Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Page 8
fimmtudagur 3. júlí 20088 Fréttir DV valgeir örn ragnarsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is VINSÆLDAHRUN Á FYRSTA ÁRI Stuðningur við ríkisstjórnina hef- ur hríðfallið síðustu sjö mánuði og mælist nú aðeins 52 prósent. Ríkis- stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylk- ingar er rétt rúmlega ársgömul og þegar hún var mynduð í maí á síðata ári, naut hún stuðnings um það bil 83 prósenta þjóðarinnar. Síðustu þrjár ríkisstjórnir sem Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sóknarflokkurinn mynduðu, misstu aldrei jafnmikinn stuðning á fyrsta starfsári sínu líkt og þessi ríkisstjórn hefur gert. Þegar litið er lengra aftur er algengt að um það bil fimmti hver kjósandi hafi snúið baki við ríkis- stjórn á fyrsta starfsári hennar. sigldu lygnan sjó Stuðningurinn við ríkisstjórn- ina hélst mjög hár fyrsta hálfa árið sem hún starfaði. Í byrjun þessa árs mældist stuðningur við ríkisstjórn- ina 77 prósent en hefur hríðfallið eftir það. Í mars var stuðningurinn kominn niður í 71 prósent. Frá því í mars hefur stuðningur við stjórn- ina minnkað um 16 prósentustig og segjast nú rösklega 55 prósent í úr- taki Capacent-Gallup styðja núver- andi ríkisstjórn. Þegar borin eru saman fyrstu starfsár síðustu ríkisstjórna kemur í ljós að vinsældahrun núverandi ríkisstjórnar á einu starfsári er það mesta sem mælst hefur í í tæpa tvo áratugi. Mánuði eftir að síðasta rík- isstjórn Sjálfstæðis- og Framsókn- arflokks var mynduð, naut hún stuðnings 62 prósenta þjóðarinn- ar. Þrettán mánuðum síðar mæld- ust vinsældir stjórnarinnar hins veg- ar um 42 prósent og höfðu því dalað um rúman þriðjung á einu ári Ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks sem var við völd á ár- unum 1999 til 2003 sigldi mjög lygn- an sjó á sínu fyrsta starfsári. Þannig mældist stuðningurinn við stjórnina í júní 1999 66 prósent en hafði dal- að lítillega niður í 63 prósent eftir að fyrsta starfsárinu lauk. steingrímur á metið Fyrsta ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks sem var við völd á árunum 1995 til 1999 naut mikilla vinsælda á fyrstu mánuðum sínum. Í júlí árið 1995 naut hún stuðnings um 70 prósenta kjósenda, en í upp- hafi sumars ári síðar höfðu vinsældir hennar dalað nokkuð og mældust 52 prósent. Í könnun sem DV gerði á vin- sældum ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks í júní árið 1991, skömmu eftir að hún hafði tek- ið til starfa, mældist fylgi hennar 53,3 prósent. DV gerði aðra könnun í júlí árið 1992 og þá mældust vinsældir hennar aðeins 40,8 prósent. Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar sem var við völd á ár- unum 1988 til 1991 er sú ríkisstjórn sem tapað hefur vinsældum sín- um hvað mest á fyrsta starfsárinu. Þegar ríkisstjórnin lagði úr vör voru það um það bil 65 prósent þjóðar- innar sem studdu hana. Á einu ári kolféll stuðningurinn niður í 28,3 prósent sem samsvarar því að meiri- hluti stuðningsmanna stjórnarinnar í upphafi hafði snúið baki við henni ári síðar. Ríkisstjórnin náði þó að halda velli. samansafn af fólki í ráðherrastólum „Það dylst engum að ríkisstjórn- in hefur tapað tiltrú meðal almenn- ings ótrúlega hratt. Henni hefur tek- ist að skilja alveg ótrúlega lítið eftir sig á þessu fyrsta ári sínu og um- ræðan einkennist af því hvað hún er verklaus og ráðalaus,“ segir Stein- grímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna. Steingrímur bendir á að í vaxandi mæli sé ríkisstjórnin ósam- stæð og það rembingstal og hroki sem einkenndi hana í upphafi, sé að koma nú niður á henni. „Ég hef sagt að ef hún verður ekki farin að ná einhverjum tökum á ástandinu í haust má hún fara að vara sig. Það er margt í þessu ástandi sem minn- ir mig á sama tímabil árið 1988 þeg- ar ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar fór að leysast upp. Þessi hópur er frekar samansafn af fólki í ráðherrastólum heldur en ríkisstjórn.“ Pirraður geir Guðni Ágútsson, formaður Fram- sóknarflokksins, tekur í sama streng. „Þjóðin skynjar að þetta er ekki sam- stæð ríkisstjórn. Menn tala að baki hver öðrum og fólk finnur þetta gríð- arlega ráðaleysi. Hún kann ekki að fást við þetta vonda veður í efna- hagsmálum. Bæði fyrirtæki og ein- staklingar eru komnir á helj- arþröm og ríkisstjórnin fótar sig ekki við þessar aðstæður. Geir Haarde víkur sér undan spurn- ingum um alvöru máls- ins og verður pirraður. Ingibjörg hélt að þetta samstarf yrði eintóm sæla og hún er að byrja að gjalda fyrir það.“ Aðspurður hvort hann telji að ríkistjórn- in muni sitja út tíma- bilið svarar hann: „Ég vona bara svo sannar- lega ekki.“ „Þegar borin eru sam- an fyrstu starfsár síð- ustu ríkisstjórna kemur í ljós að vinsældahrun núverandi ríkisstjórnar á einu starfsári er það mesta sem mælst hefur í tæpa tvo áratugi.“ Stuðningurinn við ríkisstjórnina hefur hríðfallið á þessu ári. Það þarf að leita tuttugu ár aftur í tímann til að finna ámóta vinsældahrun á fyrsta starfsári ríkisstjórnar. Þrjár ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks misstu mest fjórðung stuðningsmanna sinna á fyrsta starfsárinu. Núverandi ríkisstjórn hefur hins vegar tapað meira en þriðja hverjum stuðningsmanni á einu ári. Aðgerðaleysi hennar er um að kenna, segir formaður vinstri grænna. Davíð oddsson ríkisstjórnir Sjálfstæðis- flokks og framsóknarflokks undir forystu hans misstu aldrei jafnmikið fylgi á fyrsta starfsári og núverandi ríkisstjórn hefur gert. geir og ingibjörg ríkisstjórn þeirra hefur misst miklar vinsældir á fyrsta starfsári sínu. fyrsta ár annað ár vinsælDir ríkisstjórna íslanDs – eftir fyrsta starfsár frá árinu 1987 til 2008 ríkisstjórn sjálfstæðisflokks og samfylkingar júlí 2007: 83% júní 2008: 55% ríkisstjórn sjálf- stæðisflokks og Framsóknarfloks 2003-2007 júlí 2003: 62% júlí 2004: 42% ríkisstjórn sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks 1999–2003 júní 1999: 66% júní 2000: 63% ríkisstjórn sjálfstæðis- flokks og Framsóknar- flokks 1995-1999 júlí 1995: 70% apríl 1996: 52% ríkisstjórn sjálfstæð- isflokks og alþýðu- flokks 1991–1995 júní 1991: 53,3% júlí 1992: 40,8% ríkisstjórn Framsókn- arflokks, alþýðu- flokks, alþýðubanda- lags og Borgaraflokks 1988-1991 júní 1988: 65,1% júlí 1989: 28,3% ríkisstjórn sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og alþýðuflokks 1987–1988 júní 1987: 62,6% júlí 1988: 40% 100%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.