Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Side 2
fimmtudagur 3. júlí 20082 Fréttir DV Yfirvofandi hlaup í Núpsvötnum Vatnsborð Grænalóns fer hækkandi og hafa líkur á hlaupi í Núpsvötnum og ánni Súlu í Vestur-Skaftafellssýslu aukist. Al- mannavarnadeild ríkislögreglu- stjóra greinir frá þessu. Algengt er að rennsli í hlaupum sem þessum nái tvö þúsund rúm- metrum á sekúndu og eiga þau til að standa í fimm daga. Hámarks- rennslið verður oftast á öðrum degi hlaups. Í hlaupum úr Grænal- óni eiga árnar til að breyta farvegi sínum og svo kann að fara að leið- in inn í Núpsstaðaskóg lokist. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Stýrivaxtadagur Seðlabankinn tilkynnir ákvörðun um stýrivexti í dag. Greiningar- deild Landsbankans veðjar á að bankinn haldi stýrivöxtum óbreyttum um sinn í 15,5 prósentum, sem eru hæstu stýrivextir í Evrópu. Fréttaveitan Bloomberg birti spár átta greiningardeilda í gær. Fimm þeirra gera ráð fyrir óbreyttum stýrivöxtum, ein gerir ráð fyrir 25 punkta hækkun og tvær telja að vextir hækki um 50 punkta. Seðlabankinn mun einn- ig birta nýja verðbólgu- og þjóð- hagsspá í dag. Alexander Jóhannesson hóf í gær afplánun á 20 mánaða fangelsisdómi: Nágrannar geta sofið rótt Alexander Jóhannesson hóf í gær afplánun á 20 mánaða fangelsisdómi fyrir ýmis brot, meðal annars þrjár sérstaklega hættulegar líkamsárásir með hnífi. Nágrannar Alexanders við Melasíðu á Akureyri hafa því vænt- anlega sofið rótt í fyrsta sinn í langan tíma. Nokkrir nágrannar hans komu fram í kvöldfréttum RÚV í gær og undruðust af hverju Alexander fengi að ganga laus um götur bæjarins. Alexander hefur ekki setið auðum höndum. Hann gekk berserksgang í Grímsey fyrir viku, hótaði fólki lífláti vopnaður hnífi og slaghamri. Sér- sveitin á Akureyri var send á vettvang þar sem hann var handtekinn. Þá var mikið af fjölskyldufólki í Grímsey en þar var árlegt sjóstangveiðimót hald- ið. Þegar í ljós kom að Alexander ætti í hlut var sérsveitin ekki lengi að koma á staðinn og handtaka hann. Hrósaði einn sjónarvottur lögregl- unni fyrir skjót viðbrögð. Síðastiliðinn fimmtudag tók hann síðan þátt í hópslagsmálum fyrir framan fjölbýlishúsið þar sem hann býr á Akureyri, en þar var slegist með borðfótum, golfkylfum og öxi. Eftir slagsmálin var Alexander sleppt. Ná- grannar hans hafa fengið að kenna á ofbeldishegðun Alexanders og með- al annars var einum þeirra hótað með skrúfjárni í febrúar síðastliðn- um. Fréttablaðið greindi frá hópslags- málunum við Melasíðu og þar kom fram að lögreglan í bænum væri of fámenn til að sjá um slíkar aðstæð- ur. „Við vorum bara fimm á vakt en fengum tveggja manna liðsstyrk frá Húsavík og reyndum að taka þá sem verst létu,“ sagði Þórarinn Jóhannes- son, varðstjóri hjá lögreglunni á Ak- ureyri, í viðtali við blaðið. Þar kom einnig fram að allar línur voru rauð- glóandi hjá Neyðarlínunni meðan á slagsmálunum stóð. Nágrannarnir sögðu einnig að þeim hefði staðið ógn af manninum og vildu varla til þess hugsa að fara út úr húsinu. Undanfarna mánuði hefði Alexander verið mikið með fíkn- efnapartí og drykkjulæti og þannig haldið íbúum nánast í herkví. benni@dv.is Farinn frá Akureyri alexander jóhannesson er farinn frá akureyri þar sem hann hefur haldið nágrönnum sínum í herkví. Mynd Sigtryggur Ari Í það minnsta fimmtán einstaklingar sem voru í meðferð í Byrginu þegar starfsemi þar var lögð niður eru látn- ir. „Ég þekki í það minnsta tíu manns úr þessum hópi persónulega, sem hafa dáið af völdum áfengis á síðustu sex mánuðum,“ segir Jenný Gísla- dóttir, sem sjálf var vistmaður í Byrg- inu þegar starfsemi þar lognaðist út af í desember 2006. „Eftir að Kompás-þátturinn um Guðmund var sýndur varð algjört upplausnarástand á staðnum. Áfallið var slíkt fyrir þá fársjúku einstaklinga sem þarna voru að þeir kunnu engin önnur ráð en að fara aftur í lífshættu- lega neyslu á götunni,“ heldur Jenný áfram. Hún segir að fyrstu dagana í kjölfar þess að Byrgismálið komst í hámæli hafi ekkert sést til fagfólks á vegum heilbrigðis- eða félagsmála- yfirvalda. „Það er horft á okkur sem úrhrök. Einfaldast er að láta okkur deyja hjálparlaust af völdum sjúk- dómsins.