Reykjavík - 18.04.2015, Qupperneq 12
Bæjar- og menningarhátíð haldin 24. – 27.apríl í Sveitarfélaginu Árborg
Fjöldi sýninga, tónleika og annarra viðburða fyrir alla fjölskylduna. „Gaman saman“
stimpilleikurinn á sýnum stað. Nánar um hátíðina á www.arborg.is.
2014
Bæjar- og enningarhátíð haldin 23. – 26.apríl í Sveitarfélaginu Árborg
Fjöldi sýninga, tónleika og annarra viðburða fyrir alla fjölskylduna. „Gaman saman“
leikurinn á sýnum stað. Opnunarhátíð á Hótel Selfoss kl. 17:00 fim. 23. apríl þar sem
menningarviðurkenning Árborgar 2015 er afhent. Nánar um hátíðina á www.arborg.is.
5
18. Apríl 201512 REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
MATARSÍÐA SVAVARS
Svavar Halldórsson
svavar@islenskurmatur.is
Sumar og sól . . . eða hvað?
Á hverju vori lyftist á manni brúnin þegar daginn tekur að lengja og maður
þykist vita að brátt komi vor. Skæðadrífa af lægðum eins og við höfum
fengið yfir okkur síðustu vikurnar megnar ekki einu sinni að slökkva þennan
vonarneista vorsins í brjóstinu. Bráðum kemur sumar með tilheyrandi
blíðviðri og sól. Eða hvað? Fyrir okkur sem búum á höfuðborgarsvæðinu
er fyrirheitið um blítt og gott sumar ekkert sérstaklega trúverðugt. Síðustu
tvö sumur hafa að minnsta kosti ekki staðið undir væntingum. Kannanir
MMR sýna að aðeins þriðjungur hefur verið ánægður með veðrið. Ætli
það sé ekki sami hópur og fer til Spánar á sumrin eða á sumarbústað fyrir
norðan eða á Austurlandi?
Missum ekki móðin
Merki tíðarfarsins í fyrra og hitteðfyrra
sáust greinilega í sölutölum um mat,
bjór og léttvín. Fyrir u.þ.b. ári talaði
blaðið við Pál Bergþórsson, fyrrver-
andi veðurstofustjóra. Hann sagði
mikin vanda að spá fyrir veður langt
fram í tímann. Einfaldara sé reyndar
að spá fyrir um hita en úrkomu. Þó
sé vitað að við séum á síðari hluta
hlýindakafla, en á norðurhveli gangi
á með sveiflum þar sem skiptis á um
það bil 30 ára hlýjindaskeið og jafn
löng kuldaskeið. Þarsíðasta sumar
hafi verið „sérstaklega leiðinlegt hér
fyrir sunnan.“ Það komi ekki oft mörg
svoleiðis sumur í röð. Nú höfum við
fengið a.m.k. tvö blaut sumur. Hverjar
eru líurnar á því? Svo við getum
kannski enn verið bjartsýn.
Veður og matur
Veðrið skiptir miklu máli fyrir það
hvernig njótum matar og upplifum
hann. Í sól og sumaryl er grillið dregið
fram en þegar kaldara er í veðri viljum
eldum við meira inni í eldhúsi. Við
eldum líka öðruvísi mat í köldu en
heitu veðri. Svo er að ekkert sérstaklega
mikið sport að sötra kalt hvítvín eða
bjór á pallinum í grenjandi rigningu.
Jafnvel þótt mestar líkur séu á sól og
blíðu um hásumar, er ekkert tryggt í
þeim efnum. Síðustu tvö sumur verða
hugsanlega lengi í minnum höfð sem
sumur hinna misheppnuðu garðpartía
eða útibrúðkaupa. Margir sem undir-
búið hafa slíkar veislur af kostgæfni
hafa þurft að bíta í það súra epli að
náttúran á engan húsbónda nema sig
sjálfa. Á einhverjum tímapunkti hættir
fólk svo að gera ráð fyrir sól og fer að
reikna með rigningu í júlí. Þá gæti
sveitabrúðkaupunum farið að fækka.
A.m.k. sunnan- og vestanlands. En við
skulum nú vona að slíkar svartsýnis-
spár rætist ekki.
Súvíd eða hamborgarar
til bjargar
En það er þó ekki öll von úti þótt hann
rigni. Margt af þeim mat sem við veljum
okkur gjarnan á grillið er jafn gott eða
jafnvel betra að steikja á pönnu, grilla
í ofni eða jafnvel að súvída (þ. e. nota
svokallaða Sous Vide aðferð. Sjá nánar
á www.islenskurmatur.is/um-sous-
-vide/). Hér er ég fyrst og fremst að
vísa til hamborgara, kartaflna og góðra
steika. Leyndardómurinn við góðan
hamborgara felst t.d. ekki í miklu sól-
skini, heldur í góðu hráefni og réttri
matreiðslu. Oft er einmitt betra að
stýra hitastigi á pönnu en á grilli. Gróft
brauð, nýupptekið íslenskt grænmeti
og úrvals kjöt er veislumatur, hvort sem
eldað er á grilli eða pönnu. Satt best að
segja eru flestar steikur miklu betri ef
þær eru súvídaðar heldur en af grillinu,
hvort sem um er að ræða naut, grís,
kjúkling eða lamb. Svo er það sósan.
Hér á síðunni er að finna uppskrift að
hreint magnaðri Bernaisesósu – þeirri
bestu sem undirritaður hefur smakkað.
Hún er svo góð að hún kallar nánast
á endurútgáfu Íslensku hamborgara-
bókarinnar.
Besta Bernaisesósan
HRÁEFNI
4 eggjarauður.
200 g íslenskt smjör.
Örlitið sjávarsalt.
Örlítið af svörtum pipar.
1 hvítlauksgeiri
1-2 stilkar af graslauk eða smá-
vegis af vorlauk.
Chili á hnífsoddi
Lúka af fersku fáfnisgrasi (estra-
goni). Líka má notast við þurrkað
estragon.
3 msk góð ólífuolía.
AÐFERÐ
Bræðið hundrað grömm af
smjöri og skerið afgangin niður
í teninga. Setjið í hrærivélaskál
og hrærið vel saman. Hellið svo
eggjarauðunum varlega saman
og þeytið, varlega í fyrstu. Saxið
lauk, hvítlauk, chili og fáfnisgras
mjög smátt. Ef þið notið þurrkað
fáfnisgras er líka gott að saxa það
eða mylja í morteli. Bætið þessu
öllu saman út í ásamt salti og
svörtum pipar. Gerið það í litlum
skömmtum og smakkið til. Bætið
olíunni út í og hrærið vel.
www.eignaumsjon.is
S. 585 4800, Suðurlandbraut 30.
Aðalfundur framundan?
Heildarlausn í
rekstri húsfélaga.
Heildarlausn í
rekstri húsfélaga.