Franskir dagar - 01.07.2010, Síða 7

Franskir dagar - 01.07.2010, Síða 7
Franskir dagar - Lesjoursfrangais við og þurrka hey í fjárhúsinu. Því var auðvitað ekki frystikista eða neitt þannig en Guðný móðir Þorleifs kenndi þeim það góða ráð að týna fullt af arfa og það var svo mikill kuldi í arfanum og þannig vartil dæmis hægt að geyma fisk alveg heillengi. Kirkjustjórnin lagði mjög að þeim hjónum að taka tilboði um íbúðarhús inni á Búðum en þau vildu ekki verða til þess að aldagamalt prestssetur yrði lagt niður og fengu það I gegn að einnar hæðar stein- hús var byggt á Kolfreyjustað. Árið 1960 fluttu þau þar inn og bjuggu þar allt til að séra Þorleifur lét af störfum árið 1994. Þorleifur og Þórhildur eignuðust fjögur börn eftir að þau fluttu á Kolfreyjustað. Fyrir áttu þau Guð- nýju Sigríði (1952) og Ingibjörgu Þorgerði (1954). 1957 eignuðust þau dreng er lést nokkrum klukku- stundum eftir fæðingu, 1962 Kristmund Benjamín, 1963 Steinvöru Valgerði og 1965 Þórhildi Helgu. Einnig ólu þau hjón upp fóstursynina Jón Helga Ásmundsson (1952- systursonur Þorleifs) og Hjört Kristmundsson (1960 - bróðursonur Þorleifs). Sem fýrr segir var æðarbúskapur á Kolfreyjustað. Var það í Andey, sem er all stór eyja djúpt út á Fáskrúðsfirði. Þar var mikið æðarvarp sem krafðist mikillar vöktunar og aðhlynningar. Guðný móðir Þorleifs var góður liðsauki í varpinu, sér- staklega fyrstu árin á meðan börnin voru ung. í Andey varfyrstu árin hafst við í tjaldi og staldrað við í nokkra daga í nokkur skipti á hverju vori og fram á sumar. Eitt sinn var Guðný þar í botnlausu tjaldi í 10 daga ásamt Billa (Guðmundi Þór, dóttursyni sínum) og segja sögur að hann hafi spilað á blokkflautu fyrir selina. Straumur er þungur í firðinum og getur hvesst fyrirvaralaust, því var oft verið lengur í eyjunni en áætlað var þar sem ekki varfært í land. Seinna byggðu þau hjón kofa í Andey og breytti það heilmiklu í öllum aðbúnaði þar. Dúntekja í Andey var fastur liður í fjölskyldulífinu ogfóru öll börn þeirra, tengdabörn og mörg barnabörn í æð- arvarpið. Mörg ævintýri gerðust í Andey og á öll fjölskyldan frábærar minningar þaðan. Vorið var komið þegar farið var að huga að eyjaferð,- um miðja nótt í glampandi sól. Enn i dag fá börnin minningarleifturog vellíðunartilfinningu þegar þau finna lykt af æðarskitu. Íjúlí 1971 þegar farin var síðasta ferð í eyjuna það sumarið bilaði vélin í bátnum á leið í land. Þetta var fyrsta ferð Þórhildar Helgu í eyjuna og man hún enn eftir þegar Guðný systir hennar og Guðrún Kristinsdóttir reru bátnum upp í skriður, smekkfullum af fólki og dúni. Þá sömu nóttfæddistSigríður Inga (dóttir Ingibjargar) fyrsta barnabarn Þorleifs og Þórhildar. Hún dvaldi mikið á Kolfreyjustað eins og reyndarfleiri barnabörn. Sjómenn frá Fáskrúðsfirði fóru oft með fjölskyld- una út I Andey og þeir voru líka duglegir að færa fjölskyldunni björg í bú. Þar má nefna Aðalstein í Dvergasteini sem kom iðulega að Hafnartanga við Staðarhöfn og kastaði fisk í poka upp á klappir þar sem börnin tóku á móti. Var það steinbítur, lúða, rauðspretta og ýsa og svo, eins og sagt var, fiskur, en þannig var þorskurinn nefndur. Á Kolfreyjustað var ávallt mikill gestagangur og höfð- inglega tekið á móti hverjum og einum. Ótal erlendir ferðamenn fengu gistingu og síðan komu þakkarkort víðsvegar að úr heiminum þar sem gestrisnin var þökkuð. Eitt sinn kom ferðalangur á mótorhjóli og óskaði þess að fá að gista I hlöðunni. Þórhildur tók það ekki í mál heldur bjó um hann í gestaherbergi og staldraði hann við í nokkra daga. Þetta varfranskur skipstjóri og tókst góð vinátta með honum og seinna hans