Fréttatíminn - 29.05.2015, Side 32
Hakk feðranna
É
Ég hef ljómandi gaman af því að
elda. Get eytt heilu og hálfu dög-
unum við hlóðirnar. Heitreyki
svínakjöt í grillinu á svölunum svo
klukkutímum skiptir, hakka sjálfur
kjötið sem fer í hamborgarana mína
og sökkvi mér svo mikið í mat-
seldina um hátíðirnar að oft þarf
familían að borða þrjá aðalrétti í
jólamatinn. Á enda allskonar mat-
vinnslutæki sem, væru þau talin hér
upp í stafrófsröð, myndu fylla alla
síðuna. Svona til að taka eitt dæmi
þá keypti ég tæki sérstaklega til
að hræra mæjónes. Sum sé, ég tek
matseld heimilisins alvarlega og er
ekkert mikið í því að hita dósakjöt-
bollur í brúnni í kvöldmatinn.
Því kom það mér vægast sagt
nokkuð á óvart þegar betri helming-
urinn sagði eitt sinn, alveg upp úr
þurru: „Gætir þú einhvern tímann
mögulega gert hakk og spagettí
eins og hann pabbi þinn?“ Þessi bón
kom mér algerlega í opna skjöldu
enda er maðurinn sá, þrátt fyrir að
vera gæðafaðir og -manneskja, ekki
beint þekktur fyrir miklar kúnstir
í eldhúsinu. Meira svona pylsu-
og kornflexmaður þegar kom að
honum að sjá um eldamennskuna
á heimilinu í gamla daga. Ja, og
jú stöku hakk og spagettí svona í
seinni tíð.
Eftir að hafa náð andlitinu upp af
gólfinu og komið því fyrir á sínum
stað gerði ég nokkuð sem mér hefði
aldrei dottið í hug að ætti eftir að
gerast. Það sem enginn, að mér
vitandi, hafði áður gert. Ég hringdi
í pabba minn og bað um uppskrift.
Hann var að keyra á þjóðvegi eitt
á leiðinni upp í sveit. Var í bílnum
ásamt eiginkonu sinni og móður
minni. Sem ábyrgi bílstjórinn sem
hann er og enn fremur þegar hann
heyrði orðið uppskrift vissi hann
að þetta símtal væri sjálfsagt ætlað
sinni frú, sem á það til að gleyma
sínum síma ýmist á sælent eða bara
hér og þar um landið. Ættfaðirinn
er því oft nýttur sem símstöð og
hann setti því símtólið umsvifalaust
á frúna í farþegasætinu.
Þá konu, svo því sé til haga hald-
ið, hef ég oft beðið um uppskrift og
aðra aðstoð í eldhúsinu. Það tók því
nokkrar útskýringar, nokkurt japl
aðeins af jammi og stöku ha og jahá
áður en símtólið færðist aftur á eyra
ættföðurins sem skildi hvorki upp
né niður. Ha – ertu að biðja MIG
um uppskrift hváði hann á milli
hlátraskalla þeirra heiðus hjónanna
sem voru á leiðinni til helgardvalar
í sumarhúsi sínu fyrir austan fjall.
Eftir að hafa jafnað sig á bóninni og
hlátrinum hófust miklar vangavelt-
ur og upprifjun.
Eftir dágóða stund kom svo
uppskriftin yfir símkerfið. Hún
var nokkurn veginn svohljóðandi:
Steikja nautahakk á pönnu og bæta
svo út í eins og einni dós af tóm-
atpúrru. Tómatpúrra! Var það öll
uppskriftin? Já, og kannski smá
Season all. Ég þakkaði fyrir og lagði
tólið á. Lagðist svo fyrir. Þetta var
draumurinn! Ekki hæg elduð blanda
svína, -kálfa og nautahakks með
villisveppum, hvítlauk og mirepoix.
Ekki heimagerð sósa með glugga-
ræktaðri steinselju og ekki vottur af
parmigiano reggiano. Neibb, bara
gamla góða tómatpúrran. Þetta
eldaði ég svo handa þá kasóléttri
eiginkonu minni, henni til mikillar
gleði.
Síðan þessu símtali okkar feðga
lauk eru liðin eru nokkur ár og
smátt og smátt jókst aftur suðutím-
inn á hakkinu sem og að hráefn-
unum hefur sömuleiðis fjölgað
talsvert. Skrifaði þetta líka, í það
minnsta að hluta til, á óléttu frúar-
innar. Svona eins og að fá sér spínat
út á ís eða eitthvað þannig rugl sem
óléttar konur gera.
Sannast sagna var ég búinn
að steingleyma þessu símtali og
þessum ágæta hakkrétti föður míns
þegar frumburðurinn, bumbubúinn
sjálfur frá dögum uppskriftarinnar,
tók mig afsíðis og ræddi við mig
undir fjögur augu. Kvöldið áður
hafði móðir hennar nefnilega, þegar
ég þurfti að vinna fram eftir, eldað
það besta hakk sem hún hafi nokk-
urn tímann smakkað. Ekki þetta
skrítna sull mitt. Jafnframt benti
hún mér náðarsamlegast á, þar sem
ég sæi yfirleitt um kvöldmatinn, að
ég þyrfti ekki seinna en strax að
læra uppskriftina og hætta að elda
þetta gums með spagettíinu.
Ég veðraðist allur upp, enda vissi
ég af bæði ferskri steinselja og
þurrkuðum shiitakesveppum sem
gætu hafa ratað í pottinn. Spurði
því kokkinn um þessa töfrandi upp-
skrift sem barnið var svo heillað af
að undramáltíðin hafði ekki gleymst
degi síðar. Náði svo í penna og blað
til þess að missa nú ekki af neinu.
Þegar til kom þurfti ég þó ekki að
skrifa neitt niður, enda innihaldslist-
inn með nautahakkinu ekki langur.
Þurfti reyndar bara eitt hráefni.
Tómatpúrru!
Haraldur
Jónasson
hari@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
32 viðhorf Helgin 29.-31. maí 2015
• Staðfest með rannsóknum sl.
14 ára - vinnur á einkennum
tíðahvarfa kvenna.
• Inniheldur staðlað tofu
extract, ekki erfðabreytt
(GMO frítt)
• Náttúruleg lausn fyrir konur
án hormóna.
„Allt annað líf
– loksins verkjalaus!“
-Eva Ólöf Hjaltadóttir
Náttúruleg lausn við áhrifum tíðahvarfa
MÍL ANÓ f rá
Tímabil: júní og september
10.999 kr.*
AFMÆLISTILBOÐ - TAKMARKAÐ MAGN Í BOÐI!
* Aðeins bókanlegt á wowair.is. Verð miðast við flug aðra leið ásamt sköttum & gjöldum.
5 kg handfarangur innifalinn.