Reykjanes - 22.04.2015, Síða 6
6 22. Apríl 2015
Eignaumsjón er óháður fagaðili þegar kemur að rekstri húsfélaga og rekstrarfélaga – og því frábær lausn fyrir eigendur atvinnuhúsnæðis. Í okkar umsjá
ertu í góðum höndum - við sjáum um fjármálin, fundina, undirbúning framkvæmda og viðhalds og annarra þátta sem þarf að leysa.
Er húsfélagið í lausu lofti ?
»
Vantar óháðan aðila til að annast málefni húsfélagsins eða rekstrarfélagsins ?
Eignaumsjón hf . – Suður landsbraut 30 – Sími 585 4800 – afgreids la@eignaumsjon. is – www.eignaumsjon. is
Auglýsingasíminn er 578 1190
Netfang: auglysingar@fotspor.is
Bylting og hvað svo
Bókin Bylting – og hvað svo? eftir Björn Jón Bragason er væntanleg hjá Bókaútgáfunni
Sölku í lok vikunnar.
Bylting – og hvað svo? er nýstárleg
bók um afdrifarík umskipti í íslenskri
sögu. Bókin hverfist um stjórnar-
skiptin 1. febrúar 2009; fram koma
margvíslegar nýjar upplýsingar um
aðdraganda þeirra og greint er frá
örlagaríkum atbuðurðum sem fylgdu
í kjölfarið.
Á liðnum árum hefur mikið verið
fjallað um bankahrunið haustið 2008
og aðdraganda þess, en eftirmálum
minni gaumur gefinn. Hér er á skil-
merkilegan og beinskeyttan hátt sagt
frá atburðum sem án efa hafa haft
varanleg áhrif á þjóðlífið, efnahags-
málin og þjóðarsálina; greint er frá
óeirðum, mótmælum, nýju hruni í
kjölfar hrunsins, björgunartilraunum,
einkavæðingu í skjóli nætur, svo fátt
eitt sé nefnt. Umfjöllunarefnið kemur
öllum við og mun koma mörgum á
óvart.
Björn Jón Bragason er fæddur í
Reykjavík árið 1979. Hann braut-
skráðist með meistarapróf í sagn-
fræði frá Háskóla Íslands 2006 og
lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskól-
anum í Reykjavík 2012. Björn Jón
hefur stundað margháttuð fræðistörf
undanfarin áratug og árið 2008 kom
út bók hans Hafskip í skotlínu.
Fréttatilkynning
Mishæðótt holótt sprungið
og farið að brotna
Á fundi bæjarstjórnar Garðs þann 1. apríl s.l. var rætt um ástand þjóðvega í Sveitarfélaginu
Garði.
Eftirfarandi er sameiginleg bókun
bæjarstjórnar vegna ástands þjóðvega
í sveitarfélaginu:
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs
lýsir miklum áhyggjum af slæmu ástandi
þjóðvega í sveitarfélaginu. Af því stafar
slysahætta og við það verður ekki unað.
Bæjarstjórn bendir á að slitlag á
Garðvegi, milli Reykjanesbæjar og
Garðs, er mjög illa farið, mishæðótt,
holótt, sprungið og farið að brotna með
köntum. Það sama á við um Sandgerð-
isveg, milli Garðs og Sandgerðis. Bæj-
arstjórn ítrekar fyrri ábendingar um
að nauðsynlega þurfi að breikka Sand-
gerðisveg, en um hann fer mikil umferð
þungaflutninga og vegurinn uppfyllir
ekki kröfur vegna þess.
Bæjarstjórn Garðs skorar á Vega-
gerðina að nú þegar verði ráðist í
nauðsynlegar endurbætur og lagfær-
ingar á þjóðvegum í sveitarfélaginu.
Við núverandi ástand og með stöðugt
versnandi ástandi veganna er umferð-
aröryggi stefnt í óefni, með tilheyrandi
slysahættu.