konu og þeim presthjónum og hittust þau oftar erlendis og héldu góðu sambandi. Eftirminnilegar voru einnig heimsóknir hr. Sigurbjörns Einarssonar biskups sem kom austur og dvaldi á Kolfreyjustað til hvíldar og endurnæringar. Eftir messur á Kolfreyjustað var ævinlega boðið upp á kaffi og með því inn í húsi sem og eftir kirkjukórs- æfingar. Var oft glatt á hjalla þegar sveitungar komu saman. Þórhildi og Þorleifi leið oftast nær vel á Kolfreyju- stað en skólamál barnanna í sveitinni fundust þeim erfið. Fyrst varfarskóli sem eldri börnin voru í en þau fóru síðan að Búðum í skóla, suður í Garð og á Norðfjörð. Yngri börnin voru í heimavistarskólanum að Tunguholti sem tók við af farskólanum. Það var ekki auðvelt fyrir fjölskylduna að senda börnin í burtu heilu vikurnar yfir veturinn allt frá 7 ára aldri. Árið 1977 var skólinn í Tunguholti lagður niður og börnunum í sveitinni keyrt daglega I Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar að Búðum. Breytti það heilmiklu í samvistum og lífi allra fjölskyldnanna í sveitinni. Börn Þórhildar og Þorleifs fóru öll i framhaldsnám og þurftu því, eins og enn þarf á Fáskrúðsfirði, að fara að heiman 16 ára gömul. Kirkjan á Kolfreyjustað er gamalt timburhús. Oft var þar þröng á þingi í kirkjulegum athöfnum. Ákveðið var að endurbyggja kirkjuna og var því verki nærri lokið, þegarskaðræðis norðanveðurskall á í septem- ber 1990. Þórhildur segir svo frá í viðtali við Ágúst Þorleifur og Þórhildur. Sigurðsson: „Þorleifur stóð við stofugluggann, þar sem ekkert byrgði sýn yfir kirkjuna og fjörðinn, þá segir hann allt í einu og kallar til mín: „Hún hrundi." Varð mér hverft við og snaraðist fram að stofu- glugganum og var þá sorgleg sjón. Kirkjuþakið lá í heilu lagi niðri I kirkjugarðinum ogveggirog stafnar höfðu hrunið saman. Hringdum við hið skjótasta á nágrannabæina og dreif fólk að til þess að bjarga því, sem bjargað yrði af munum kirkjunnar og var það raunarfurðu lítið skemmt eins og mjög gamall predikunarstóllinn og ýmsir aðrir góðir kirkjugripir, svo sem kaleikurog patína og var öllu heillegu komið í hús. Brátt var ákveðið að endurbyggja hið gamla guðshús, sem var frá árinu 1878 og þótti þá veglegt kirkjuhús. Því verki var lokið seint á sumr- inu 1992 og kirkjan endurvígð." Þau hjón sátu Kolfreyjustað alla prest- skapartíð Þorleifs Kjartans frá 1955- 1994 og sótti hann ekki um önnur brauð því þar leið þeim hjónum vel, undu glöð við sitt og vildu hvergi annarsstaðar búa. Fáskrúðsfirðingar tóku prestfjölskyld- unni afar vel og samskiptin við sókn- arbörnin voru alla tíð góð. Þorgrímur Jónsson góður vinur þeirra hjóna sagði svo í minningargrein um séra Þorleif: „Kolfreyjustaður er undursamlegt jarð- neskt himnaríki við rætur hins háa fjalls, með glitrandi fjöru, kul af hafi og þey af heiðum, fugl í eyju og útvörðinn Skrúð í fjarðarmynninu." Þegar Þorleifur lét af prestskap fluttu þau hjón í Hveragerði og bjuggu þartil dauðadags. Áttu þau gott ævikvöld þar og nutu daganna jafn ástfangin og samhent og ætíð. Þorleifur Kjartan lést á sjó- mannadag4. júní árið 2D00 og Þórhildur lést þann 8. apríl árið 2008. Þau eru jarðsett I Garðakirkjugarði í Görðum á Álftanesi, mitt á milli æskustöðva sinna Garðsins og Reykjavíkur. Heimildir: Viðtal Steinvarar Vaigerðar Þorleifsdóttur við Þór- hildi Oisladóttur, minningargreinar um séra Þorleif, viðtöl Ágústs Sigurðssonar og Geirs R. Andersen við Þórhildi Gísladóttur. Texti: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir. Ljósmyndir: Úr einkasafni. Sr. Þorleifur blessar söfnuSinn. 7

x

Franskir dagar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.