Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Síða 21
„Fyrst og fremst er liðið hefur verið
að rétta úr kútnum og koma sér ofar
í töflunni,“ segir Björgólfur Takefusa,
leikmaður KR, hógvær um árangur
sinn í ár sem státar af marki í leik í
öllum keppnum. „Ég er að sjálfsögðu
mjög sáttur með árangurinn og slæ
ekki hendi á móti þessum átta mörk-
um í deildinni. Samt án alls gríns er
ég mest ánægður með að við sem lið
höfum lagað okkar leik og sitjum í 3.
sæti í stað þess að vera við botninn,“
segir Björgólfur.
„Mitt gengi persónulega helst al-
gjörlega í hendur við gengi liðsins og
það sést alveg á okkar leikjum. Um
leið og við náum því sem heitir að
spila okkar leik og kynnast betur sem
leikmenn þá fór þetta að detta inn hjá
mér. Það er alltaf auðveldara að skora
mörk og líta út fyrir að vera góður í
fótbolta þegar maður er í svona góðu
liði,“ segir Björgólfur og hlær.
Þunglyndi í fyrra
KR átti afleitt Íslandsmót í fyrra
og var nálægt því að falla allar götur
fram undir lokaflaut mótsins. Byrjun-
in í ár var heldur enginn dans á rósum
því eftir sigur í fyrsta leik tapaði KR
næstu þremur leikjum. „Mér fannst
liðið taka mun betur á byrjun móts-
ins heldur en í fyrra og þannig náð-
um við að rétta okkar hlut strax,“ seg-
ir Björgólfur sem fer ekkert leynt með
vonbrigðin á síðasta tímabili þar sem
hann sjálfur skoraði aðeins 4 mörk í
18 leikjum.
„Árið í fyrra var einfaldlega öm-
urlegt. Maður var í hálfgerðu þung-
lyndi svona eins og allt liðið eiginlega
og við tókum aldrei rétt á því fannst
mér. Við náðum aldrei að koma okk-
ur á beinu brautina. Í ár byrjuðum
við líka skelfilega en þá var strax tal-
að um að við skyldum ekki detta í eitt-
hvað þunglyndi heldur vera jákvæðir
og þetta skyldi koma hjá okkur,“ seg-
ir Björgólfur en KR er komið í 3. sæti
deildarinnar.
Smellpassa innan
og utan vallar
KR er ekki bara búið að sigra þrjá
leiki í röð heldur hefur liðið skorað
átta mörk í þeim þremur leikjum og
fengið á sig ekkert. Liðið hefur ver-
ið mjög léttleikandi í síðustu leikj-
um og leikmenn að ná betur saman.
„Nýju leikmennirnir hafa gjörsam-
lega smellpassað inn hjá okkur. Ekki
bara á vellinum heldur líka utan
hans sem er ekki síður mikilvægt.
Að fá Guðjón Baldvinsson er mjög
gott og hvað þá Viktor Bjarka sem
er nú bara einn besti miðjumaður
Íslands. Svo má ekki gleyma Jónasi
Guðna sem mér finnst hafa komið
frábærlega inn hjá okkur og verið
fyrirliði í fjarvist Gulla [Gunnlaugs
Jónssonar],“ segir Björgólfur sem
vonar að framhald verði á.
Miklu sætari en ég
Björgólfur hefur náð vel saman
við Guðjón Baldvinsson og hafa þeir
félagar myndað frábært framherja-
par. Saman hafa þeir skorað þrettán
af sautján mörkum KR-inga. Sumir
sparkspekingar hafa haldið því fram
að þeir ættu ekki að ná svona vel
saman þar sem þeir séu svo líkir leik-
menn. „Ég botna ekkert í þeim full-
yrðingum því mér finnst við eins ólík-
ir leikmenn og hægt er. En það er bara
mín ásýn,“ segir Björgólfur en hver er
þá helsti munurinn á þeim félögum?
„Guðjón er miklu sætari en ég,“ segir
Björgólfur að lokum og hlær dátt.
Þegar dregið var í fyrstu um-
ferð Evrópukeppni félagsliða í fyrra
dróst færeyska liðið EB/Streymur
gegn enska stórliðinu Manchester
City. Að fá City í heimsókn er mikill
hvalreki fyrir færeyska knattspyrnu
og þá sérstaklega félag eins og EB/
Streym. Liðið er frá þorpinu Straum-
nes þar sem aðeins 400 manns búa
en 452.000 manns búa í Manchester-
borg. Það sem meira er búa aðeins
48.000 manns í öllum Færeyjum en
heimavöllur Manchester City, City
of Manchester Stadium, gæti tekið í
sæti alla íbúa Færeyja.
Það þykir nokkuð ljóst hver sigur-
vegarinn verður í þessari viðureign
en stjórnarformaður EB/Streyms
segir að Manchester City muni ekki
fá neitt gefins. „Hverju geta þeir bú-
ist við? City getur búist við að tapa
svo einfalt er það. Að fá Manchester
City í drættinum var okkar heitasta
ósk og hún hefur ræst. Við vorum
spenntir fyrir dráttinn en við erum
enn spenntari núna,“ sagði stjórn-
arformaðurinn Roland Hojsted eftir
dráttinn.
Færeyingar hafa á undanförn-
um árum fengið stórlið í heimsókn
í landsleikjum. Frakkland, Ítalía og
Skotland hafa leikið í Þórshöfn síð-
ustu ár fyrir framan fullan völl en
Evrópuleikurinn verður haldinn þar.
Sá völlur tekur 6.000 manns og er
nokkuð víst að hann verði smekk-
fullur þegar flautað verður til leiks.
