Reykjanes - 22.04.2015, Side 8
8 22. Apríl 2015
Flott úrval af
gæða matvörum
Í Garðinum er starfandi fyrirtæki sem ber nafnið Matvæladreifing.
Reykjanes leit við einn daginn og hitti
þar Kristmund Hákonarson eiganda.
Hann sagði að Matvæladreifning hefði
starfað frá árinu 2006. Í dag vinna hjá
fyrirtækinu sjö starfsemenn
Í Garðinum framleiðum við hina
vinsælu Kúttersíld. Þar er um að ræða
marineraða, gaffalbita og síldarsalöt.
Einnig framleiðum við á staðnum Kút-
ter fiskibollur. Þessar framleiðsluvörur
eru bæði boðnar í neytendapakkn-
ingum, sem við sjáum í flestum mat-
vöruverslunum og svo í stærri pakkn-
ingum fyrir mötuneyti og veitingastaði.
Við dreifum einnig vörum fyrir
framleiðendur. Þar má nefna harðfisk
frá Grenivík og Eskifirði. Harðfisk-
urinn er sífellt að vinna á enda um
afbragðsvöru að ræða.
Sviðasultan kemur frá Blönduósi.
Við erum svo þau einu á landinu sem
dreifum hamsatólg, tólg, hnoðmör og
hangifloti.
Við erum einnig með reykta ýsu,
sigin fisk, saltfisk og nýja ýsu. Ekki
má svo gleyma reykta rauðmaganum.
Hákarl höfum við boðið uppá í mörg
ár.
Kristmundur sagði að starfsemin
gengi ágætlega. Við erum að dreifa
þessum vörum um allt land.
Nú er bara að hvetja Suðurnesja-
menn til kaupa þessar gæðavörur, sem
Matvæladreifing í Garðinum býður í
verslunum hér á Suðurnesjum.
Einstakt tækifæri fyrir
unnendur myndlistar
Vefuppboð á verkum Þórarins B. Þorlákssonar
Vefuppboð verður haldið á verkum Þórarins B. Þorláks-sonar dagana 18. – 29. apríl
n.k. Alls verða boðnar upp 13 myndir,
bæði málverk og teikningar, eftir
þennan frumkvöðul íslenskrar mynd-
listar. Myndirnar verða allar til sýnis á
meðan á uppboðinu stendur í Gallerí
Fold, Rauðarárstíg.
Um einstakan viðburð er að ræða þar
sem myndir eftir Þórarin eru fágætar
og rata ekki oft fyrir almenningssjónir,
utan verka í eigu safna og jafnvel þá
sjaldnast margar í einu. Að sögn Jó-
hanns Hansen listmunasala Gallerís
Foldar selur galleríið alla jafna eina til
tvær myndir eftir Þórarin á hverju ári.
Eftirspurnin sé mun meiri en afar erfitt
sé að fá þessa fágætu dýrgripi í sölu. Þá
sé einnig afar sérstakt að fá teikningar
eftir listamanninn því lítið hafi varðveist
af slíkum myndum. Á uppboðinu nú
verði hins vegar nokkrar teikningar.
Galleríið hefur einungis tvisvar áður
fengið teikningar eftir Þórarin í sölu
á þeim ríflega 20 árum sem það hefur
starfað.
Þórarinn B. Þorláksson var fæddur
árið 1867, 13. í hópi 14 systkina, prests-
sonur en missti föður sinn ungur. Hann
hélt til Reykjavíkur árið 1885 til að nema
bókband og starfaði við það framan af.
Hann hóf nám í dráttlist hjá frú Þóru
Thoroddsen en hún hafði numið teikn-
ingu í Kaupmannahöfn. Árið 1895 hélt
hann til Kaupmannahafnar til að læra
að mála en Alþingi styrkti Þórarin til
fararinnar. Árið 1900 hélt hann fyrstu
sýninguna á verkum sínum í Reykja-
vík og er sú sýning jafnan talin fyrsta
íslenska málverkasýningin.
Þórarinn málaði aðallega landslags-
myndir frá Íslandi á ferli sínum. Hann
hafði mikil áhrif á aðra listamenn hér
á landi, kenndi m.a. teikningu í Iðn-
skólanum og seldi myndlistarvörur,
auk þess sem hann var einn af helstu
forgangsmönnum Listvinafjelagsins,
sem meðal annars stóð fyrir byggingu
sýningarskála á Skólavörðuholtinu.
Þórarinn er elstur þeirra sem kallaðir
hafa verið frumkvöðlar íslenskrar
myndlistar.
Uppboðið og ekki síður sýningin á
þeim verkum er einstakt tækifæri fyrir
allt áhugafólk um íslenska myndlist til
að kynnast myndum hans enn betur.
Myndirnar eru allar úr fórum ættingja
listamannsins og hafa sumar verið
sýndar áður á listasöfnum.
Ásmundur Friðriksson alþingismaður:
Fólkið í landinu skilur ekki svona pólitík
Ásmundur Friðriksson var í hópi nýju þingmannana, sem settist á Alþingi eftir síðustu kosn-
ingar. Kjörtímabilið er núna að verða
hálfnað. Hvernig ætli nýjum þingmanni
líki vinnustaðurinn? Álit almennings er
ekki mikið á Alþingi. Reykjanes heyrði
aðeins hljóðið í Ásmundi, en málflutn-
ingur hans hefur oft vakið athygli og
umtal meðal landsmanna.
- Hvað segir þú Ásmundur. Hvernig líka
þér starfshættirnir á Alþingi?
