Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Síða 12
fimmtudagur 3. júlí 200812 Neytendur DV Lof&Last n lofið fær ísbúðin á Hagamel. Þar er hægt að fá besta ísinn í bænum, hinn svokallaða „gamla ís“. Hann er búinn til úr mjólk en ekki rjóma svo hann er ekki eins fitandi. Hann hefur líka verið kallaður „kaldi ísinn“ því hann er jafnkaldur og frostpinni. n lastið fá Ömmu- kleinuhringir. Viðskiptavinur fór í Krónuna og keypti bakka með tíu súkkulaði- kleinuhringjum. Bakkinn kostaði 550 krónur. Viðskipta- vinurinn velti því fyrir sér hvort hann ætti frekar að safna fyrir utanlandsferð. Sæbraut 177,40 193,80 Bensín dísel Skúlagötu 175,70 192,20 Bensín dísel Suðurströnd 177,40 193,80 Bensín dísel DDalvegi 175,60 192,10 Bensín dísel Melabraut 159,20 175,20 Bensín dísel Salarvegi 175,70 192,20 Bensín dísel Ártúnshöfða 177,40 193,80 Bensín díselel d sn ey t i Íslendingar neyta meiri transfitusýra en hinar Norðurlandaþjóðirnar. Í New York eru trans- fitusýrur nú með öllu bannaðar í matvælum. Siv Friðleifsdóttir hefur ekki gefist upp á bar- áttunni gegn þessari heilsuspillandi fitu og vonast til að við förum að ráði Dana. Mikill verðmun- ur á tjöldum gerð var könnun á því hvað tveggja manna tjald kostar og talsverður munur er á verðinu. Sums staðar voru tveggja manna tjöld ekki til. Transfitusýrur myndast þegar olía, jurtaolía eða fiskiolía, er að hluta til hert. Vetni er dælt gegnum olí- una og þannig fær hún eiginleika hertrar fitu og þránar síður. Þannig geymast þær vörur lengur sem inni- halda herta fitu. Ómettaðar fitu- sýrur eru hins vegar hollar og lífs- nauðsynlegar. Þær fáum við úr fiski, grænmeti og hnetum. Transfitusýr- ur eru mikil ógn fyrir heilsuna, þær hafa verri áhrif á heilsuna en mett- aðar fitusýrur og auka til muna lík- urnar á hjarta- og æðasjúkdómum. Þær hækka slæmt kólesteról í blóði og lækka góða kólesterólið. Magn transfitusýru í olíu og fitu ætti ekki að fara yfir tvö grömm á dag. Bannað í New York Transfitusýrur eru nú með öllu bannaðar í New York. Fyrir fimm árum voru sett lög í Danmörku þess efnis að olía og fita í unnum mat- vælum mætti ekki vera meira en tvö prósent transfita. Danmörk var fyrsta landið í heiminum sem leit á takmörkun transfitusýra í mat sem mikilvægt lýðheilsumál. Árið 1995 var meðalneysla Ís- lendinga á transfitusýrum hæst, eða 5,4 grömm á dag, meðal þeirra 13 Evrópulanda sem könnun var gerð á. Þó hefur neysla transfitusýra minnkað á Íslandi síðan 1995, en eins og kom fram í rannsókn Mann- eldisráðs á mataræði Íslendinga árið 2002 var neysla transfitusýra komin að meðaltali í 3,5 grömm á dag. Transfitusýrur eru algengar Varast ber að borða mikið af þeim matvörum sem innihalda trans- fitusýrur, en þær eru mjög algeng- verðmunur á Tjöldum Tveggja manna tjöld Útilíf Holtagörðum: 12.900 krónur Ellingsen: 19.250 krónur Hagkaup Holtagörðum: 4.990 krónur Þriggja manna tjöld Intersport: 12.990 krónur Húsasmiðjan Skútuvogi: 3.990 krónur AuðveldArA heimA „Það gerist allt miklu hraðar í allri þjónustu á íslandi, kannski er það út af stressinu í þjóð- félaginu,“ segir Kári Árnason, atvinnumaður í knattspyrnu, en hann býr í danmörku. „Það er hægt að fá fólk með sér í lið til að vinna hraðar í hlutunum. Það tekur allt svo mikinn tíma hérna úti. Heima er allt er miklu minna og léttara og það er auðveldara að beygja reglurnar.