Fréttatíminn - 20.02.2015, Page 44
44 matur & vín Helgin 20.-22. febrúar 2015
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
1. sæti
Þorlákur nr. 31 Saison Brett
7,7%
33 cl. 777 kr.
Ummæli dómnefndar:
Það er smá Brett í lyktinni.
Þetta er svona farmhouse-fönk.
Lyktin er góð og þetta lítur
vel út.
Slatti af karamellu og malti.
Hann er reglulega góður.
Ég myndi kaupa mér þennan.
Þetta er þrusufínn bjór.
Þetta er ekki hefðbundinn
páskabjór.
Hann er frekar aðgengilegur
og ætti að vera tilvalinn
fyrir þá sem vilja fara í smá bjór-
ferðalag.
Já, fólk sem drekkur Bríó eða Úlf eða álíka
bjóra ætti að prófa þennan. Hann er
fínn fyrir þá sem vilja fara aðeins út af
stígnum.
Þetta er tilraun sem tekst nokkuð vel.
Ég ætla að kaupa þennan og geyma
aðeins. Hann verður örugglega betri
eftir hálft ár eða ár.
2. sæti
Víking Páska Bock
6,7%
33 cl. 428 kr.
Ummæli dómnefndar:
Nei, ekki átti ég nú von á Bock
frá þeim fyrir norðan...
Þessi er eins og hann á að
vera.
Sæt lykt, mikið malt og
nokkur beiskja.
Mjög góður haus.
Þrusugóður bjór, vel
bruggaður.
Mjúkt bragð, mikið boddí.
Þessi þroskast líka vel,
verður bara betri ef
hann er geymdur aðeins.
Reglulega flottur bjór.
En eins og hann er góður er líka rétt að
skora á Víking að koma með eitthvað
nýtt inni á milli. Það má alveg.
Páskabjórinn er belgískur sveitabjór
S jö bjórar voru lagðir fyrir dómnefnd Fréttatímans sem eins og svo oft áður var skipuð meðlimum úr Fágun, Félags áhugamanna um gerjun.
Auk þeirra sem hér eru til umfjöllunar getur
bjóráhugafólk á næstu vikum nælt sér í
páskabjór frá Föroya og Gæðingi, en þeir
bárust ekki í tæka tíð fyrir smakkið. Þá hyggst
Steðji bjóða upp á páskabjór en stjórnendur þar
á bæ kváðust ósáttir við umfjöllun um bjóra sína
í þessu blaði og kusu að leggja ekki til bjór til
smökkunar.
Þrír bjórar báru af í smökkuninni að
mati dómnefndar. Saison Brett-
bjór frá Borg brugghúsi, sem lýst er sem belg-
ískum sveitabjór – glaðvær sem grasspretta að
vori og sætur sem nýklofinn kandís – þótti vel
heppnuð tilraun, Bock-bjór frá Víking þótti afar
vel heppnaður og sú róttæka tilraun að
breyta Egils Gull í þýskan hveitibjór
heppnaðist einkar vel.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Dómnefndin f.v.
Hrafnkell Freyr Magnússon 32 ára
eigandi Brew.is. Eftirlætis bjórstíll:
Súrbjórar
Jóhann Guðbjargarson 42 ára
tölvunarfræðingur. Eftirlætis bjór-
stíll: IPA og dubbel.
Margrét Grétarsdóttir 31 árs fram-
leiðandi. Eftirlætis bjórstíll: IPA.
Viðar Hrafn Steingrímsson 41 árs
kennari. Eftirlætis bjórstíll: Porter
og Stout.
3. sæti
Páskagull
5,3%
33 cl. 369 kr.
Ummæli dómnefndar:
Þetta er klassísk hefeweizen-
lykt, með banönum og
ávöxtum.
Flottur haus á honum.
Það er fínt að sötra þennan
yfir Spurningakeppni fjöl-
miðlanna um páskana.
Hann er rosalega léttur.
Mjög fínn hefeweizen, ég á
eftir að kaupa þennan.
Hann sver sig í ætt við
Erdinger en minnir líka á
belgíska wit-bjóra.
Þrusufínn.
Þetta væri frábær sumarbjór.
4. sæti
Ölvisholt Barón Brúnöl
4,5%
33 cl. 389 kr.
Ummæli dómnefndar:
Skemmtilegur miði.
Rosa góð lykt.
Já, það flæða amerískir
humlar upp úr glasinu
eins og tónar Mozarts.
Þetta er lokkandi angan.
En það er svolítil flatneskja
í bragðinu.
Já, mjög mött beiskja.
Ég finn brunabragð.
Maður bjóst kannski við of
miklu út af lyktinni.
Bragðið stendur ekki alveg
undir væntingum.
Já, þetta er svolítið eins og kona í
Wonderbra...
En þetta er skemmtileg tilraun, það hefði
bara mátt þróa þetta aðeins meira.
Beiskjan er of gróf.
Þeir sem drekka Newcastle Brown Ale
ættu að prófa þennan.
5. sæti
Tuborg Kylle Kylle Páskabjór
5,4%
33 cl. 316 kr.
Ummæli dómnefndar:
Þessi er bruggaður í
Hellerup.
Klassísk pilsnerlykt af
honum.
Maís, dauf karamella.
Rosa sæta í lyktinni.
Falleg froða, fallegur á
litinn.
Hann er svolítið rammur, það er þurrt
eftirbragð.
Þetta er bara venjulegur pilsner, hann er
ekki að reyna að vera neitt annað.
6. sæti
Páskakaldi
5,2%
33 cl. 405 kr.
Ummæli dómnefndar:
Smá sæta í lyktinni.
Voða lítil lykt af honum.
Ég finn kirsuber og púður-
sykur í lyktinni.
Það leynir sér ekki á
bragðinu hvaðan þessi
kemur.
Hann er fallegur á litinn.
Þetta er bara standard árs-
tíðabjór.
Við fögnum tilraunum Kalda
með bjór á krana sem fjallað var um í
Fréttatímanum á dögunum. Við skorum
á Kalda-fólk að koma með fjölbreyttari
bjór á flöskum í framtíðinni.
7. sæti
Víking Páskabjór
4,8%
33 cl. 339 kr.
Ummæli dómnefndar:
Þungsæt lykt.
Fallegur á litinn, kremlituð
froða.
Það er einhver ömmulykt af
honum.
Það er eins lykt af honum
og af dönskum, sterkum
bjórum.
Svolítið súr og beiskur.
Flott útlit en fer ekki vel í
munni.
Ekki gott eftirbragð.
Það er eitthvað enskt við
hann, minnir á einhvern ale.
Páskabjórinn var settur í sölu í vikunni. Fjöldi sérbruggaðra bjóra bætast við úrvalið í Vínbúðunum og verða til sölu fram að páskum.
Glútenlaust brauð,
góðan daginn!