Iðnaðarmál - 01.05.1961, Side 24
Handhægur flúrskinslampi
með innbyggðum rafgeymi
og straumbreyti
Lýsing: -— Lampinn er burðarhæf-
ur, búinn 6 W flúrskinspipu, er fær
orku frá sérstökum innbyggðum raf-
geymi, og er komið fyrir í krómuð-
um ljóskastara. Kúpt plastgler skýlir
pípunni og ljóskastaranum. Pípan er
sjálftendrandi, og kveiking verður
eftir 3—5 sek. Tækið inniheldur einn-
ið hleðsluútbúnað. Ef rafgeymirinn
er fullhlaðinn, getur pípan lýst í tólf
klukkustundir samfleytt. Þegar þörf
er á hleðslu, er tækið tengt við Ijósa-
leiðslu, og fer hleðslan þá fram á al-
gjörlega sjálfvirkan hátt. Hlutfall
bruna og hleðslu er 1:2. Rafgeymir-
inn, sem gerður er af sama fyrirtæki,
er algjörlega lekaþéttur, og hefur það
engin áhrif á hann, þótt lampanum sé
kollvarpað af slysni.
Auk hinnar burðarhæfu tegundar
er einnig framleiddur lampi, sem ætl-
aður er fyrir vara- eða neyðarlýsingu
í byggingum. Sá lampi starfar algjör-
lega á sjálfvirkan hátt, og má einnig
nota hann sem færanlegan ljósgjafa.
Framleiðandi er A. D. Faber, Pastoor
Koenestraat 15, Velp., Hollandi. — E.T.D.
nr. 1767.
„Mobiliftor"
(Hreyjanlegt lyjtitœki)
Til að komast að afskekktum stöð-
um á byggingum o. fl. þarf oft að
nota stiga eða palla, og getur það
stundum reynzt bæði erfitt og tíma-
frekt. Með þessu nýja lyftitæki, sem
nefnist „Mobiliftor", er hægt að lyfta
manni í 25 feta hæð (7.6 m) á örfá-
um sekúndum, og getur hann þannig
komizt bæði fljótt og örugglega á
hinn afskekkta stað. Með þessum
hætti getur einn maður hæglega leyst
verk af hendi, sem við venjulegar að-
stæður krefst tveggja manna.
Auðvelt er að stjórna tækinu. Frá
vinnupallinum hefur stjórnandinn
fullkomið vald á hækkun og lækkun,
hreyfingum fram og aftur og snún-
ingi í hverja þá átt, sem óskað er.
Lyftingin er framkvæmd með þrýsti-
útbúnaði, sem knúinn er einföldum
olíuhreyfli.
Auðvelt er að flytja tækið af ein-
um stað á annan, og má bæði draga
það með öðru vélknúnu tæki eða
hreyfa það með eigin vélarafli. Notk-
un þess getur verið fjölbrevtileg, t. d.
við byggingar, viðhald og viðgerðir
skipa, flugvéla o. m. fl.
Framleiðandi er A. T. & E. (Wigan)
Ltd., Wigan, Lancs. Bretlandi. — DSIR
Technical Digest nr. 1358/júní 1961.
Borð með stöðugri
yfirborðshæð
Oft fer tími og erfiði til spillis við
að taka hluti, sem unnið er að, upp
af gólfi eða láta þá niður. Einnig
hættir ýmsum hlutum við skemmdum,
sem þannig eru meðhöndlaðir, eink-
um ef starfsmaðurinn getur ekki haft
undan þeim vinnsluhraða, sem vélar
hafa verið stilltar á.
Hægt er að auðvelda mjög slíka
meðhöndlun með því að nota þetta
nýja borð með stöðugri yfirborðs-
hæð. Sjálfvirkur útbúnaður stillir
hæð þess, jafnóðum og hlutur er tek-
inn af því eða látinn á það, svo að
yirborðshæðin er jafnan í þægilegri
vinnuhæð.
Aðalhluti þessa tækis er fjaður-
stillt borðplata, sem lætur undan, þeg-
ar hlaðið er á hana og lyftir sér, þeg-
ar tekið er af henni, og heldur sér
þannig stöðugt i þeirri hæð, sem
stillt hefur verið fyrirfram, eftir því
sem þægilegast er fyrir starfsmann-
inn. Tækið getur verið fast, eða því
er komið fyrir á hjólum, þannig að
hægt sé að nota það sem flutninga-
og hagræðingartæki.
Útbúnað þennan má laga þannig
til, að hann tryggi hagkvæma hring-
rás hreyfinga við störf eins og að láta
í vélar og taka úr þeim (machine
feeding and „take off“), einkum með
því að færa áfram af einu slíku borði
á annað.
Framleiðandi er Barron and Shepherd
Ltd., 315 Kennington Road, London S.E. 11.
— DSIR Teclmical Digest nr. 1335/maí
1961.
102
IÐNAÐARMÁL