Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Blaðsíða 7
DV Fréttir fimmtudagur 3. júlí 2008 7
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands á eftir að auka eftirlit við Þingvelli:
Fá ekki fé til verksins
Foringi Hells Angels
Leif sem kom hingað fyrir örfáum
árum. Þá var hann ekki stöðvaður
þrátt fyrir að lögreglan hafi lagt sig
í líma við að snúa meðlimum geng-
isins við til síns heima. Hann segir
að þvert á móti hafi lögreglan verið
mjög vinaleg á meðan hann dvaldi
hér á landi. Hann segist hafa not-
ið landsins gæða á meðan hann
dvaldi hér og hefur ekkert illt um
þjóðina að segja. Honum finnst
aftur á móti viðbrögð lögreglunnar
hafa verið heldur hörð þegar þeir
hafa komið í hópum. Eftir að þeim
var vísað úr landi í fyrra fóru þeir í
mál við ríkið.
Fimm sinnum fyrir dóm
„Þeir hafa dregið mig fimm
sinnum fyrir dóm og alltaf hef ég
gengið út sem frjáls maður,“ seg-
ir Leif um erfitt líf Vítisengilsins.
Ein af alvarlegri ákærunum sem
hann fékk var vegna smygls á þrjú
hundruð og fimmtíu kílóum af
hassi frá Danmörku til Noregs. Þá
var efnunum smyglað með húsbíl
og eldri hjón óku honum. Landa-
mæraverðir náðu efnunum og
voru níu einstaklingar ákærðir í
kjölfarið. Sjálfur þurfti Leif að dúsa
í gæsluvarðhaldi í þrettán mán-
uði þar til hann var dæmdur
í níu ára fangelsi. Síðan var
hann sýknaður af hæsta-
rétti Noregs.
Hinir átta fengu sam-
tals fimmtíu og sjö ára
fangelsisdóma vegna
glæpsins.
Hugsanlega til
Íslands
„Við erum fjöl-
skyldumenn,
eigum börn og
lifum venjulegu
lífi, en ég reyni
ekki að ljúga að
Íslendingum,
sumir Vítis-
englar hafa fengið dóma,“
segir Leif og talar ítrekað
um Vítisenglana sem stórt
bræðralag eða fjölskyldu.
Hann bendir jafnframt
á að Vítisenglar geri
menn ekki að glæpa-
mönnum. Það sjá
mennirnir sjálfir um.
Aðspurður hvort
von sé á norskum Vít-
isenglum til landsins
segir hann aldrei að
vita – vistin síðast
hafi að minnsta
kosti verið
notaleg.
„Við erum fjölskyldumenn, eigum börn
og lifum venjulegu lífi, en ég reyni ekki að
ljúga að Íslendingum, sumir Vítisenglar
hafa fengið dóma.“
Foringi Hells Angels í Noregi, Leif Ivar Kristiansen, segir stjórn-
völd ekki þurfa að óttast Vítisenglana. Á mánudaginn sagði
greiningardeild ríkislögreglustjórans að Vítisenglarnir væru
alþjóðleg glæpasamtök. Ítrekað hefur liðsmönnum þeirra
verið vísað úr landi og segir Leif í viðtali við DV að vilji
stjórnvöld stríð geti samtökin farið í stríð við þau.
Leiðtogi Vítisenglanna leif ivar
Kristiansen er leiðtogi norsku Vítisengl-
anna og leiðbeinir fáfni eftir grýttum
slóðanum til fullgildingar samtakanna.
mynd tOm E. ØStHuuS