“ neytendur@dv.is umSjón: ÁStrún friÐBjÖrnSdóttir Neyte dur BARIST GEGN óhollRI fITu ásTrúN friðBjörNsdóTTir blaðamaður skrifar astrun@dv.is Kleina Ef kleinur eru steiktar upp úr hertri fitu innihalda þær transfitusýrur. ar í unnum matvörum eins og kexi, frönskum kartöflum, djúpsteiktum skyndibitamat, kartöfluflögum, ör- bylgjupoppi, kökum, súpum, kakó- dufti og öðrum þurrvörum. Þessar matvörur innihalda margar hverj- ar hálfherta olíu. Á Íslandi er ekki skylda að merkja transfitusýrur utan á pakkningum en á ensku er talað um „partially hydrogenated oil“ og á dönsku heita þær „delvist hærdet olie/fedt“. Blátt bann Siv Friðleifsdóttir þingmaður lagði fram tillögu um reglur vegna transfitusýra á Alþingi í vetur og lagði hún til að við færum dönsku leiðina. Tillagan fór ekki í hefð- bundna vinnslu vegna þess að rík- isstjórnarflokkarnir lögðu mesta áherslu á að ná ráðherrafrumvörp- unum í gegnum þingið. Siv ætl- ar þó að endurflytja málið í haust. „Ég vona að það gefist tími á þing- inu til að klára þetta helst næsta vet- ur því þá gætum við farið að vinna eftir þessum nýju reglum. Að vísu yrði gefinn aðlögunartími fyrir mat- arinnflytjendur og -framleiðendur, en því fyrr því betra,“ segir Siv. „Við erum að fara í rétta átt en Alþjóða- heilbrigðisstofnunin mælir með að neyslan fari ekki yfir 2 prósent á dag. Við neytum meiri transfitusýra en hinar Norðurlandaþjóðirnar,“ bætir Siv við. hætta á sjúkdómum Siv bendir á að ef neytt sé meira en 5 gramma af transfitusýrum á dag aukist hættan á hjarta- og æða- sjúkdómum um 25 prósent. Á Ís- landi er hægt að fá það magn í einni máltíð. „Það er eftirsóknarvert að verja þann hóp sem við vitum að er mikið að neyta þessara vara, eins og börn og unglingar,“ segir Siv. „Við getum varið okkur að hluta til með því að taka lýsi, það minnkar að ein- hverju leyti áhrif transfitusýranna og við getum valið mjúkar olíur frekar en harða fitu. Ef okkur tekst að minnka neysluna á transfitusýr- um á Íslandi verður ávinningurinn geysilega mikill, bæði aukast lífs- gæði fólksins og við gætum komið í veg fyrir ótímabær dauðsföll fjölda Íslendinga sem fengju ekki æða- og hjartasjúkdóma og þannig sparað fjármagn í heilbrigðiskerfinu,“ segir Siv að lokum. skyndibitinn óhollastur Solla hjá Himneskri hollustu bendir á hvað er hægt að fá sér sem er alveg laust við transfitusýrur. „Lärabar er rosalega sniðugt, laust við alla viðbætta fitu og getur kom- ið gjörsamlega í staðinn fyrir snakk. Það er hægt að vera sniðugur og baka, ég er viss um að þetta hvet- ur fólk til að búa frekar til sitt eig- ið. Ég er með fína brauðuppskrift á speltpokunum mínum og í því er ekki einn dropi af olíu. Við seljum líka þurrsteikt buff með engri við- bættri olíu,“ segir Solla. „Vonandi á Lýðheilsustöð eftir að samþykkja að við steikjum upp úr kaldpressaðri kókosolíu sem hefur engar trans- fitusýrur. Ég held að fólk fari núna að opna betur augun og skoða hvað það er að setja ofan í sig. En það allra óhollasta í þessu samhengi er þessi djúpsteikti og brasaði skyndi- biti,“ segir Solla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.