„Þetta verður æðislegur dagur og frá-
bært fyrir færeyska knattspyrnu. Ég
get lofað að það verði skemmtilegir
tímar í Færeyjum vegna þessa leiks,“
sagði Hojsted. tomas@dv.is
DV Sport fimmtudagur 3. júlí 2008 21
Sport Engin yfirtaka hjá arSEnalPeter Hill-Wood, stjórnarformaður arsenal, segir ameríska auðkýfinginn Stan Kroenke ekki vera að undirbúa yfirtökutilboð í félagið. Honum sé þó meira en velkomið að leggja peninga í klúbbinn. Kroenka á nú þegar 12% í arsenal og er nálægt því að verða lykilmaður í stjórn félagsins. Hill-Wood tekur þó skýrt fram að hann sé ekki að leiða amerískt yfir-tökutilboð í félagið. Kroenke á að hafa sagt við arsenal-menn að fót-bolti gæti auðveldlega orðið jafnvinsæll og hafnabolti í Bandaríkjun-um en svo virðist sem Kroenke, sem einnig á körfuboltaliðið denver Nuggets, hafi ekki áhuga á að stýra arsenal enn sem komið er.
MOLAR
ÍSland niður uM 13 Sæti
íslenska landsliðið í knattspyrnu féll
um þrettán sæti á styrkleikalista al-
þjóða knatt-
spyrnusam-
bandsins, fifa.
Síðasti listi var
gefinn út í júní
og var ísland þá
í 85. sæti en lið-
ið hefur ekkert
spilað síðan þá
og fellur niður
í 98. sæti. Þetta
er þó ekki versta staða landsliðsins
því í fyrra féll það ofan í 117. sæti en
hoppaði svo aftur upp í það 80. mán-
uðinn eftir. Spánverjar eru komnir á
toppinn á listanum í fyrsta skipti síðan
hann var tekinn til notkunar. Þrátt fyrir
slæmt gengi á Evrópumótinu er ítalía
áfram í 2. sæti og Brasilía í því fjórða.
Holland situr svo í því 5. eftir gott Evr-
ópumót.
láruS Orri hættur Í fótbOlta
fyrrverandi landsliðsmaðurinn, lárus
Orri Sigurðsson sem nú er spilandi
þjálfari Þórs í 1. deildinni, er hættur
að leika knattspyrnu. Hann mun nú
alfarið snúa sér að þjálfun liðsins eftir
að hafa spilað einnig með því síðustu
fjögur ár. „Það er svo margt sem veld-
ur þessu, líkaminn er bara búinn, það
er ekkert flóknara en það. Ég hef náð
einum og einum leik en nú er bara
kominn tími til að aðrir taki við,“ sagði
lárus Orri við norðlenska fréttamiðil-
inn Vikudag. lárus Orri lék lengi með
WBa í ensku 1. deildinni við góðan
orðstír og á að baki 42 landsleiki.
MiSjafnar SkOðanir
SkagaManna
Það logar allt á spjallborði ía þessa
dagana eftir hinn vægast sagt athygl-
isverða og eftirminnilega leik gegn
Kr á mánudagskvöldið. menn láta
þar ófögur orð falla í garð garðars
arnars Hinrikssonar, dómara leiksins,
og eru ævareiðir yfir „hegðun“ hans
í leiknum. aðrir Skagamenn virðast
sætta sig við stöðuna sem ía er kom-
ið í og kenna ekki dómaranum eða
dómurunum um slæma stöðu Skag-
ans í landsbankadeildinni. Á meðan
einn segir garðari vinsamlegast að
hætta að dæma býður annar upp á:
„Eru menn alveg búnir að gleyma fyrir
hvað Skagamenn eru þekktastir fyrir?
Eru það ekki mörk og sætir sigrar? Eins
og segir í laginu ,,Skagamenn, Skaga-
menn skoruðu mörkin“.“
n1-Mótið hófSt Í gær
Enn eitt knattspyrnumótið hófst í gær.
Það er hið feikivinsæla N1-mót sem
fram fer á Ka-
svæðinu hvert
ár fyrir stráka í 5.
flokki. í ár taka
144 lið þátt í
mótinu og verð-
ur nóg um að
vera á þeim tíu
knattspyrnuvöll-
um sem gerðir
hafa verið fyrir
mótið. mótið stendur yfir fram á laug-
ardaginn og má búast við margmenni
á akureyri um helgina eins og jafnan
þegar þetta mót er haldið. Nýjung er
á mótinu í ár en ætlunin er að sýna úr-
slitaleiki a- og B-liða beint á netinu á
heimasíðu mótsins. Slóðin er ka-sport.
is/n1motid/. tomas@dv.is
EB/Streymur ætlar sér að vinna Manchester City:
ALLT LANDIÐ KEMST FYRIR Á VELLINUM
City-menn Halda til færeyja.
tóMaS Þór ÞórðarSOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
björgólfur takefusa hefur farið frábærlega af stað í Landsbankadeildinni. Hann er bú-
inn að skora 8 mörk í fyrstu 8 leikjunum sem hann hefur leikið á Íslandsmótinu með létt-
leikandi KR-ingum sem eru komnir við topp deildarinnar. Björgólfur segir tímabilið
hingað til vera ánægjulegt en tímabilið í fyrra hafa jaðrað við þunglyndi.
SLÆR EKKI HENDI
Á MÓTI MÖRKUM
átta Marka Maður Björgólfur
takefusa hefur farið frábærlega af stað
í sumar og skorað 8 mörk í 8 leikjum.