Nefndarstarfið er hjartað í starfi
þingsins að mínu viti. Þar fer öll vinnan
fram og mikill skóli að vinna í nefndar-
starfinu. Það er yfirgripsmikið og ekki
víst að öll málin séu jafn mikilvæg eða
áhugaverð en þau fá faglega og mikla
umræðu þar sem öllum sjónarmiðum
er gert jafn hátt undir höfði finnst mér
í umsögnum og heimsóknum fyrir
nefndirnar sem ég er í Atvinnu- og
Velferðarnefnd. Aðrir telja það sjálf-
sagt þingið sjálft, þ. e. a. s málstofan
sem fólkið sér í sjónvarpinu og fjöl-
miðlarnir fjalla um. Ég er ekki viss
um að ræðutíminn og það sem unnið
er í nefndunum sé samanburðarhæft
þegar rætt er um afköst þingsins. Það
er auðvitað mest áberandi þær pólitísku
átakalínur sem birtast í dægurþrasinu í
þinginu og oft er mjög yfirborðskennt
og mikilvægara að fara í manninn en
málefnið eins og margir fjölmiðlar gera
líka.
Allir þingmenn bera ábyrgð á litlu
trausti til þingsins. Ég upplifi um-
ræðuna um Evrópusambandið og
þjóðaratkvæðagreiðslu sem dæmi um
kostulegan viðsnúning hvort þú ert í
stjórn eða stjórnarandstöðu. Viðsnún-
ingurinn speglast þannig í þinginu að
þeir sem vildu fara í EU á síðasta þingi
vildu ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um
aðildarviðræður og felldu tillögu minni-
hlutans þar að lútandi. Nú eru flutnings-
menn tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu
um áframhaldandi viðræður við EU
þeir sem stóðu fremstir í flokki á síð-
asta þingi að hafna þjóðaratkvæði um
tillöguna og þeir sem lofuðu að kosið
yrði um aðildina að EU á þessu þingi
draga lappirnar. Þessu stóra máli er
snúið í hring og fólkið í landinu skilur
ekki svona pólitík og glatar trausti á
Þinginu sem er eins og jójó í málinu.
Ég eins og margir frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins sögðum fyrir síðustu
kosningar að þjóðinni væri treystandi
til að kjósa um það hvort við ættum að
ganga í Evrópusambandið eða ekki. Ég
er ekki hræddur við þá niðurstöðu og
stend við það sem ég sagði.
- Hvað finnst þér um launaþróunina í
landinu? Er rétt af launþegahreyfingunni
að krefjast prósentuhækkunar á allan
launastigann?
Það er mikilvægt að leiðrétta laun í
landinu og ég hef hallast á það að þær
greinar atvinnulífsins sem geti staðið
undir hækkun og leiðréttingu laun eins
og útflutningsgreinar, ferðaþjónusta,
verslun og þjónusta. Miðað við afkomu-
tölur, hagnað og arðgreiðslur mjög víða
í atvinnulífinu er svigrúm til bættra
launa án þess að þeim hækkunum verði
fleytt út í verðlagið. Framleiðni hefur
aukist gríðarlega og verkafólkið á að fá
hlutdeild í þeirri hagræðingu og betri
afkomu. Það sama á með aðrar greinar,
hagræðing og framleiðni er forsenda
bættra launa.
- Kjör margra eldri borgara eru ansi
bágborin og hafa ekki náð að halda í
við launaþróun. Verðum við ekki að for-
gangsraða á annan hátt en nú er gert?
Jú, það þarf að bæta kjör eldri borgara
og öryrkja þessa lands. Strax í upphafi
kjörtímabilsins voru þær skerðingar
sem settar voru 2009 dregnar til baka
en það þarf meira til. Við verðum að
fara í gegnum mál þess hóps og skoða
allar leiðir sem geti bætt kjör þeirra.
Þessi hópur stækkar ört og við verðum
að bregðast við því með fleiri dvalar-
rýmum, heimaþjónustu og ekki síst að
hækka lífeyrisaldur fljótlega í 70 ár og
jafnvel innan ekki svo langs tíma í 75
ár. Í þessu sambandi er verið að tala
um áratug eða lengri tíma. Unnið er að
samræmingu kostnaðar við heilbrigð-
isþjónustu sem mun koma þessum
hópum vel. Ég hef sagt það áður að við
verðum dæmd af því hvernig við búum
að ævikvöldi eldri borgara þessa lands.
- Sú var tíðin að Sjálfstæðisflokkurinn var
með fylgi upp á 35-45% meðal þjóðar-
innar. Svona var þetta fram á síðustu
ár. Nú má kalla gott hangi flokkurinn í
25%. Á sama tíma eru Píratar að mælast
með svipað fylgi, þótt fáir viti fyrir hvað
þeir standa. Eru mál að þróast þannig
að Sjálfstæðisflokkurinn sé að festast í
20-25% fylgi?
Ég varaði við því strax sumarið 2012
að Sjálfstæðisflokkurinn væri að missa
fylgi unga fólksins í landinu. Það er
komið í ljós því miður og verkefnið er
að endurheimta traust þess hóps með
því að flokkurinn fari til þeirra og hlusti.
Ég endurtek, fari til þeirra og hlusti.
Hlusti á vilja og hugmyndir unga fólks-
ins. Ég vil að Sjálfstæðisflokkurinn geri
samning við unga fólkið í landinu um
framtíð þess
Samningurinn snúist um að við
setjum unga fólkið og ungu fjöl-
skyldurnar í forgang ásamt menntun
og velferð fyrir alla. Samning sem fjallar
um trúnað, og traust og að hér verði
áfram byggt upp fjölbreytt atvinnulíf
sem reist er á nýsköpun og sjálfbærum
auðlindum landsins sem greiði góð
laun.
Mér finnst við eiga meira inni og
munum sýna það þegar við höfum lokið
þeim stóru málum sem eru i gangi í
þinginu. Verkefnið er að standa með
fólkinu.