Iðnaðarmál - 01.05.1961, Page 18

Iðnaðarmál - 01.05.1961, Page 18
benda á þær breytingar á gerð og srníði, er gerviefnin hafa valdið í á- kveðnum greinum málmiðnaðarins. Framtíðarþróun í málmplötuiðnaðin- um er samt sem áður óviss, þar sem plastefnin hafa aðeins að nokkru leyti komið í stað málmanna á því sviði. Heildarframleiðsla á málm- plötum hefur ekki orðið fyrir neinum alvarlegum skakkaföllum af þeim sökum. Þvert á móti hefur hún aukizt talsvert, og stafar það eflaust af eftir- spurn frá hinum hraðvaxandi bifvéla- iðnaði. Það, sem glatazt hefur á öðr- um mörkuðum vegna samkeppni plastefnanna, hefur eftirspurn hifvéla- iðnaðrins bætt upp, og meira en það. Samt mundi vera ótímabært að draga þá ályktun, að málmplötuiðnaðurinn geti ekki verið í hættu staddur, með- an sala bifvéla haldi áfram að aukast. Það er ekki aðeins sennilegt, heldur fullvíst, að bifreiðaiðnaðurinn mun hverfa frá málmyfirbyggingum og taka upp plastyfirbyggingar. Eina ó- vissan í þessum efnum er sú, hvenær þessi breyting muni eiga sér stað. Plastbifreiðir, framleiddar í smáum stíl, hafa verið á vegum úti árum sam- an og næstum allir bifreiðaframleið- endur gera nú tilraunir með plast- efni. Fyrirtækið DKW-AUTOUNION vann t. d. alþjóðleg verðlaun í Monza- kappakstrinum árið 1956 með plast- yfirbyggðum straumlínubíl. Plastið sparar mannlegt vinnuafl Jafnvel þótt engir söluerfiðleikar væru, gæti þróun plastefnanna haft ákveðin vandamál í för með sér fyrir verkamenn. Málmana þarf yfirleitt að vinna á margvíslegan hátt, en plastefnin eru fyrst og fremst mótuð í framleiðsluvörur. Þessi umskipti úr vinnslu efnanna í mótun brevtir al- gjörlega eðli starfsins. Framleiðsla á litlum leikfangaskóflum úr blikki krefst t. d. ellefu vinnsluathafna fþ. e. skurður, höggning, snið, málning o. s. frv.). Með því a ðnota plast-spýti- mótunarvél (injection moulding ma- chine) má framleiða 8 slíkar skóflur á 60 sek. Eftir stuttan þjálfunartíma getur einn verkamaður stjórnað vél- inni með því að þrýsta á hnapp. Eftir 60 sek. tekur hann úr vélinni mót með 8 lituðum skóflum. Meðan næsta mót er í vélinni, aðgreinir hann skóflurnar átta, sem þá eru tilbúnar til pökkun- ar. Á svipaðan hátt eru fötur, balar, skálar og ker framleidd. Með 45— 120 sek. millibili má taka litaða hluti, allt að 8 kg á þyngd (samsvarar a. m. k. 24 kg stáls) út úr vélinni, tilbúna til pökkunar, svo framarlega sem unnt er að hreinsa þá á staðnum, eins og oft er þörf. Stórkostleg framleiðniaukning Breytingin úr málmvinnslu yfir í plastmótun gerir kleift að ná gífur- legri framleiðniaukningu, þ. e. af- kastaaukningu á hvern starfsmann. Þetta kemur greinilega fram í rann- sókn, sem Verkalýðssamband málm- iðnaðarmanna í Vestur-Þýzkalandi hefur látið gera á ryksuguframleiðsl- unni. Áður voru hlutar ryksuguhylk- isins steyptir úr alúmi, og þegar þeir komu úr málmsteypunni, þurftu fag- lærðir menn að hreinsa þá, skafa og gljáslípa (pólera). Nú eru hlutar þess- ir gerðir úr plasti með mótunarað- ferð. í stað hinna faglærðu slípunar- manna kemur nú kvenfólk í lægsta launaflokki, sem aðeins þarf að bregða hnífi á samskeytin. Ef við segjum, að afköst slípunarmannanna hafi verið 100, eru afköst kvennanna — sem vinna án nokkurra véla — l. 130%. Verksmiðja, sem framleiðir síma- tæki, gat tvöfaldað framleiðslu sína á fáum árum, jafnframt því sem verka- fólki fækkaði úr 2205 í 1752. Áður voru hinir margvíslegu innri hlutar símaáhaldsins gerðir úr ýmsum málmum. í dag er kassi símaáhaldsins gerður með þeim hætti, að með því að beita spýtimótun (injection mould- ing) má komast af án margra málm- hlutanna. Við þrjár mismunandi gerðir símaáhalda var unnt að fækka hinum höggnu stykkjum úr 301 í 132, hverfistykkjum (swivel parts) úr 103 í 29 og núningsstykkjum (friction parts) úr 14 í 1. Spýtimótunum fjölg- aði aftur aðeins úr 6 í 55. Á þennan hátt var hægt að draga úr vinnuafl- inu, ekki aðeins við framleiðslu hlut- anna, heldur einnig í samsetningar- verkstæðunum, þrátt fyrir tvöföldun framleiðslunnar. Sjálivirk pípuframleiðsla Spýtimótunin er aðeins ein af mörg- um plastvinnsluaðferðum. Annað dæmi er pípuframleiðslan, þar sem beitt er hinni svonefndu gegnþving- unaraðferð (extrusion process). Ný- tízku vél fyrir þessa aðferð þrýstir og mótar pípurnar stöðugt í þær stærð- ir, sem óskað er, og kælir þær síðan með því að leiða þær gegnum vatn. Því næst er pípunum lyft með vélaút- búnaði, og eru þær fluttar að söginni, sem sker þær niður í ákveðnar lengd- ir og vindur þær upp á sjálfvirkan hátt, svo að þær eru tilbúnar til af- hendingar. Aðeins einn maður stjórn- ar allri vinnslunni og hefur eftirlit með henni. Þá er sú aðferð að blása upp hola hluti, sem einnig er fullkomlega sjálf- virk. Fyrst framleiðir gegnþvingunar- þjappan hosustykki, sem látið er í klofið holmót, meðan það er enn heitt. Því næst er það mótað til með þrýstilofti. Á þennan hátt voru um 10 millj. flöskur framleiddar í Vestur- Þýzkalandi árið 1958. I nýjustu verk- smiðjunum er jafnvel fullgerðum flöskunum spýtt beint í umbúðirnar án nokkurrar frekari meðhöndlunar. Jafnvel stór ílát eins og stampar og tunnur, er rúma allt að 100 lítra, eru blásin þannig á sjálfvirkan hátt með sömu aðferð. Þá má nefna lofttæmingaraðferð- ina, sem er afar hentug fyrir fjölda- framleiðslu. Plastplötur, 0.2—15 mm þykkar og allt að 1X2 m að ummáli, eru hitaðar með infra-rauðum geisl- um. Hinar mýktu plötur eru síðan þvingaðar upp á við með loftþrýst- ingi og mótunum ýtt inn í holrúmið. Lofttómið veldur því, að plastefnið sýgur sig við mótin. Þannig er inn- rétting ísskápanna með hinum marg- víslegu holrúmum, allt eftir tegund eða gerð, mótuð með einu al-sjálf- virku átaki. Aðeins innsetning plast- plötunnar og fjarlæging hinna full- gerðu hluta eru enn framkvæmdar með handafli. Nýlega hafa jafnvel ís- 96 IÐNAÐARMAL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.