Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Side 23
DV Ættfræði fimmtudagur 3. júlí 2008 23 100 ára í dagTil hamingju með afmælið 30 ára afmæli n donata Honkowicz Bukowska Engihjalla 17, Kópavogur n Pablo Enrique Santos melendez Framnesvegi 27, Reykjavík n Heiða Steinunn Ólafsdóttir Fífulind 1, Kópavogur n Hákon Hákonarson Stakkahlíð 17, Reykjavík n Sepideh Sahar m. m. Zarandi Ugluhólum 4, Reykjavík n Sigrún lína Helgadóttir Víðimel 23, Reykjavík n Eva Soffía Halldórsdóttir Skálatúni, Mosfellsbær n Bjarki logason Kórsölum 1, Kópavogur n Sigríður gunnarsdóttir Gnoðarvogi 34, Reykjavík n Katrín lilja Ólafsdóttir Sunnubraut 1a, Búðardalur i n nga rún Birgisdóttir Mjósundi 3, Hafnarfjörður 40 ára afmæli n teresa Helena Stencel Jötunsölum 2, Kópavogur n raimondas mikalauskas Melabraut 3, Seltjarnarnes n Krzysztof rusin Löngufit 8, Garðabær n Sigurður gunnar markússon Tjarnarbraut 3, Hafnarfjörður n Vigdís Beck Spóahöfða 8, Mosfellsbær n Védís Birgisdóttir Einbúablá 33, Egilsstaðir n Ásgeir H aðalsteinsson Raftahlíð 62, Sauðárkrókur n Ásthildur Halldórsdóttir Súluhöfða 25, Mosfellsbær n Nanna maja Norðdahl Langholtsvegi 190, Reykjavík n Þórarinn guðnason Asparhóli, Akureyri n gunnlaugur Þorgeirsson Hólatúni 13, Akureyri 50 ára afmæli n irena Czajkowska Hafnarstétt 25, Húsavík n Kolbrún Þórisdóttir Lautasmára 12, Kópavogur n guðrún ísleifsdóttir Jörundarholti 228, Akranes n Eiríkur V friðriksson Hrísrima 11, Reykjavík n guðlaugur Ö Þorsteinsson Tjarnarstíg 20, Seltjarnarnes n Sveinbjörn Björnsson Vesturbraut 10, Hafnarfjörður n aðalbjörn jón Sverrisson Einarsnesi 42, Reykjavík n Sigríður Birna guðjónsdóttir Helgamagrastræti 9, Akureyri n Hugrún Ósk guðmundsdóttir Háholti 23, Hafnarfjörður n Eggert Hafsteinn margeirsson Fífurima 22, Reykjavík n ragnheiður Ágústína Pálsdóttir Kleppsvegi 66, Reykjavík n ingibjörg Barðadóttir Holtsbúð 103, Garðabær n Steingrímur Pétur Baldvinsson Lindarbyggð 10, Mosfellsbær n málfríður freyja arnórsdóttir Drekavöllum 22, Hafnarfjörður n reynir Warner lord Kelduhvammi 3, Hafnarfjörður 60 ára afmæli n Bjarni Björnsson Sæviðarsundi 26, Reykjavík n gróa Valgerður Eyjólfsdóttir Hjaltabakka 6, Reykjavík n ingunn Sigurðardóttir Ársölum 3, Kópavogur n Sigríður gunnlaugsdóttir Heiðargerði 15, Húsavík n lýður Viðar Ægisson Fýlshólum 1, Reykjavík n Sigmar Eiríksson Grashaga 19, Selfoss n Ástríður Þorsteinsdóttir Bollagötu 9, Reykjavík n Sigríður Skúladóttir Blásölum 22, Kópavogur n dagný guðnadóttir Flyðrugranda 16, Reykjavík n Sigurgeir Bóasson Strandvegi 12, Garðabær 70 ára afmæli n guðbjörn Charlesson Höfða, Ísafjörður n Kristrún Ólafsdóttir Stekkjargötu 71, Njarðvík n jórunn magnúsdóttir Lækjasmára 102, Kópavogur n Erna Sörladóttir