Reykjavík - 18.04.2015, Síða 2
2 18. Apríl 2015REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Fjölskyldudagur í Gróttu
Til stendur að fagna komandi sumri á Seltjarnarnesi með viðburðaríkum fjölskyldu-
degi í Gróttu á sumardaginn fyrsta,
fimmtudaginn 23. apríl. Hátíðin höfðar
til allra aldurshópa segir í tilkynningu
frá bænum.
Lagt er til að fólk taki með skólfur
og fötur til leikja í fjörunni og líka til
að krækja í furðuverur sem síðan verða
rannsakaðar innandyra í Fræðasetrinu.
Fjölmargir viðburðir verða og
lifandi tónlist, kaffi og vöfflur lika.
Skipulögð dagskrá stendur frá kl. 14-
16 en opið er út í eyjuna frá kl. 13:
40 -17: 40 og mun Björgunarsveitin
Ársæll sjá um að ferja fólk sem ekki
á auðvelt með að komast fótgangandi
til og frá Gróttu. Friðlandið Grótta
verður svo lokað allri umferð frá 1.
maí til 15. júlí.
Íþrótta- og tómstundaráð borgarinnar:
Átak vegna afmælis
Til stendur að kanna laun kynjanna og stefna að því að laga kynbundinn mun
hjá starfsmönnum Íþrótta- og tóm-
stundaráðs borgarinnar. Á dögunum
var samþykkt tillaga í ráðinu svo
hljóðandi: „Í tilefni þess að í ár fagnar
Reykjavíkurborg 100 ára afmæli
kosningarréttar kvenna á Íslandi
þá mun ÍTR láta gera jafnlaunaút-
tekt innan sviðsins og skal ÍTR vera
búið að ná svo staðfest verði jafn-
launavottun á afmælisárinu 2015.“
Tillagan var lögð fram að fulltrúa
Framsóknar- og flugvallarvina í
ráðinu.
10. Lögð fram að nýju tillaga Fram-
sóknar- og flugvallarvina frá síðasta
fundi um jafnlaunaátak innan ÍTR.
Í jafnlaunavottun er fólgið að
konur og karlar fái sömu laun fyrir
sömu eða jafnverðmæt störf.
Starfsfólk Íþrótta- og tómstunda-
ráðs sinnir ýmsum störfum víða í
borginni, til að mynda í sundlaugum,
íþróttamiðstöðvum, Hinu Húsinu, á
skíðasvæðum, í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum og víðar.
Karlar og heimilið
Hvert er hlutverk karlmanns-ins í dæmigerðri fjölskyldu? Í dag klukkan 14 verður efnt
til málþings í tengslum við sýninguna
MENN sem nú stendur yfir í Hafnar-
borg í Hafnarfirði, þar sem meðal
annars verður rætt um þetta.
Rannsóknarstofnun í jafnréttis-
fræðum við Háskóla Íslands (RIKK)
skipuleggur málþingið en þar koma
fræðimenn og samfélagsrýnar saman
og ræða efni sýningarinnar frá sjón-
arhóli karla- og jafnréttisfræða.
Þátttakendur eru allir þekktir fyrir
rannsóknir eða skrif um jafnréttismál
en það eru þeir Ingólfur V. Gíslason,
Jón Ingvar Kjaran og Árni Matth-
íasson. Haukur Ingvarsson rithöf-
undur og bókmenntafræðingur stýrir
málþinginu en að framsöguerindum
loknum taka listamennirnir, sem eiga
verk á sýningunni, þátt í pallborðsum-
ræðum.
Sýningin MENN beinir sjónum að
stöðu karla við upphaf 21. aldar og
þeim breytingum sem orðið hafa á
högum þeirra í ljósi breyttrar stöðu
kvenna. Á sýningunni eru verk eftir
þá Curver Thoroddsen, Finn Arnar
Arnarson, Hlyn Hallsson og Kristinn
G. Harðarson. Í verkunum takast þeir
á við spurningar um stöðu karla innan
fjölskyldu, hugmyndir um þátttöku
þeirra í heimilislífi, ábyrgð á afkomu
og uppeldi barna.
Óbreytt eignarhald Toyota
Sögusagnir um að Magnús Kristinsson, sem varð lands-þekktur fyrir mikil umsvif fyrir
hrun og útgerð frá Eyjum, sé að nýju
orðinn eigandi Toyotaumboðsins á
Íslandi, eiga ekki við rök að styðjast.
Töluvert hefur verið rætt manna á
milli, í Vestmannaeyjum sem Reykja-
vík undanfarið að Magnús hafi að nýju
eignast Toyota. Hann keypti Toyota á
Íslandi árið 2005, en síðan tók Lands-
bankinn það yfir eftir hrun.
Núverandi eigendur Toyotaum-
boðsins hérlendis
eru Úlfar Stein-
dórsson, forstjóri
Toyota og Kristján
Þorbergsson, sem
eiga það til helm-
inga, staðfestir Úlfar
í samtali við blaðið.