Samþykkt samhljóða að fela bæjar-
stjóra að senda bókun bæjarstjórnar til
Vegagerðarinnar og alþingismanna.
Viltu taka þátt í ný-
sköpun og þróun í
Grindavík?
Ýmis uppbygging og þróun á sér nú stað í öflugri atvinnu-starfsemi í Grindavík eins
og fullvinnsla sjávarafurða, líftækni,
haftengd ferðaþjónusta, framleiðsla á
snyrtivörum og margt fleira, í anda
Auðlindastefnu Grindavíkur. Grinda-
víkurbær hefur ákveðið að bjóða fyr-
irtækjum að sækja um styrk til þess
að ráða til sín nemendur til að sinna
verkefnum sem lúta að nýsköpun og
þróun í starfseminni.
Um er að ræða styrki sem geta orðið
allt að 500 þúsund hver. Styrkir geta
verið allt að 50% af styrkhæfum kostn-
aði gegn mótframlagi umsækjanda sem
getur verið í formi vinnu.
Umsóknum, með nafni verkefnis og
umsækjanda, skal skilað til skrifstofu
Grindavíkurbæjar, eða á netffang-
iðrobert@grindavik.is, í síðasta lagi
30. apríl n.k. , merkt „Nýsköpun og
þróun í Grindavík„. Í umsókninni skal
koma fram hvaða verkefni um er að
ræða, hvert sé markmið verkefnisins og
fjárhagsáætlun. Verkefnin skulu unnin
í Grindavík. Fylgt verður viðmiðum
Vaxtarsamnings Suðurnesja við mat á
styrkhæfum kostnaði.
(Heimasíða Grindavíkur)
Víðavangshlaup Grindavíkur
á sumardaginn fyrsta
Fimmtudaginn 23. apríl kl. 11:00 verður árlegt víðavangshlaup Grindavíkur á sumardaginn
fyrsta. Allir sem taka þátt fá verðlauna-
pening frá Bláa Lóninu. Dagskráin er
eftirfarandi:
Hlaupið verður ræst frá sundlauginni
(við hraðahindrun á Stamphólsvegi).
Skráning á staðnum frá kl. 10:30.
Drykkir og bananar við endamark.
Hlaupinu verður skipt í eftirfarandi
flokka og ræst út í aldursröð:
Leikskólakrakkar (ásamt foreldrum/
forráðamönnum/öfum og ömmum,
foreldrum með barnakerrur osfrv)
1.-2. bekkur
3.-4. bekkur
5.-7. bekkur
8.-10. bekkur
16 ára + (fullorðinsflokkur), hlaupa
með 8.-10. bekk.
Búð er að einfalda hlaupaleiðina. Sjá
nánar á kortinu.
Leikskólinn: Rauður hringur (boðið
verður upp á styttri leið fram hjá sund-
lauginni fyrir þá sem vilja)
1. og 2. bekkur: Rauður hringur
3.-4. bekkur: Gulur hringur
5.-7. bekkur: Gulur og rauður hringir
8.-10 bekkur: 3 gulir hringir
16+fullorðnir: 3 gulir hringir
Gulur hringur = 1,3 km
Rauður hringur = 1 km
Verðlaun:
Vetrarkort í Bláa Lónið fyrir fyrsta
sæti í 5.-7. bekk, 8.-10, bekk og full-
orðinsflokki.
Kort í Fjölskyldugarðinn fyrir fyrsta
sæti í 1.-2. bekk og 3.-4 bekk.
Mætingabikar fyrir þann bekk sem
er duglegastur að mæta.
FRÍTT Í SUND FYRIR ALLA BÆJ-
ARBÚA ALLAN DAGINN. OPIÐ KL.
10:00-15:00.
Grindavíkurbær
Foreldrafélag Grunnskóla
Grindavíkur
Foreldrafélag leikskólans Lautar
Foreldrafélag
heilsuleikskólans Króks
Bláa Lónið