Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Síða 27
DV Sviðsljós fimmtudagur 3. júlí 2008 27 Blóm fyrir 78 milljónir Salma Hayek ætlar að ganga að eiga unn- usta sinn og barnsföður næsta vor í Suður- Frakklandi. Brúðkaupið verður eitt það stærsta sem sögur fara af. Unnustinn heitir Francois- Henri-Pinault og er framkvæmdastjóri fyrir- tækisins PPR, sem er eigandi frægustu vöru- merkja í heimi eins og Gucci, Dior, Bottega Veneta og svo mætti lengi telja. Það hefur tekið Francois-Henri eitt ár að fá Sölmu til að giftast sér. Sagt er að mexíkóska leikkonan hafi loks játast unnusta sínum er hann lét hana hafa kortið sitt og sagði henni að gera það sem hugur hennar girntist.Heimildir herma að brúðkaupið muni kosta 280 milljón- ir króna. Salma hefur ákveðið að uppfylla alla sína drauma og halda hið fullkomna prins- essubrúðkaup. Leikkonan þokkafulla er sögð hafa pant- að sérhannaðan Nicolas Ghesquiere-kjól sem kostar litlar 39 milljónir. Flogið verður með gestina fjögur hundruð í einkaþotum til að taka þátt í fimm daga veisluhöldum. En athöfnin er sögð fara fram í kastala nálægt St. Tropez. Athöfnin og veislan verða ekki síðri. Öll blóm fyrir veisluna og athöfnina munu kosta litlar 78 milljónir króna. Gestirnir fá að bragða á Beluga-kavíar, gæðahumri, kobe-kjöti og bestu frönsku og ítölsku vínunum. Heildar- upphæð fyrir áfengið eitt og sér er í kringum 80 milljónir. Brúðarkakan verður á sjö hæðum og mun kosta í kringum sjö milljónir. Salma og Francois-Henri hafa verið saman í nokkur ár. Saman eiga þau dótturina Valent- inu Palomu. Lítið hefur farið fyrir þessu ofur- pari, en það verður án efa erfitt að toppa þessa veislu. Salma Hayek planar prinsessubrúðkaup: Brúðkaup aldarinnar salma Hayek og francois- Henri pinault ganga í það heilaga næsta vor og mun brúðkaupið kosta litlar 280 milljónir króna. Valentina Paloma litla dúfan þeirra hjóna verður í sérhönnuðum kjól líkt og mamma hennar í brúðkaupinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.