Vættaborgum 2, Reykjavík 75 ára afmæli n Erlingur Pálsson Skálanesgötu 8, Vopnafjörður n Ársæll Þorsteinsson Skúlagötu 20, Reykjavík n gústaf Óskarsson Réttarheiði 43, Hveragerði n Bryndís S guðmundsdóttir Háaleitisbraut 36, Reykjavík 80 ára afmæli n freyja Erlendsdóttir Hjallaseli 7, Reykjavík n Hjalti Þórðarson Gunnarsbraut 3, Búðardalur n Sólveig Sveinsdóttir Vogatungu 12, Kópavogur 85 ára afmæli n Sigríður Skarphéðinsdóttir Hraunbæ 6, Reykjavík n guðrún Kristjánsdóttir Austurbyggð 21, Akureyri n guðmundur finnbogason Seljalandsskóla, Hvolsvöllur n indriði ragnar Sigmundsson Ránargötu 4, Reykjavík 90 ára afmæli n Baldur E jensson Hringbraut 50, Reykjavík n Sigríður Ármannsdóttir Dvalarheimilinu Höfða, Akranes 90 ára afmæli n Soffía guðmundsdóttir Hafnargötu 12, Seyðisfjörður fyrrVEraNdi VErKStjÓri HjÁ íSfélagiNu í VEStmaNNaEyjum Björn Þorleifur Þorleifsson afrEKSmaður í taiKWoNdo Björn fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hann var í Engidalsskóla og Víðidalsskóla, stundaði nám við Flensborg og við Essex College í Baltimore í Maryland í Bandaríkjunum um skeið. Björn hóf að æfa og keppa í taekwondo er hann var ellefu ára, æfði fyrst hjá Taekwondo klúbbi, dvaldi við æfingar í Bandaríkjunum 1999, æfði hjá Fjölni og Ármanni en æfir nú hjá Fimleikafélaginu Björk. Björn varð Íslandsmeistari í Taekwondo 1992, 1997, 1998, 2000, 2001, 2002, 2004, 2005 og 2006, en hann var erlendis er Ís- landsmótið var haldið 1999 og 2003. Hann varð Norðurlanda- meistari í unglingaflokki 1995 og í fullorðinsflokki 2002, 2004, 2005 og 2007, varð í 1. sæti í Opna evrópska meistaramótinu í París 2000, 1. sæti á Wonderful Copenhagen TKD-mótinu 2002 og 2003, varð í 1. sæti í Scandin- avian Open 2002 og 2003, varð í 1. sæti í US Cup 2001 og 2003, í 1. sæti í US Master Cup 1998 og 2003, í 1. sæti á American Eag- le Classic 2001 og 2003, 1. sæti í Maryland State Champion 2000 og Presidents Cup 2000 og á US Open 2005, 1. sæti á Smá- þjóðaleikunum í Andorra 2005, á Opna sænska mótinu 2007 og Opna belgíska mótinu 2007 og hefur unnið fjölda annarra móta. Björn er nú í efsta sæti Evr- ópulistans yfir TKD-kepp- endur, hefur keppt í landsliði TKD-keppenda frá 1993, er nú landsliðsþjálfari og hefur verið það tvívegis áður. Fjölskylda Systkini Björns eru Þorleifur Þór Þorleifsson, f. 1981, sjómað- ur og nú starfsmaður við álverið á Reyðarfirði; Karl Ingi Þorleifs- son, f. 1982, sjómaður í Hafnar- firði; Natalea Brá Þorleifsdóttir, f. 2001, búsett í Mexíkó. Foreldrar Björns eru Þorleif- ur Björnsson, f. 1948, skipstjóri, nú búsettur í Mexíkó, og Margrét Gunnarsdóttir, f. 1955, verslun- arkona í Hafnarfirði. Vigdís Beck er fertug í dag: Stefnir á að toppa þrítugsafmælið „Það er