Magnús Kristinsson er hins vegar
stór eigandi í fyrirtækinu Kraftvélum
sem meðal annars flytja inn lyftara frá
Toyota. Hann er þar stjórnarformaður
og mun eiga um 40 prósenta hlut.
Stjórnsýsla meirihluta sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi gagnrýnd:
Hæstaréttarmál
aldrei rætt í bæjarráði
Ég var aldrei upplýst um að ákveðið hafi verið að áfrýja niðurstöðu héraðsdóms og það
var aldrei rætt um það í bæjarráði,“
segir Margrét Lind Ólafsdóttir. Þessa
ákvörðun hafi meirihlutinn tekið án
samráðs og ekki einu sinni haft fyrir
því að láta vita.
Hér vísar Margrét til þess þegar Sel-
tjarnarnesbær var í Hæstarétti dæmdur
fyrir ólögmæta uppsögn og til greiðslu
miskabóta, þegar konu sem unnið hafði
hjá bænum í aldarfjórðung var sagt upp
fyrirvaralaust og vísað út af vinnustað.
Samfylkingin gagnrýndi uppsögn-
ina og aðferðina á sínum tíma í bæj-
arstjórn.
Reykjavík vikublað hefur nokkuð
fjallað um málið. Starfsmannafélag
Reykjavíkur hefur gagnrýnt aðgerðir
bæjarins og sálfræðingur hefur bent
á að slík framkoma við fólk sé langt
í frá til fyrirmyndar. Ásgerður Hall-
dórsdóttir, bæjarstjóri hefur ekki viljað
ræða þetta mál við blaðið; hvorki málið
efnislega, né viðbrögð bæjarins við
dómi Hæstaréttar.
Margrét Lind er ósátt við að
meirihluti Sjálfstæðisflokksins á Sel-
tjarnarnesi bíti höfuðið af skömminni
með því að taka einhliða ákvarðanir
um dómsmál og láti ekki svo lítið að
upplýsa kjörna fulltrúa. „Þetta þykir
mér áfellisdómur yfir störfum þeirra
því þótt ég sé í minnihluta að þá sit ég
í stjórn bæjarráðs og er bæjarfulltrúi
og það á ekki að ganga fram hjá því,“
segir Margrét Lind.
Nýlega var Seltjarnarnesbær
dæmdur í héraði fyrir ólöglega ráðn-
ingu. Margrét Lind segir ljóst að ekki
hafi faglega verið staðið að ferlinu,
„sem ég harma mjög,“ segir Margrét
Lind. Samfylkingarfólk hafi ítrekað
komið því á framfæri að vandað sé til
verka hjá bænum og fagleg vinnubrögð
ástunduð. „Það er greinilegt að það þarf
að bæta stjórnsýsluleg vinnubrögð og
vona ég að með þessum dómum verði
það gert,“ segir Margrét Lind.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri
hafði ekki svarað erindi blaðsins þegar
það fór í prentun.
Aldarafmæli Víðavangshlaups ÍR:
Borgarstjórinn
hleypur hjá ÍR
„Ég hef satt best að segja oft verið í betra formi,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri sem
segist þrátt fyrir það ætla að taka
þátt í Víðavangshlaupi ÍR á sumar-
daginn fyrsta, en þá á hlaupið aldar-
afmæli. Fyrst var hlaupið sumar-
daginn fyrsta árið 1916 og á enginn
íþróttaviðburður hérlendis sér jafn
langa samfellda sögu. „Af þessum
ástæðum ætla ég að hlaupa!“ segir
Dagur sem skrifar þessa orðsendingu
í Facebook hóp Breiðhyltinga. Hann
hvetur Breiðholtsbúa til að reima á sig
hlaupaskóna.
ÍR-ingum telst til að 9281 kepp-
andi hafi komist í mark í Víðavangs-
hlaupinu og nú er markið sett á að
sprengja tíu þúsund keppenda múr-
inn. ÍR-ingar hyggjast verðlauna sér-
staklega þann þátttakanda sem rýfur
þennan múr með því að hlaupa yfir
marklínuna.
Hlaupið er fimm kílómetrar og
liggur leiðin um hjarta Reykjavíkur-
borgar. Keppt er í ýmsum aldurs-
flokkum og veitt verðlaun fyrir fyrsta
karl og fyrstu konu í öllum flokkum og
líka í sveitarkeppni karla og kvenna.
Margrét lind Ólafsdóttir. Ásgerður Halldórsdóttir.
Dagur segist ekki ætla að missa af
hlaupinu, þótt formið hafi verið
betra.
Vonast er til þess að 10 þúsundasti keppandinn taki þátt í hlaupinu í ár, en
Víðavangshlaup ír hefur verið haldið óslitið í heila öld.
Myndin sýnir verk Curvers. Kung Fu,
þvottahús 2015.