Franskir dagar - 01.07.2010, Side 28

Franskir dagar - 01.07.2010, Side 28
Franskir dagar - Les jours franqais Kaupvangur í BÚÐAKAUPTÚNI Á FÁSKRÚÐSFIRÐI - saga hússins - 1. mynd. Kaupvangur (t.v.) og Vathötl (t.h.) um 1930. Úþekkturhöf. Kaupvangur var byggður fyrir rúmum 120 árum og er því mikilvægur hluti af menn- ingarsögu og uppruna Búðaþorps. Grein þessi er byggð á skýrslu sem eigendur Kaupvangs unnu árið 2009 fyrir styrkfrá Húsafriðunar- nefnd. í skýrslunni er gerð grein fyrir sögu hússins, ástandi þess og áætlun um endur- gerð. Hér verður vikið örfáum orðum að þróun Búðakauptúns í Fáskrúðsfirði, því næst gerð grein fyrir staðsetningu Kaupvangs í þorp- inu og loks sögð saga hússins eins langt og heimildir ná. Útfrá heimildunum ersettfram tilgáta um uppruna hússins. Þróun Búðakauptúns í Fáskrúðsfirði Upphaf Búðakauptúns er rakið til þess tíma þegar norskir útgerðarmenn hófu þar veiðar og útgerð umoguppúrl880. Árið 1881 komufyrstunorsku útgerðarmennirnir til Fáskrúðsfjarðar og fjölg- aði þeim á næstu árum eða fram til aldamóta. Á þessum tíma fór sjávarútvegur einnig að verða stærri þáttur í afkomu austfirskra bænda sem áður stunduðu jöfnum höndum kvikfjárrækt og sjó. Samfara aukinni útgerð færðist verslun sömu- leiðis í aukana. Friðrik Wathne mun fyrstur hafa hafið verslun á Fáskrúðsfirði en hann flytur þangað 1886. Stuttu seinna, eða árið 1888, setur Carl Tulinius upp verslun á Búðum en hún var síðar grunnur að Hinum sameinuðu íslensku verslunum sem ráku verslun á Búðum fram til ársins 1930. Örum og Wulff settu einnig upp verslun á Búðum 1889 og var verslun rekin á þeim grunni til 1931. Búða- kauptún fékk löggilt verslunarréttindi árið 1893. Búðaþorp, eða Búðaströnd eins og byggðarkjarn- inn nefndist í upphafi, tilheyrði Fáskrúðsfjarð- arhreppi fram til ársins 1907 er hreppnum var skipt í Fáskrúðsfjarðarhrepp og Búðahrepp. Hús sem ennþá standa í Búðakauptúni og eru talin byggð af norskum útgerðar- og verslunarmönnum eru Sjólyst (um 1884), Wathnes-sjóhús (um 1882), Tangi (1895) og Kaupvangur (1886). Frakkar hófu fiskveiðar við Austfirði mun fyrr en Norðmenn og byrjuðu líklega veiðar í Fáskrúðsfirði um miðja 19. öld. í bókinni Fransí biskví kemur fram að blómatími íslandsveiða Frakka var frá 28 því snemma á 19. öld og allt fram á 20. öldina. Fáskrúðsfjörður var aðalbækistöð Frakka á Aust- fjörðum og byggðu þeir þar sjúkraskýli (1897) og kapellu (1901), Franska spítalann (1904) og íbúðarhúsfyrir lækni (1907). Þessi hússtandaöll ennþá, þó í misjöfnu ástandi séu. Kaupvangur, staðsetning og umhverfi íbúðarhúsið Kaupvangur stendur utarlega í Búðaþorpi í Fáskrúðsfirði, mitt í þyrpingu gam- alla húsa sem hafa varðveislugildi og hafa verið lagfærð nokkuð á síðustu árum. Má þar nefna Grund (áður franska sjúkraskýlið), Læknishúsið, Tanga og Valhöll. Þessi hús standa nálægt eða við Hafnargötuna sem erein afaðalgötum þorpsins og er Kaupvangur mikilvægur hluti af þeirri götu- mynd. Skammt frá Kaupvangi stóð áður Franski spítalinn sem var fluttur og endurreistur sunnan fjarðarins, í Hafnarnesi. Nú hefur verið ákveðið að flytja spítalann aftur á fyrri slóðir og mun hann styrkja þennan húsakjarna enn frekar. Kaupvangur stendur mjög nálægt fjöruborð- inu og er hlaðinn veggur framan við húsið sem afmarkar ræktaðan garð með trjám og runnum. Hleðsluveggur þessi er að mestu í upprunalegri mynd. Fjaran fyrir framan húsið er ein af fáum óhreyfðum fjörum sem eftir eru í þorpinu. Þegar flóð er, nær sjórinn alveg upp að hleðsluveggnum. Tilheyrandi húsinu ersjóhús með áfastri bryggju. Ekki er vitað um byggingarár þess en í fasteigna- mati frá 1930 er getið um pakkhús á lóð Kaup- vangs og passar lýsing á því mjög vel við sjóhúsið. Kaupvangur, ásamt sjóhúsi, bryggju og hlöðnum garði, er því einnig stór hluti af þeirri þorpsmynd sem blasir við af sjó. Saga hússins [ Fasteignaskrá íslands er Kaupvangur sagður byggður árið 1905 en miðað við skráðar heimildir, munnmæli og myndir er húsið mun eldra. Húsið hefur borið nokkur nöfn í gegnum tíðina. í elstu heimildum þar sem það er talið til íbúðarhúsa er nafn þess Eyrarkrókur (1895) sem síðar hefur verið stytt í Krókur. Á einum stað er getið um nafnið Vík en fram til ársins 1920 er húsið oftast nefnt Guð- mundarhús eftir eiganda þess. Frá árinu 1920 og fram til 1949 er húsið nefnt Kaupangur en eftir þann tíma Kaupvangur. Húsið ber enn það nafn en stendur við Hafnargötu 15. Haft er eftir Baldri Björnssyni, eiganda og ábú- anda Kaupvangs frá 1949 til 2007, að elsti hluti hússins hafi verið tilsniðinn og fluttur inn frá Noregi. Þessi hluti hafi upprunalega verið veiða- færageymsla og verbúð norskra sjómanna. Á ytri gafli hússins og í kjallara þess má sjá borð og bjálka merkta með útskornum rómverskum tölum sem styður þessa frásögn. í fasteignamati frá 1930

x

Franskir dagar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.