frekar skrítin tilhugsun að ég sé að komast á fimmtugsaldur- inn,“ segir Vigdís Beck félagsliði en hún fagnar fjörutíu ára afmæli sínu í dag. Vigdís er nýkomin heim frá Spáni en þar áttu hún og fjölskylda hennar góðan tíma saman. Vigdís er gift Rún- ari Kristinssyni og eiga þau þrjú börn, átján ára strák og fimmtán og níu ára stelpur. „Þegar ég varð þrítug hélt ég stórt partí hér heima hjá mér fyrir vini og ættingja og ég ætla að toppa það partí í ár. Ég ætla að halda veislu fyrir og vini og ættingja um þarnæstu helgi,“ segir hún. „Þegar ég verð fimmtug ætla ég að fara aftur í siglingu á Spáni eins og ég gerði núna, það var alveg æðis- legt. Þótt það séu alveg tíu ár í þann af- mælisdag.“ Vigdís er í sumarfríi og á afmælis- daginn ætlar hún að fara til Akureyrar í útilegu með fjölskyldunni. Aðspurð hvað hana langi í í afmælisgjöf svarar hún: „Ég hef ekki mikið pælt í hvað mig langar í í afmælisgjöf en það er alltaf gaman að fá eitthvað fallegt í búið eða eitthvað sem maður er að safna.“ Sigríður fæddist á Rauðhálsi í Mýrdal og ólst þar upp til átta ára aldurs. Þá missti hún föður sinn úr lungnabólgu og tvístraðist þá hópur systkinanna sem urðu sautján talsins. Sigríð- ur var send til Vestmannaeyja, til Jóns Guð- mundssonar, sjómanns og útgerðarmanns þar, og k.h., Jennýjar Guðmundsdóttur húsmóður. Sigríður var í Barnaskólanum í Vestmanna- eyjum en varð síðan að vinna fyrir sér á ungl- ingsárunum. Hún giftist í Vestmannaeyjum, vann þar lengst af í fiski og var verkstjóri hjá Ísfélaginu um langt árabil. Þau hjónin bjuggu í Vestmannaeyjum fram að gosi en fluttu þá til Reykjavíkur enda fór hús þeirra þá undir hraun. Hún starfaði þó hjá Ísfélaginu í nokkurn tíma eftir gosið. Fjölskylda Sigríður giftist 1929 Halldóri Elíasi Halldórs- syni, f. 23.7. 1902, d. 8.10. 1975, frá Sjónarhóli á Stokkseyri, sjómanni í Vestmannaeyjum. Kjörsonur Sigríðar og Halldórs er Jón Berg Halldórsson, f. 1.7. 1935, stýrimaður og skip- stjóri í Vestmannaeyjum og síðar verkstjóri hjá varnarliðinu í Keflavík, búsettur í Vogum en kona hans er Helga Sigurgeirsdóttir og eiga þau fjögur börn. Sigríður á nú eina systur á lífi, Kristínu, f. 1910, sem lengi bjó á Hvoli í Mýrdal, nú búsett í Vík, móðir Bjarna Kristjánssonar, fyrrv. rektors Tækniskóla Íslands. Önnur systkini Sigríðar er komust á legg: Vigfús, f. 1897, d. 1918; Sigurður, f. 1898, d. 1980, faðir Högnu arkitekts; Þorbergur, f. 1899, d. 1941, faðir Guðrúnar Katrínar forsetafrúar; Þórunn, f. 1901, d. 1972; Ragnhildur, f. 1902, d. 1977; Oddsteinn, f. 1903, d. 1987, faðir Andreu er starfrækti Tískuskóla Andreu; Árþóra, f. 1904, d. 1990; Högni, f. 1907, d. 1929; Ólafur, f. 1911, d. 1984; Ragnheiður, f. 1912, d. 1984; Þórhallur, f. 1913, d. 1999; Þórhalla, f. 1915, d. 1999. Foreldrar Sigríðar voru Friðrik Vigfússon, f. 12.4. 