Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Page 10
fimmtudagur 3. júlí 200810 Fréttir DV
Líknarmorðinginn kusch
Þýski prófessorinn Roger Kusch hefur lengi barist fyrir rétti
fólks sem haldið er banvænum sjúkdómi til að fá aðstoð við
að binda enda á eigið líf. Á þriðjudaginn sýndi hann mynd-
band á blaðamannafundi sem olli miklum óróa í Þýskalandi.
Myndbandið sem er um níu klukkustundir af viðtölum við
hina 79 ára Bettinu Schardt, er tekið áður en hann aðstoðaði
hana við sjálfsmorð.
Þýskur íhaldsmaður og fyrrverandi
stjórnmálamaður, Roger Kusch,
steig fram fyrir skjöldu fyrir stuttu
sem talsmaður líknardauða sem
lengi hefur verið afar umdeilt mál-
efni. Kusch er ekki einungis yfir-
lýstur stuðningsmaður líknardrápa
heldur varð hann frægur síðastlið-
inn vetur fyrir „dælinn“ svokallaða
sem gerir fólki kleift að enda sitt
eigið líf með því að þrýsta á einn
hnapp. Nú stígur hann aftur fram
á sjónarsviðið með myndband
sem sýnir hann aðstoða konu fyrir
sjálfsvíg.
Deilur um dælinn
Sjálfsvígsvélin dælir kalíumklór-
íði í þann sem kosið hefur að nýta
sér þessa tækni. Hönnun og smíði
dælisins miðar að því að sniðganga
lög sem banna fólki að aðstoða aðra
við að fremja sjálfsvíg. Ef fjöldafram-
leiðsla hefst á dælinum þykir líklegt
að Þýskaland verði vinsæl endastöð
fólks sem af einhverjum ástæðum
kýs að binda enda á líf sitt. Hingað
til hefur straumur þess fólks legið
til Sviss, en þar hefur verið löglegt
að veita aðstoð við sjálfsvíg frá ár-
inu 1942, að því skilyrði uppfylltu
að viðkomandi hafi ráðfært sig við
lækni og sé að fullu ljósar afleiðing-
ar ákvörðunar sinnar.
Eldfimt málefni
Gerhard Strate, varnarlögfræð-
ingur frá Hamborg, sagði fyrr á ár-
inu að með því að lána dælinn væri
ekki gengið í bága við þýsk lög. „Svo
fremi sem sjúklingur er með fullri
meðvitund er ekki ólöglegra að
lána honum tækið frekar en ef um
eldhúshníf eða rakvélarblað væri
að ræða. Það verður fyrst ólöglegt
ef viðkomandi sjúklingur biður ein-
hvern annan að þrýsta á hnappinn,“
sagði Strate.
Líknarmorð hafa alla tíð verið
sérstaklega eldfimt málefni í Þýska-
landi. Mörgum í landinu hryllir við
tilhugsuninni um líknardráp. Á tím-
um Hitlers voru í kringum hundrað
þúsund andlega skertir einstakl-
ingar eða fólk með ólæknandi sjúk-
dóma drepin.
Bettina Schardt sagðist ekki
þjást
Myndband sem sýnir Kusch að-
stoða 79 ára konu fyrirfara sér hef-
ur skapað miklar umræður í Þýska-
landi. Kusch tók níu klukkustundir
upp á myndband af samtölum sín-
um við hina ókvæntu og barnlausu
Bettinu Schardt. Hún sagði þar að
hún gæti ekki hugsað sér að fara á
elliheimili. Samt sem áður var hún
ekki með banvænan sjúkdóm og
hún sagðist í rauninni ekkert þjást.
Hann aðstoðaði konuna með því að
segja henni hvernig hún gæti útbú-
ið banvænan kokkteil úr róandi lyfj-
um og malaríutöflum. Hann yfirgaf
svo íbúð hennar stuttu áður en hún
dó.
Ógeðslegur áróður
Það er ólöglegt að aðstoða ein-
hvern við að fremja sjálfsvíg í
Þýskalandi. Til þess að komast hjá
dómsmáli aðstoðaði Kusch hana
ekki við að fá lyfin sem hún þurfti.
Dómstóll rýnir nú í málið en frétta-
myndir af myndbandinu hafa birst
í fjölmiðlum um gervallt Þýskaland
frá því á þriðjudag. „Það sem Kusch
gerði var ekkert annað en ógeðs-
legur áróður sem á ekkert skylt við
stjórnmál,“ sagði heilbrigðisráð-
herrann Ulla Schmidt.
