Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2008, Side 30
fimmtudagur 3. júlí 200830 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Paul Simon sýndi á tónleik- um sínum í Laugardalshöll í fyrrakvöld að hann hefur engu gleymt, svo gripið sé til þeirrar tuggu. Ófá- ir íslenskir tónlistar- menn mættu til að sjá og heyra hinn bandaríska kollega sinn flytja rjómann af þeim mikla fjölda laga sem hann hefur samið í gegnum tíðina. Eyjólfur Kristjánsson var að sjálfsögðu á svæðinu en eins og flestir vita hefur hann haldið ófáa tónleika með Stef- áni Hilmars þar sem eingöngu Simon and Garfunkel lög eru tekin. KK mætti einnig, sem og söng- og leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir. Þá lét Sigga Beinteins sig ekki vanta en hún söng íslenska útgáfu á hinu ang- urværa Bridge Over Troubled Water inn á plötu fyrir nokkrum árum. Sigga hefur því líklega verið svolítið svekkt að Simon skyldi ekki taka það vinsæla lag á tónleikunum. n Elva Dögg Melsted fyrrver- andi fegurðardrottning Íslands.- is hélt á dögunum upp á sjö ára brúðkaups- afmæli sitt. Á Facebook- síðu Elvu má finna brúðkaups- mynd henn- ar og vekur það mikla eftirtekt að Elva hefur lítið sem ekkert breyst á þessum sjö árum, nema hvað hún er orðin fallegri. Einu sinni fegurðardrottning, alltaf fegurðardrottning á hér vel við. n Skemmtistaðurinn Q-bar gerði umfangsmikla leit að dverg í síðustu viku, en staður- inn ætlaði í heilmikla mynda- töku í anda skemmti- staðarins Studio 54. Myndatak- an fór fram í fyrrakvöld, án dvergs, en enginn bauð sig fram til að taka þátt í myndatök- unni. Þau sem koma að þessu kvöldi dressuðu sig öll upp eins og þekktir einstaklingar sem stunduðu staðinn á sínum tíma. Í lok mánaðarins verður síðan haldið heljarinnar Studio 54- kvöld og vonast umsjónarmenn þess til að dvergur láti sjá sig og skemmti sér með þeim á kvöld- inu sjálfu. Hver er maðurinn? „Helgi Björnsson leikari, söngvari og athafnamaður.“ Hvað drífur þig áfram? „Krafturinn úr vestfirsku fjöllunum og eilíf forvitni.“ Hver er þinn helsti hæfileiki? „Það er nú það, ætli það sé ekki jafn- aðargeðið.“ Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítill? „Atvinnumaður í knattspyrnu eða poppstjarna.“ Spilar þú á hljóðfæri? „Ég spila svona aðeins á gítar.“ Hvaða bók last þú síðast? „She‘s the day eftir Saul Bellow.“ Ert þú pólitískur? „Ég hef alveg skoðanir en ég blanda mér ekki í flokkapólitík.“ Átt þú þér uppáhaldsstað á Íslandi? „Já, í hnakknum á hestbaki.“ Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu? „Ég ætla að skreppa til Sardiníu á Ítalíu og svo er planið að ríða upp að Arnarfelli hinu mikla undir rótum Hofsjökuls. Þetta verður átta daga hestaferð með 15 til 20 manns og 100 hestum.“ Af hverju valdir þú sveitatónlist á nýju plötuna? „Mig hefur lengi langað til að gera blússkotna sveitatónlist, það var kominn tími á það. Mér hefur alltaf fundist svona rótartónlist heillandi og skemmtileg.“ Fyrir hverja er skemmtilegast að spila? „Þá sem finnst gaman að hlusta.“ Hvernig tónlist hlustar þú á? „Til dæmis á svona rythm & blues- og soul-tónlist. Svo er ég mikið að færa mig yfir í djassinn, en auðvitað hlusta ég á flestallt.“ Hvað er sterkast í þér, söngvar- inn, leikarinn eða athafnamað- urinn? „Yfirleitt það sem ég er ekki að gera í það og það skiptið. Þegar ég er að syngja mikið langar mig að leika. Grasið er alltaf grænna hinum meg- in.“ Hvernig tilfinning er það að verða bráðum fimmtugur? „Það er frábært. Ég er farinn að hafa smá yfirsýn yfir lífið. Samt er forvitn- in ennþá rík og gleði yfir öllu sem lífið hefur upp á að bjóða.“ Hvað er fram undan hjá þér? „Ég verð með tónleika á Landsmóti hestamanna um helgina, ferðirn- ar í sumar og svo leik ég í kvikmynd í haust. Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp gera myndina en handritið er eftir Sjón. Myndin heitir Reykjavík whale watching massacre.“ Hver er draumurinn? „Að geta flogið.“ MAÐUR DAGSINS það er Frábært að verða Fimmtugur Helgi Björnsson er hesta- maður með meiru. Þessa dagana leikur hann fyrir gesti landsmóts hestamanna á Hellu, enda nýbúinn að senda frá sér diskinn ríðum sem fjandinn. Sjálfur stefnir hann á hestaferð upp að arnarfelli undir rótum Hofsjökuls í sumar. BókStAfleGA „Hann fílaði Ólöfu Arn- alds í tætlur.“ n Kolfinna Baldvinsdóttir um hundinn sinn Killer sem veitti henni félagsskap á Náttúrutónleik- unum um síðustu helgi - Séð og heyrt „Ég hef eng- in ártöl á hreinu. Ég veit að ég var þarna ‚85 og síðan hef ég farið þarna nokkrum sinnum með Súkkat en man ekki hvenær.“ n megas um ferðalög sín til Vestmannaeyja. - 24 stundir „Ef við, þessar 200 ljós- mæður í landinu, höf- um riðið baggamuninn í þjóðfélagsástandinu hljótum við að eiga betra skilið.“ n guðlaug Einarsdóttir, formaður ljósmæðrafélags íslands, í viðtali í Kastljósinu. „Þetta er óhugnan- legt, sérstak- lega í ljósi þess að þeir sem hafa kynnt sér sam- tökin af einhverri alvöru vita að virðing í hópnum eykst eftir því sem glæp- irnir eru alvarlegri.“ n jóhann r. Benediktsson, sýslumað- ur á Suðurnesjum, um þau tíðindi að vélhjólaklúbburinn fáfnir mC sé orðinn opinber hluti af Hells angels. - dV „Ef þú ert ófrísk og ferð af stað getur þú ekkert haldið í þér og beðið þangað til ljósmóðir er til reiðu.“ n Sigríður geirsdóttir tjáir sig um áhrif verkfalls ljósmæðra á ófrískar konur. - 24 stundir. „Ég er búinn að gista í öllum fangelsum lands- ins nema Akureyri og Kvíabryggja er toppurinn, algjörlega fimm stjörnu fangelsi.“ n Kalli Bjarni um vistina á Kvía- bryggju. - Séð og heyrt. Hjá sumum snýst lífið bara um ís... Aðalstræti 3 - Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.