Reykjanes - 22.04.2015, Qupperneq 4
4 22. Apríl 2015
Grindavík:
Fá viðbótarstarfsdag
Á fundi bæjarráðs Grindavíkur nýlega var tekin fyrir beiðni um viðbótarstarfsdag á leik-
skólum.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri fé-
lagsþjónustu-og fræðslusviðs kynnti
málið.
Fræðslunefnd leggur til að leik-
skólum verði veitt heimild fyrir
fimmta starfsdaginn skólaárið 2015-
2016. Jafnframt felur nefndin sviðs-
stjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs
að kanna viðhorf foreldra til starfs-
daga í gegnum Skólapúlsinn í næstu
foreldrakönnun.
Bæjarráð samþykkir tillögu
nefndarinnar og hvetur til þess að
áfram verði leitast við að starfsdagar
valdi sem minnstu raski á starfsemi
leikskólanna.
Algengt veðurkort í sumar?
Sumarið er á næsta leiti. Ætli veð-urkortið verði oft svona í sumar hjá okkur? Það væri flott eftir frekar leiðinlegan vetur.
Hraðfréttir úr Vogum
Að venju skrifar Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum föstudagspistla
á heimasíður sveitarfélagsins með yfirskriftinni Vogar-hraðferð. Við
gripum niður í pistil frá 10. apríl s.l.
Almannavarnir
Vogar eiga aðild að Almanna-
varnarnefnd með sveitarfélögunum
Garði, Sandgerði og Reykjanesbæ.
Grindavík starfrækir eigin Almanna-
varnarnefnd.
Ásgeir segir að nefndin vinni þessa
dagana að frágangi samþykkta fyrir
nefndina. Gert er ráð fyrir að efna
til hópslysaæfingar á næstunni, þar
sem tækifæri gefst til að sannreyna
alla ferla og samhæfingu hinna ýmsu
viðbragðsðila.
Umhverfisvika
Nú vinna sveitarfélögin að því að
undirbúa átak í umhverfismálum.
Ásgeir bæjarstjóri segir að bæjar-
búar verði hvattir að taka til hendi
og fjarlægja óþarfa rusl á lóðum
sínum. Sveitarfélagið Vogar mun
að sjálfsögðu ganga á undan með
góðu fordæmi og hafa opin svæði,
götur og stíga hreina og snyrtilega.
Sumarstörf námsmanna
Ásgeir bæjarstjóri segir að á
dögunum hafi borist bréf frá Vinnu-
málastofnun þar sem kynnt var átaks-
verkefni til að fjölga tímabundnum
störfum fyrir námsmenn í sumar.
Sveitarfélagið mun skoða vandlega
hvort einhver verkefni gætu fallið
undir þetta átak og með því móti
skapað störf fyrir námsmenn búsetta
í sveitarfélaginu.
Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins:
Bjartsýn á framhaldið
og gengi flokksins
Framsóknarflokkurinn lofaði stórt fyrir stórt fyrir síðustu kosningar og uppskar stórsigur
og í framhaldinu forystu í ríkisstjórn.
Framsóknarflokknum í samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn hefur tekist þegar
kjörtímabilið er hálfnað að standa við
stærstu kosningaloforðin. Unnið er nú
við að koma mörgum öðrum góðum
málum í framkvæmd. Þrátt fyrir þetta
tekst Framsóknarflokknum ekki að
skora í skoðanakönnunum. Flokkurinn
nýtur ekki trausts kjósenda.
Nú er nýlokið flokksþingi Fram-
sóknarflokksins þar sem tekið var á
málum og stórar yfirlýsingar birtar.
Reykjanes ákvað að heyra að-
eins í Silju Dögg Gunnarsdóttur i
Framsóknarflokksins og spyrja hana
aðeins út í ofanritað. Hvers vegna
skorar Framsóknarflokkurinn ekki í
könnunum? Mun ný afstaðið flokksins
rétta við stöðuna?
