Franskir dagar - 01.07.2008, Page 18
Franskir dagar - Les jours fran^ais
Far Breton
Far breton er frœgasta kaka Bretaníuskagans í Frakklandi. Það eru til mjög mörg afbrigði af
þessari köku og hún heitir í raun Farzfourn á bretónsku sem þýðir „kaka í ofiii“.
Þekktasta kakan inniheldur sveskjur, en í upprunalegu kökunni voru engar sveskjur.
Fyrir 6-8 manns
• 1 bolli volgt te
• 125 gr rúsínur
• 400 gr sveskjur
• 4 egg
• 250 gr hveiti
• Salt á hnífsoddi
• 20 gr sykur
• 4 dl mjólk
• Flórsykur til að skreyta með
Aðferð
1. Lagið einn bolla af tei og bíðið þar
til það er volgt. Látið rúsinurnar og
sveskjurnar liggja í teinu þar til þær
hafa tútnað út (u.þ.b. 1 klukkutími).
Hellið svo vökvanum af.
2. Takið steinana úr sveskjunum ef þeir
eru.
3. Stillið ofninn á 200°c.
4. Pískið saman eggjunum.
5. Setjið hveitið í stóra skál, bætið salti
og sykri saman við og hellið svo
eggjahrærunni út í. Að lokum er rús-
ínunum og sveskjunum bætt út í og
allt hrært vel saman.
6. Smyijiö 24 sm hringlaga form, hellið
deiginu í og bakið í u.þ.b. 1 klst, efsta
lagið á að vera brúnleitt. Stráið flór-
sykri yfir þegar kakan er tilbúin.
Uppskrift þýdd og stilfcerð afHuldu Guðnadóttur.
16