Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Page 6
fimmtudagur 3. júlí 20086 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Gott veður um helgina Næstu helgi verður veðrið gott um land allt. Það verður þó hlýjast á suðvesturhluta landsins þar sem hitinn gæti farið eitt- hvað yfir 20 gráður. Fyrir austan verður eitthvað svalara en samt sem áður gæti hiti þar farið upp í 18 gráður. Einhverja þoku gæti gert að næturlagi við fjöll og litlar skúrir gætu orðið inn til landsins. Veðrið lítur mjög vel út um land allt og getur fólk því ferðast hvert á land sem er án þess að hafa áhyggjur af veðri. Vilja bora í Krýsuvík Hitaveita Suðurnesja fer fram á að Hafnarfjarðarbær geri breytingar á aðalskipulagi frá 2005 til 2025 svo hitaveitan geti hafið tilraunaboranir í Krýsuvík. Beiðnin var lögð fyrir skipulags- og byggingaráð Hafnarfjarðar síðastliðinn þriðjudaginn. Hita- veitan lagði fram greinargerð um fyrirhugaða framkvæmd borana en áður hafði skipulags- og bygg- ingaráð óskað eftir því í byrjun júní. Skipulags- og byggingaráð frestaði erindinu á milli funda en sá næsti verður haldinn 22. júlí. Ekki fokið í fólk Haraldur Þórarinsson for- maður Landsambands hesta- mannafélaga, segir að ekki hefði fokið í fólk á hestamannamóti þó svo að vindurinn hefði blásið mikið á þriðjudag. Hann segir ekkert geta toppað óveðrið sem var á Hvolsvelli á þriðjudags- kvöld. Opna þurfti íþróttahúsið svo að fólk kæmist í öruggt skjól og mikið af fólki nýtti sér það. Haraldur er þó bjartsýnn á veðrið það sem eftir lifir móts. „Veðrið er orðið gott núna og veðurspáin er fín. Ég hef ekki trú á öðru en að hér verði fjöldi fólks við góðar aðstæður í góðu veðri.“ Sunnlenskir sveitarstjórnarmenn eru ósáttir við að stjórnvöld leggi auk- in verkefni á Heilbrigðiseftirlit Suður- lands án þess að því fylgi nokkur fjár- veiting úr ríkissjóði. Samkvæmt nýrri reglugerð verð- ur eftirlit við verndarsvæði Þingvalla- vatns aukið og hefur það í för með sér aukakostnað fyrir Heilbrigðiseftir- lit Suðurlands. Nýja reglugerðin hef- ur ekki bara áhrif á Heilbrigðiseftirlit Suðurlands heldur veldur hún einn- ig auknum koastnaðarútgjöldum fyr- ir sumarbústaðaeigendur á svæðinu. Það er vegna þess að sumarbústaða- eigendur verða að endurnýja fráveitu sína til að draga úr köfnunarefnis- mengun við Þingvallavatn. „Reglugerðin var sett án þess að nokkurt fjármagn fylgdi henni,“ seg- ir Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmda- stjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. „Við erum ánægð með reglugerð- ina þar sem tilgangur hennar er að vernda Þingvallavatn sem er stórkost- legt vatn, það vantar bara fjármagn- ið til útfærslu á reglugerðinni,“ seg- ir Elsa. Reglugerðin mun auka álag á Heilbrigðiseftirlit Suðurlands sem hefur eftirlit með framkvæmd reglu- gerðarinnar enda er þetta nýtt verk- efni sem ekki er borið uppi af eftir- litsgjöldum eins og venja er með aðra eftirlitsskylda aðila. Samband sunn- lenskra sveitafélaga hefur beðið um fund með Þórunni Sveinbjarnardótt- ur umhverfisráðherra ásamt Heil- brigðiseftirliti Suðurlands en ekki hefur fengist svar frá ráðherra. Málið er af þeim sökum í biðstöðu þangað til svar frá ráðherra fæst. olivalur@dv.is Heilbrigðiseftirlit Suðurlands á eftir að auka eftirlit við Þingvelli: Fá ekki fé til verksins Við Þingvelli Þórunn Sveinbjarnar- dóttir hefur ekki veitt svar um fund. „Íslensk stjórnvöld þurfa ekki að óttast okkur,“ segir Leif Ivar Kristi- ansen, leiðtogi Hells Angels í Nor- egi, í samtali við DV. Samkvæmt hættumati greiningardeildar rík- islögreglustjórans er litið á tengsl vélhjólaklúbbsins Fáfnis MC við Vítisenglana í Noregi sem ógn við Ísland. Í greinargerð sem var kynnt fjölmiðlum á mánudaginn sagði orðrétt: Íslenski vélhjólaklúbbur- inn Fafner MC Iceland hefur nú gerst stuðningsklúbbur Hells Ang- els. Þar með hefur hópur manna, sem ítrekað hefur komist í kast við lögin hér á landi, stofnað til form- legra tengsla við skipulögð, alþjóð- leg glæpasamtök. Leif segir sam- tökin tilbúin í stríð vilji stjórnvöld stríð. Sannið misferli „Ég er mjög hissa á að íslensk stjórnvöld skuli segja þetta,“ segir Leif og varar enn fremur stjórnvöld hér á landi við því að hræra upp í ótta almennings gagnvart samtök- unum. Hann segir það grundvall- arforsendu að sanna glæpi á menn eða samtök áður en farið er að saka þau um að vera alþjóðleg glæpa- samtök. Þá bendir Leif á að það sé misjafn sauður í mörgu fé, auðvitað hafi menn innan samtakanna gerst brotlegir við lög, en það ætti ekki að kasta rýrð á samtökin í heild sinni frekar en menn dæmi heila þjóð vegna verknaða einstakra manna sem tilheyra henni. „Þið verðið hreinlega að sanna það,“ áréttar Leif um ásakanir grein- ingardeildar ríkislögreglustjórans. Mætum þeim af hörku „Mér þykir reyndar leitt að þeir skuli vera hræddir við okkur, við erum kurteisir menn og viljum bara ferðast um á mótorhjólunum okk- ar,“ segir Leif en hann er stofnandi Hells Angels í Noregi og forsprakki samtakanna í því landi. Leif gengst þó ekki við því að hann sé for- ingi þeirra þegar blaðamaður spyr hann, en neitar því ekki heldur. „Ef þeir vilja stríð getum við mætt þeim af fullri hörku,“ seg- ir Leif um hörku stjórnvalda í garð samtakanna hér á landi en bendir jafnframt á að það sé þó ekki vilji norsku Vítisenglanna. Aðspurður um Fáfnismenn segir hann þá efni- lega stráka en þeir séu ekki opin- berlega orðnir Vítisenglar þótt þeir eigi góða möguleika á því. Kom til Íslands „Mér líkaði mjög vel við Ísland þegar ég heimsótti landið,“ segir ForinGi HElls AnGEls tilbúinn í stríð Valur grettiSSon blaðamaður skrifar: valur@dv.is Jón trausti lúthersson fáfnismaðurinn og tilvonandi Vítisengillinn jón trausti var handtekinn þegar Vítisenglar reyndu fyrst að koma hingað til lands. leiðtogi norsku Vítisenglanna segir samtökin tilbúin í stríð sé það vilji stjórnvalda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.