Hert lög
Umræðan er mikil og lögin í
flestum löndum eru ennþá á gráu
svæði. Menn eru ekki allskostar
sammála um það hversu langt má
ganga í líknardrápum. Að aðstoða
sárþjáða manneskju, sem á sér
enga lífsvon eða gera henni kleift
að enda líf sitt er víðast hvar ólög-
legt. Læknaeiðurinn, eins og hann
er víða túlkaður, kemur í veg fyrir
að læknar megi aðhafast í slíkum
málum og ef nánustu aðstandend-
ur leggja dauðvona ættingja lið er
hægt að sækja þá til saka.
Joerg-Dietrich Hoppe, forseti
þýska heilbrigðissambandsins, for-
dæmdi Kusch. „Það er hræðilegt að
sjá hvernig sjálfselskur efasemdar-
maður getur notað einmana gamla
konu til þess að öðlast athygli og
viðurkenningu,“ sagði Hoppe við
þýska blaðið Bild.
Frakkland hefur rýmkað lög
Málið hefur gert það að verk-
Þær aðferðir sem notaðar hafa
verið til þess að knýja fram upplýs-
ingar hjá föngum í Guantanamo-
herstöðinni á Kúbu hafa verið afar
umdeildar. Aðferðirnar sem notast
hefur verið við í fangelsinu eru upp-
runnar frá Kínverjum en Bandaríkin
hafa lengi gagnrýnt Kínverja fyrir að
vera ómannúðlegir.
Bandaríski flugherinn rannsakaði
pyntingaraðferðir Kínverja í Kóreu-
stríðinu og gaf út skýrslu um þær árið
1957. Kínverjar beittu aðferðunum til
þess að þvinga fram falskar játningar
hjá bandarískum hermönnum. Nú
hefur komið í ljós að mikið af þeim
aðferðum sem notaðar voru í Guant-
anamo voru byggðar á skjali flug-
hersins frá 1957. Yfirheyrsluaðferðir
í Guantanamo eru því byggðar á að-
ferðum Kínverja. CIA hefur ennþá
heimildir frá Bush Bandaríkjaforseta
til þess að notast við þessar „óhefð-
bundnu“ aðferðir.
Skýrslan er frá 1957 og fjallar um
tilraunir Kínverja til þess að þvinga
játningar frá stríðsföngum. Alfred D.
Biderman, félagsfræðingur sem þá
vann fyrir flugherinn, tók bandaríska
stríðsfanga í viðtöl eftir að þeir komu
aftur frá Norður-Kóreu. Sumar yfir-
heyrslur Kínverja voru teknar upp
á myndband og þær svo sýndar op-
inberlega. Oftast voru játningarnar
falskar og fengnar með því að pynta
fangana til hlýðni.
Demókratinn Carl Levin sagði
skjalið frá 1957 vera grunninn sem
notaður var fyrir aðferðir í Guant-
anamo. „Það sem er mest sjokker-
andi við þessi skjöl er það að þau
fjölluðu um það hvernig ætti að knýja
fram falskar játningar,“ sagði Levin
„Fólk segir að við þurfum sönnunar-
gögn, það er rétt, en við þurfum ekki
fölsk sönnunargögn.“
Geðlæknirinn Robert Jay Lifton,
sem rannsakaði einnig aðferðir Kín-
verja í Kóreustríðinu, var brugðið
þegar hann komst að því að í Guant-
anamo hefði verið notast við sömu
aðferðir. „Þetta er 180 gráðu beygja,“
sagði hann við vefritið Times. Tals-
maður varnarmálaráðuneytis Banda-
ríkjanna, Patrick Ryder, sagðist ekk-
ert geta tjáð sig um skjalið sem slíkt
en hann bætti því við að allir fangar
fengju mannúðlega meðferð.
Pyntingaraðferðir sem Kínverjar notuðu á bandaríska fanga notaðar í Guantanamo:
kenndu Bandaríkja-
mönnum að pynta
Guantanamo Yfirheyrsluaðferðir sem
notaðar hafa verið í guantanamo eru
fengnar frá Kína.
Lamin með
pólskri pylsu
Gregory Allen Praeger, 46
ára maður á Flórída, var að elda
þegar lögreglan kom heim til
hans. Móðir hans hafði hringt
á lögregluna og látið vita af því
að hann hefði verið fullur og að
rífast við hana þegar hann lamdi
hana með pólskri pylsu í höfuð-
ið. Mamma hans særðist og var
henni komið á spítala. Praeger
neitaði ekki ásökunum móður
sinnar, sagði lögreglan. Hann
þarf að borga 500 dollara, eða
andvirði tæpra 39 þúsund króna,
í sekt fyrir uppátækið.
JÓN BJARKI MAGNÚSSON
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Bettina Schardt Naut
aðstoðar við að binda
enda á eigið líf.
Blaðamannafundur roger Kusch sýnir
upptöku með viðtölum við Bettinu áður
en hún gengur á vit örlaganna.
Roger Kusch Hefur verið
harðlega gagnrýndur, enda
ekki um líknardauða að
ræða hjá Bettinu.