“ Fimm hundruð manna hópur „Varlega áætlað held ég að tuttugu manns úr þessum hópi hafi látið lífið síðan Byrginu var lokað,“ segir Guð- mundur Jónsson, fyrrverandi forstöðu- maður Byrgisins. Fleiri fyrrverandi vistmenn staðfesta frásagnir Jennýjar og Guðmundar, en segja að í tilvikum þessa fólks fréttist varla af dauða þess. „Í þessum hópi voru Íslandsmeist- ararnir í drykkjusýki, fíknum og af- brotum. Það er löngu þekkt að það er ódýrara fyrir samfélagið að bjóða fólki í þessari stöðu aðstoð en að skilja það eftir á götunni. Á götunni fremur fólkið afbrot og ofbeldisverk,“ segir Jenný. Hún furðar sig á því að yfirvöld skuli enn ekki hafa séð ástæðu til þess að skapa meðferðar- eða búsetuúrræði fyrir þennan hóp fólks, sem sé ærið stór. Í Byrginu hafi verið pláss fyrir um fjörutíu manns hverju sinni og að jafn- aði hafi biðlistinn talið um hundrað manns. Samkvæmt upplýsingum frá SÁÁ telur sá hópur fólks sem hefur far- ið oftar en tíu sinnum í meðferð á Vogi um fimm hundruð manns. Hefst við í tjaldi Jenný segir að fyrir utan þau nokkru meðferðarpláss sem í boðu voru fyrir Byrgisfólkið hafi fátt komið til greina en að fara á götuna. „Konum sem orð- ið höfðu fyrir kynferðislegri misnotkun var boðið að fara á geðdeild til þess að vinna úr áfallinu. Við vorum hins vegar í stórum meirihluta sem aldrei urðum fyrir neinum svona skakkaföllum og vorum bara að reyna að koma okkur á kjölinn. Fyrir okkur var þetta auðvitað mikið áfall,“ segir hún. Þegar starfsemin í Byrginu lognað- ist út af náði Jenný að koma sér fyrir í húsnæði á Selfossi. Hún var ein úr litlum hópi fólks sem náði að kom- ast hjá því að enda á götunni. Hún hafði fengið heimild hjá barnavernd- aryfirvöldum til þess að hafa ellefu ára dóttur sína hjá sér, í fyrsta skipti í fleiri mánuði. „Þegar leið fram að vori í fyrra þoldi ég ekki meira af áreiti vegna Byrgismálsins og féll.“ Síðan þá hefur Jenný verið húsnæðislaus að mestu og meðal annars búið í tjaldi í Laugardalnum. Engin lausn fram undan Enn bólar ekki á búsetuúrræðum fyrir þennan hóp fólks sem dvaldi í Byrginu. Reykjavíkurborg og ríkið hafa samið við Heilsuverndarstöðina um rekstur á húsnæði fyrir langt leidda fíkla við Hólavað á Norðlingaholti. Sú framkvæmd er í uppnámi vegna þess að húseignirnar sem ætlaðar eru undir starfsemina tilheyra þrotabúi sem bíð- ur skipta. Enginn annar samningur um búsetuúrræði hefur verið gerður. Guðmundur Jónsson, fyrrver- andi forstöðumaður, var í sumarbyrj- un dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir margvísleg kynferðisbrot gegn skjól- stæðingum í Byrginu. Efnahagsbrota- deild ríkislögreglustjóra hyggst ljúka rannsókn á fjármálaóreiðu í Byrginu fyrir veturinn. „Á meðan á þessu gengur er þetta fólk, meira og minna fársjúkt, á göt- unni. Ég get lofað því að lögreglan var ekki fegin að fá okkur á götuna,“ segir Jenný. Sigtryggur Ari JóHAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is LÍF BYRGISFÓLKS ER EINSKIS VIRÐI Í það minnsta fimmtán fyrrverandi vistmenn í Byrginu hafa látið lífið á götum Reykja- víkur frá því að starfsemin lognaðist út af fyrir átján mánuðum. Jenný gísladóttir dvaldi í Byrginu. Hún segir stjórnvöld og samfélagið hafa brugðist og að svo virðist sem öllum sé sama um afdrif bágstaddra áfengissjúklinga. Óvissuþættir í yfirtöku Yfirtaka Kaupþings á Spron, sem samþykkt var af stjórnum beggja bankanna í fyrradag, er háð samþykki tveggja þriðju hluta eigenda Spron á hluthafafundi í ágúst. Greiningardeild Landsbank- ans á von á því að gengisþró- un Spron, Exista og Kaup- þings fram að hluthafafundi geti haft áhrif á vilja smærri hluthafa til að samþykkja yf- irtökuna. Rekstur Spron hefur verið erfiður og hátt í þriðjungur eiginfjár hefur tapast. Erlend- ur Hjaltason, stjórnarformað- ur Spron, sagði í fréttum í gær að ekki yrðu breytingar í stjórnendahópnum. Göngugarpur í borgarstjórn Borgarfulltrúinn Kjartan Magnússon er mikill göngugarp- ur og fer núna um helgina með starfsmannafélagi Orkuveitu Reykjavíkur í göngu kringum Langasjó. „Ég reyni að labba mikið fjöll þegar ég hef tíma frá pólitíkinni,“ segir Kjartan og bætir svo við að í fyrra hafi hann gengið frá Hvala- vatni yfir í Keflavík og þaðan á Látraströnd. Það er starfsmannafélag Orkuveitunnar sem stendur fyrir þessari göngu en félagið stend- ur fyrir ýmsum viðburðum fyrir starfsmenn fyrirtækisins enda orkumikið fólk. Jenný gísladóttir jenný var vistmaður og síðar starfsmað- ur í Byrginu. Hún hallast að því að samfélaginu þyki þægilegra að verst settu fíklarnir láti lífið í skúmaskotum borgarinnar en að vinna að úrræðum. DV-MYND SIGTRYGGUR „ég get lofað því að lög- reglan var ekki fegin að fá okkur á götuna.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.