Franskir dagar - 01.07.2010, Side 22
Franskir dagar - Lesjoursfranqais
Mörgum saumaklúbbum landsins hefur verið legið á hálsi fyrir að
standa ekki undir nafni. Það á ekki við um klúbbinn sem tók vel bón
okkar um að elda nokkra góða rétti fyrir blaðið. í saumaklúbbnum
eru sex konur frá Fáskrúðsfirði. Þær hittast a.m.k. einu sinni í
mánuði, sinna handavinnunni af miklum móð í dágóða stund áður
en þær setjast til borðs og njóta veitinga þeirrar sem býður heim
I það skiptið. Eins og siður er í góðum saumaklúbbum var margt
saumað og prjónað í vetur en einnig kynntust þær silfursmíði og
smíðuðu sér allar hálsmen.
Klúbburinn var stofnaður fyrir fjórum árum þegar þær störfuðu
allar við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Það er afar létt yfir hópnum,
mikið talað og mikið hlegið. Þær segjast vera duglegar að prófa
nýja rétti og tertur eru í sérstöku uppáhaldi.
SkálaS I berjasaft og Sprite (1:3). Frá vinstri: Cuðrún íris Valsdóttir, GuSrun Gunnarsdóttir Michelsen, Hrafnhildur
Una GuSjónsdóttir, ÚlöfLinda SigurSardóttir, Margrét FriSriksdóttir og HeiSrún Ósk Ölversdóttir Michelsen.
Pasta/kjúklingasalat
400 g pasta
100 g klettasalat
2-3 kjúklingabringur
1 dl sólblómafræ
olivuolía
Saltog pipar
Aðferð
Sjóðið pasta eins og stendur á umbúðum. Skerið bringurnar í strimla og kryddið
með salti og pipar, steikið svo á pönnu upp úr olivuolíu. Ristið sólblómafræ
upp úr olivuolíu á pönnu þartil þau hafa fengið á sigfallegan lit. Blandið öllu
saman í stóra og víða skál.
Sósa
4 msk. sólþurrkaðir tómatar
1 tsk. basililku lauf Pasta/kjúklingasalat.
2 tsk. steinselja
1 dl olivuolia
2 msk. balsamic edik
1 tsk. fíflasýróp eða hlynsýróp. Sjá uppskrift að neðan.
Setjið þetta allt í blandara eða matvinnsluvél og berið fram með pastasalatinu.
Gott er að hafa brauð með ef maður vill.
22
Texti og myndir: Albert Eiriksson