 Fréttir DV erlendarFréttir ritstjorn@dv.is Elisabet Fritzl sem var lokuð inni í kjallara föður síns í 24 ár neitar að bera vitni gegn föður sínum. Hún segist einfaldlega ekki vera tilbúin að sjá hann aftur. Hún mun bera vitni frá sjúkrastofnun sem hún dvelur á og verður vitnisburðurinn sendur í dómsal gegnum netið. Vill ekki sjá föður sinn á ný „aðilar tengdir Josef munu ekki þurfa að vera í eigin persónu fyr- ir framan hann eða réttinn.“ Elisabet Fritzl sem var haldið fang- inni af Josef, föður sínum, í 24 ár í viðbjóðslegum kjallara, gat ekki borið vitni gegn föður sínum í gegnum netið í gær. Læknar sem annast Elisabetu sögðu hana ein- faldlega ekki tilbúna. Þótt hún verði ekki í sama her- bergi og faðir hennar í fyrirtökunni getur hún séð hann á skjánum fyr- ir framan sig. Hún gæti einnig þurft að svara spurningum frá Josef og hans lögfræðingum ef þeir vefengja hennar vitnisburð. Mamman neitar enn Fyrirtaka í málinu átti að hefjast í næstu viku að beiðni Elisabetar. Hún vildi sjá föður sinn á bak við lás og slá sem allra allra fyrst. Fyrir- tökunni hefur verið slegið á frest og það verða læknar sem ákveða hve- nær Elisabet verður tilbúin að tak- ast á við föður sinn enn á ný. Búist er við að Elisabet beri sinn vitnisburð frá stofnun þar sem hún dvelur ásamt sex börnum sínum. Börnum sem eiga Josef að föður og afa! Læknar vilja að Elisabet nái sér að fullu áður en hún tekst á við föð- ur sinn og fjölmiðla. Það yrði þá í fyrsta sinn síðan hún slapp úr prís- undinni fyrir tveimur mánuðum. Móðir Elisabetar, Rosemarie, neitar enn þann dag í dag að hafa vitað að maður hennar hafi lifað tvöföldu lífi. Rosemarie gefur sinn vitnisburð á sama tíma og Elisabet gefur sinn. Fritzl búinn að játa að hluta „Upptaka af þeim öllum verður birt í aðalmeðferð málsins en að- ilar tengdir Josef munu ekki þurfa að vera í eigin per- sónu fyrir framan hann eða réttinn,“ sagði Franz Cutka, talsmaður réttarins í St. Polten, þar sem réttarhöldin fara fram. Fjölmiðlar um allan heim hafa gríðarlegan áhuga á framvindu mála og líður varla sá dag- ur að fréttir tengdar Josef Fritzl séu ekki birtar. Réttarhöld- in fara engu að síð- ur fram á þessu ári. Ríkissaksóknari í Austurríki hefur staðfest að Josef Fritzl hafi játað að hafa haldið dóttur sinni fanginni í kjallara í húseign sinni. DNA hefur einnig staðfest að hann sé faðir eigin barnabarna. Rík- issaksóknari von- ar að Elisabet verði tilbúin að bera vitni í næsta mánuði. Fritzl-málið komst fyrst upp þegar Kerstin, dóttir Elisabet- ar, varð alvarlega veik og var flutt á sjúkrahús. Læknar fundu eng- ar sjúkraskýrslur og óskuðu eftir móður unglingsins. Þá fyrst leyfði Josef dóttur sinni að fara úr kjallar- anum eftir 24 ár þar neðra. Hún út- skýrði málið fyrir lögreglunni sem handtók Josef í kjölfarið. BEnEdikt Bóas hinRiksson blaðamaður skrifar: benni@dv.is Elisabet Fritzl dóttur josefs var haldið nauðugri í 24 ár. Læknar segja hana ekki tilbúna að sjá föður sinn á ný. Mannvonska í sinni verstu mynd josef fritzl hefur játað að hafa haldið dóttur sinni fanginni í 24 ár og eignast með henni sex börn. Ítalskt dagblað gerði afdrífarík mistök á forsíðu í gær: Bilic kallaður morðingi Ekki morðingi Slaven Bilic er í rokkhljómsveit og er landsliðsþjálfari Króatíu. réttað í unglingamorði Nú stendur yfir í Englandi dómsmál gegn átta ungling- um sem sátu fyrir hinum 16 ára Eugene Attram og lömdu hann til bana. Vinur Attrams, Albert Egham ætlaði að koma vini sínum til bargar en uppskar 10 hnífstungur. Unglingarnir sem eru fyrir rétti eru í SUK-genginu. SUK-gengið hitti gengi Attrams og Eghams, TZ, á Lavender Av- enue og urðu mikil fjöldaslags- mál í kjölfarið. Milli 40 og 60 ungmenni slógust með kylfum og hnífum. Ashley Roockwood, 19 ára nemi, er talinn hafa veitt Attram banahöggið. Unglinga- morð eru orðin tíð í Englandi og krefst saksóknari lífstíðardóms yfir Roockwood. Mugabe ekki lengur riddari Elísabet Englandsdrottn- ing ákvað í gær að svipta Robert Mugabe, forseta Simbabve, riddaratign. Í til- kynningu frá breska utanrík- isráðuneytinu segir að meðal ástæðna sé að Mugabe noti ofbeldi til að ná sínu fram. Mugabe er undir mikilli pressu frá alþjóðasamfélag- inu eftir tíðan fréttaflutning um ofbeldi samkvæmt fyrir- mælum frá honum. shaq tekur kobe í nefið Nýverið fór myndbands- upptaka á veraldarvefinn þar sem tröllið Shaquille O´Neal „battlar“ yfir fyrrverandi liðsfé- laga sinn Kobe Bryant. „Battl“ er rímnastríð millum tveggja rappara á sviði en Kobe var ekki staddur í húsinu til að svara fyrir sig. Fram kom hjá Shaq að Kobe geti ekki unnið NBA-titilinn án hans. DV4117300407_nba_0.jpg Höf›abakka 9 (sama hús og Hreyfigreining) • Brasilískt súkkula›ivax • Frábærar líkamsme›fer›ir sem losa flig vi› appelsínuhú›, slit og slappa hú›! • Leirvafningar, andlitsme›fer›ir, för›un og fleira • FRÁBÆR TILBO‹ Panta›u tíma í síma 557 3939

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.