1871, d. 17.11. 1916, bóndi á Rauðhálsi í Mýrdal, og k.h., Þórunn Sigríður Oddsdóttir, f. 1875, d. 23.7. 1959, húsfreyja. Ætt Friðrik var bróðir Helgu, móður Þorbjörns, kaupmanns í kjötbúðinni Borg. Helga var auk þess amma Jóhannesar Helga rithöfundar og langamma Jóns Hjaltalíns Magnússonar, verk- fræðings og fyrrv. formanns HSÍ. Friðrik var sonur Vigfúsar, óðalsb. á Ytri-Sólheimum Þór- arinssonar, b. á Seljalandi Eyjólfssonar. Móðir Vigfúsar var Guðríður Eyjólfsdóttir, b. á Ytri- Sólheimum Alexanderssonar. Móðir Guðríðar var Guðríður Sigurðardóttir, pr. í Eystri-Ásum, bróður Böðvars, pr. í Holtaþingum, föður Þor- valds, pr. og skálds í Holti, föður Þuríðar, lang- ömmu Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrv. forseta. Systir Þuríðar var Sigríður, móðir Kristínar, langalangömmu Matthíasar Johannessens skálds og Halldórs Blöndals, fyrrv. ráðherra. Hálfsystir Þuríðar var Rannveig, langamma Þórunnar, móður Gylfa Þ. Gíslasonar ráðherra, föður prófessoranna Þorsteins og Þorvalds, og Vilmundar ráðherra. Hálfbróðir Þuríðar var Böðvar, prófastur á Melstað, langafi Jóhanns Hafsteins forsætisráðherra, föður Péturs, fyrrv. hæstaréttardómara. Sigurður var sonur Presta- Högna, prófasts á Breiðabólstað Sigurðsson- ar. Móðir Friðriks var Þórdís Berentsdóttir, b. á Ytri-Sólheimum Sveinssonar. Móðir Þórdís- ar var Helga, systir Margrétar, móður Magnús- ar Stephensens landshöfðingja, langafa Guð- rúnar Agnarsdóttur, læknis og forstöðumanns Krabbameinsfélags Íslands. Þórunn Sigríður var systir Sigurðar, afa Ragnars Hall borgarfógeta. Þórunn Sigríður var dóttir Odds, sjómanns í Jónshúsi í Eyjum Jónssonar. Móðir Þórunnar var Steinunn, syst- ir Ragnhildar, móður Sveinbjörns Högnasonar, prófasts og alþm. á Breiðabólstað, föður Sváfn- is, fyrrv. prófasts á Breiðabólstað. Steinunn var dóttir Sigurðar, b. í Pétursey Eyjólfssonar, b. í Keldudal Þorsteinssonar, b. á Hvoli, hálf- bróður Bjarna Thorsteinsson amtmanns, föð- ur Steingríms skálds og Árna landfógeta. Þor- steinn var sonur Þorsteins, b. í Kerlingardal, bróður Jóns Steingrímssonar eldprests. Móðir Sigurðar í Pétursey var Þórunn Þorsteinsdótt- ir, b. á Vatnsskarðshólum Eyjólfssonar. Móðir Steinunnar var Þórunn, systir Þorsteins, lang- afa Karitasar, móður Jóhönnu Sigurðardóttur ráðherra. Þórunn var dóttir Þorsteins, b. í Út- hlíð, bróður Eyjólfs í Keldudal. Sigríður tekur á móti vinum og vanda- mönnum á Helgafelli á Hrafnistu í Reykjavík í dag kl. 16.00. Vigdís Beck Ætlar að halda stórveislu fyrir ættingja og vini um þarnæstu helgi. Sigríður FriðrikSdóttir 30 ára í dag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.