Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Blaðsíða 11
DV Fréttir fimmtudagur 3. júlí 2008 11
Líknarmorðinginn kusch
mótmæla olíuverði
Flutningabílstjórar í Bretlandi
halda áfram að mótmæla stöðugt
hækkandi olíuverði. Í gær keyrðu
lestir flutningabíla til London þar
sem mótmælin fóru fram. Mót-
mælin eru þau seinustu í syrpu
mótmæla sem bílstjórar í Bretlandi
hafa skipulagt vegna hækkandi
olíuverðs. „Við erum á leiðinni
vegna þess að við viljum koma
skilaboðum okkar á framfæri“ sagði
Sharon Knight sem var á leið til
London ásamt eiginmanni sínum
Peter sem keyrði frá Kent.
Birni bjargað
Starfsmaður í þjóðgarði hætti lífi
sínu þegar hann bjargaði birni frá
drukknun. Starfsmaðurinn, sem
heitir Adam Warwick, sá að dýrið
var í vanda, afklæddi sig og stökk
út í þar sem hann tók björninn
stóra í björgunarsund. Björninn
hafði verið skotinn með deyfiefni
og hefði því drukknað ef War-
wick hefði ekki bjargað honum.
Eftir björgunina var dýrinu ekið
aftur út í skóg nálægt Lake City,
því heilsaðist vel og hljóp af stað á
sínar heimaslóðir.
neyðarlög í mongólíu
Neyðarlög voru sett í Ulan Bator,
höfuðborg Mongólíu. Andstæðing-
ar ríkisstjórnarinnar eru óánægð-
ir með kosninganiðurstöður og
hafa mikil mótmæli átt sér stað í
borginni. Lögregla hefur reynt að
stöðva mótmælendur sem kveiktu
í aðalhúsnæði ráðandi flokks
MPRP. Neyðarlögin þýða það að
mótmæli eru bönnuð í borginni og
öryggislögregla getur notað tára-
gas og gúmmíkúlur til að stöðva
þau. 220 óbreyttir borgarar hafa
slasast og fjórir látist.
um að mörg þýsk fylki reyna að
sporna við þróuninni með því
afgreiða ný lög. Lögin myndu
gera það að verkum að fólk sem
aðstoðaði við sjálfsvíg gæti ver-
ið dæmt í fangelsi í allt að þrjú
ár. Aðrir hafa bent á mál frönsku
konunnar Chantal Sebire, sem
var neitað um réttinn til að deyja.
Þrátt fyrir að Frakkland hafi
rýmkað lög sem snúa að líknar-
drápum úrskurðaði dómstóll þar
í landi gegn beiðni Sebire. Se-
bire þjáðist af sjaldgæfu krabba-
meini í nefholum sem olli mikilli
vansköpun í andliti hennar. Hún
framdi sjálfsvíg á eigin spýtur
þremur dögum seinna.
Líknardráp ódýrara en að lifa
og kveljast
Mál sem tengjast líknardráp-
um virðast skjóta upp kollinum
hvar sem er í heiminum þessi
misserin. Fertug nýrnaveik kona á
Indlandi hefur sóst eftir því að fá
að deyja. Hún og maðurinn henn-
ar hafa skrifað beiðni um líknar-
dauða til héraðsdóms North 24-
Paraganas í Bengal á Indlandi.
Swapna Das og eiginmaður henn-
ar Biswanath hafa verið gift í yfir
fimm ár. Þau ákváðu að enda líf
sitt eftir að þau sáu fram á það
að geta ekki borgað fyrir læknis-
kostnað Das sem var greind í jan-
úar síðastliðnum. Biswanath segir
að þau séu háð aðstoð nágranna
við umönnun Das.
Samferða í dauðann
Þau hafa skrifað bréf í allar átt-
ir og eitt til forsætisráðherra lands-
ins en enginn kom til bjargar. Þá fór
Swapna að íhuga líknardráp. „Ég
mun ekki láta hana gera það eina
og hef ákveðið að verða samferða
henni í þetta síðasta ferðalag,“ sagði
Biswanath. Fylkisstjórinn Pravat
Misra sagði að hann ætti ennþá
eftir að fá bréfið en hann væri að
bíða eftir því. „Ég hef sett saman lið
lækna sem verður sent á staðinn til
að skoða málið,“ sagði Pravat Misra
við vefritið Express India.
Komdu til okkar,
taktu með
eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór
Þumalína
fyrir þig og þína “efst á Skólavörðustígnum”
Skólavörðustíg 41, 101 Reykjavík. Sími 551 2136.
www.thumalina.is
Soothing Melodies to Calm and Relax a Child
Lullabies, Classical & Traditional Music
Quiet-Time Guide Included
™
Fjölbreytt og falleg ungbarnatónlist.
Tilvalin gjöf!
“Peaceful Baby” er rólegur geisladiskur með
ljúfri tónlist sem róar barnið
Fæst hjá Þumalínu og Fífu.
cd auglysing peaceful baby:Layout 1 6/29/08 11:30 PM Page 1
„Dælir“ Kusch roger
Kusch hefur verið ötull
talsmaður líknardauða.