Iðnaðarmál - 01.05.1961, Side 21
úr einu stykki, með því að hylj a mis-
munandi gerð byggingarefnanna
(byggingarstál, steinsteypu o. fl.).
Korn, steypuför og aðrar ójöfnur í
steinsteypurmi og logsuðusamskeyti í
stálinu eru vandlega hulin undir hin-
um rjómagula vinyl-hjúpi.
Húðin ei vatnsþétt og nægilega
sveigj anleg til þess, að þensla og sam-
dráttur í sjálfri byggingunni skemmi
hana ekki. Hún þolir gufu, sagga og
myglu, og snerting við jarðveg skað-
ar hana ekki, enda er hún látin ná
a. m. k. 15 cm niður fyrir yfirborð
jarðvegsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Union Car-
bide International Co. Division of Union
Carbide Corp., 270 Park Avenue, New York
17, NY.
Símakerfi fyrir hávaðasamt
umhverfi
Oruggt samtalskerfi er nauðsynlegt
fyrir menn, sem vinna á hávaðasöm-
um vinustöðum, eins og t. d. í nám-
um, einkum í nálægð véla eða færi-
banda. Til að uppfylla slíkar þarfir
hefur rannsóknarstofnun brezku kola-
námanna (The Mining Research Esta-
blishment of the National Coal
Boardl gert símakerfi, sem nú er
komið á markaðinn.
Algengt er, að höfð séu allt að 24
símatæki á kerfinu, þar sem það hef-
ur verið lagt, og er þeim komið fyrir
með vissu millibili á vinnusvæðinu.
Hvert tæki hefur bæði hátalara og
heyrnartól. Samtal getur farið fram
milli hverra tveggja tækja, sem óskað
er, og heyrist frá öllum hátölurunum.
Auk þess er útbúnaður við hverja
stöð til að stöðva eða loka fyrir nær-
liggjandi vélar.
Kerfi þetta ætti að geta komið að
góðu gagni í öðrum iðjuverum, eink-
um þar sem margir menn eru að störf-
um í nálægð hreyfanlegra véla og í
miklum hávaða eða við aðrar trufl-
andi aðstæður.
Framleiðandi er A. T. & E. (Wigan)
Ltd., Wigan, Lancs., Bretlandi. — Ur „Col-
liery Guardian", 2. febr. 1961. — DSIR
Technical Digest nr. 1316.
Gagnsæ hjólsagarhlíf
Gagnsæ plasthlíf til notkunar á
hjólsagir gera stjórnanda sögunar-
tækisins fært að sjá sögunarlínurnar
á hlutnum, sem unnið er að, jafn-
skjótt og hann nemur við sögunar-
hjólið. Með því að veita stjórnandan-
um þannig fulla yfirsýn yfir verk-
sviðið, er dregið mjög úr þeirri freist-
ingu hans að fjarlægja hlífina, ásamt
þeirri áhættu, sem því fylgir, að hann
skaði fingur sína eða augu. Hlífarn-
ar, sem framleiddar eru hjá Brett-
Guard Company (Bandaríkjunum),
halda verkefninu vel niðri, þétt að
sagarblöðunum, og gera starfsmann-
inum auðvelt að setja upp sérstök
verkefni án þess að nota C-klemmur.
Gagnstætt hinum venjulegu hlífum
(af ,,rocker“-gerð) hindrar gagnsæja
hlífin ekki borðin í að renna vfir
plötuna né tefur fyrir starfsmannin-
um, þegar saga þarf stór stykki. Hið
létta alúmínhylki, sem hlífin er fest
við, má flytja til hvaða staðar sem er
á plötunni, án þess að nota þurfi til
þess verkfæri.
U. S. T. 0. Nr. 10393.
Plastpokar notaðir við
steinsteypubyggingar til að
gera göt í steypuna
ASferð, sem sparar um 50% í vinnu-
launum og auk þess allmikiS efni.
Plastpoki, fylltur með rökum sandi,
er bundinn upp og festur við þver-
bönd með plasthring (PVC — poly-
vinylchloride) á þeim stað, þar sem
opið á að koma (mynd 1). Eftir að
steypan hefur verið lögð og harðnað,
er pokinn opnaður og sandurinn fjar-
lægður með vatnssprautu eða þrýsti-
lofti og pokinn síðan útbúinn fyrir
næsta op. Hægt er að nota pokann og
hringinn þrisvar sinnum.
Það er mikill kostur við þessa að-
ferð, að götin verða kringlótt, og er
það veigamikið atriði vegna styrk-
leika byggingarinnar. Auk þess verð-
ur að fjarlægja timburmót fljótlega,
eftir að steypt hefur verið, til að forð-
ast viðloðun, en plastpokana má
skilja eftir, þar til steypan hefur náð
IÐNAÐARMAL
99