Öflug liðsheild
Framsóknar
Ég er mjög bjartsýn á framhaldið og
gengi flokksins. Við unnum stóran
kosningasigur vorið 2013 og við
vissum að það fylgi myndi nú aðeins
dala þegar við tækjum við stjórnar-
taumunum. Það er venjulega þannig
að þegar flokkur leiðir ríkisstjórn
þá dalar fylgið aðeins. Þannig að sú
staða kemur okkur alls ekki á óvart.
Í því felast sóknarfæri og þau munu
við nýta. Við stóðum við að leiðrétta
stökkbreytt húsnæðislán heimilanna
og næstu verkefni eru húsnæðismálin,
afnám verðtryggingar og afnám hafta.
Við ætlum að standa við gefin loforð
og ég tel að það muni skila sér í góðu
gengi okkar í næstu þingkosningum.
Nýafstaðið flokksþing var gríðalega
hressand og ég tel að það muni styrkja
flokkinn útá við og bæta fylgi hans.
Ályktanir flokksþing er að finna á
heimasíðu flokksins; www. framsokn.
is.
Góð mæting var á þingið og sterk
samstaða framsóknarmanna vítt og
breytt um landið, kom berlega í ljós.
Forystufólk flokksins, Sigmundur
Davíð, Sigurður Ingi og Eygló Harðar-
dóttir fengu afgerandi kosningu sem
sýnir hversu mikils traust þau njóta
á meðal framsóknarfólks, og hversu
ánægðir flokksmenn eru með þeirra
störf.
Þingflokkurinn okkar er stór og fjöl-
breyttur, 19 manns, og ekki endilega
hlaupið að því að halda góðu samstarfi,
vinskap og trausti innan hópsins. Það
hefur okkur tekist. Við erum öflug liðs-
heild og það er gríðarlega verðmætt.
Við gerum okkur grein fyrir að við
þurfum á hvort öðru að halda. Flest
höfðum við enga þingreynslu fyrir
tveimur árum en nú höfum við öðlast
reynslu og munum halda áfram að vaxa
sem þingmenn. Næstu tvö ár verða því
mjög spennandi og þingflokkurinn
kemur tvíefldur til næstu kosningabar-
áttu vorið 2017. Það eru nefnilega úrslit
kosninga sem gilda, ekki niðurstöður
skoðanakannana þegar upp er staðið.
Grindavík:
Stuðningur við upp-
byggingu golfvallar
Á fundi Bæjarráðs Grindavíkur 14. apríl s. l kynnti bæjarstjóri tillögu að viljayfirlýsingu milli
Grindavíkurbæjar, Bláa Lónsins og Golf-
klúbbs Grindavíkur um stuðning við
uppbyggingu golfvallar að Húsatóftum.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýs-
inguna fyrir sitt leyti og felur bæjar-
stjóra að undirrita hana og leggja fyrir
bæjarstjórn til staðfestingar.
Vindorku-
garður á
Reykjanesi
Á fund Skipulagsnefndar Grindavíkur komu fulltrúar EAB inn á fundinn
undir þessum lið og kynntu drög að vilja-
yfirlýsingu og áætlanir um vindorkugarð
á Reykjanesi. Áætlanirnar eru á frumstigi
og snúast eins og er að því hvort koma
eigi upp mælitækjum til að mæla kosti
vindmyllugarðs á svæðinu.
Skipulagsnefnd samþykkir að vinna
málið áfram en vísar viljayfirlýsingu
til frekari vinnslu í bæjarráði. Nefndin
leggur áherslu á að íbúafundur verði
haldinn áður en ákvörðun verður tekin.
Vogar:
D listinn
vill mót-
vægisað-
gerðir
Á fundi bæjarráðs Voga ný-lega var lagt fram erindi Björns Sæbjörnssonar f.h.
D-lista, tillaga til bæjarráðs um að
lögð verði fram formleg beiðni til
stjórnar Landsnets hf. um mót-
vægisaðgerðir vegna lagningar
Suðurnesjalínu 2.
Afgreiðslu málsins frestað.