Reykjavík - 13.06.2015, Qupperneq 6

Reykjavík - 13.06.2015, Qupperneq 6
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN HUSQVARNA FS 400 LV Sögunardýpt 16,5 sm HUSQVARNA K 760 Sögunardýpt 12,5 sm HUSQVARNA K 2500 Sögunardýpt 14,5 sm HUSQVARNA DM 230 Bordýpt 15 sm HUSQVARNA K 3600 MK II Sögunardýpt 27 sm HUSQVARNA Steinsagarblöð og kjarnaborar 6 13. Júní 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Stelpur rokka! Síðastliðna helgi fóru fram kvennarokkbúðir á vegum Stelpur rokka! í Reykjavík. Þar komu saman konur á ýmsum aldri til að fá kennslu á mis- munandi hljóðfæri, prófa að spila í hljómsveit, læra texta- og lagasmíði og að lokum halda saman tónleika. Hreyfingin Stelpur rokka! hefur staðið fyrir fjölmörgum stúlkna- og kvennarokkbúðum en nýliðnar búðir voru þær níundu sem haldnar hafa verið hér á landi. Áslaug Einarsdóttir stofnaði hreyfinguna ásamt hópi sjálfboðaliða árið 2012 að fyrirmynd Girls Rock Camp. Hreyfingin hefur vaxið jafnt og þétt og hafa nú yfir 200 íslenskar stúlkur og konur komið saman til að rokka. Allir hafa jafnan aðgang óháð fjárhagi eða félags- legum aðstæðum Girls Rock Camp Alliance var stofnað árið 2007 en innan þeirra vébanda starfa um 60 stúlkna-rokkhreyfingar bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Allar hreyfingarnar vinna eftir sömu hug- myndafræði og gildum en þau kveða á um að allar stúlkur hafi jafnan aðgang að búðunum óháð fjárhagi, uppruna, kynhneigð eða túlkun kyngervis, trú, getu, móðurmáli eða fötlun. Ás- laug segir að í hverjum rokkbúðum sé ákveðinn fjöldi sæta í boði og sé hluti þeirra niðurgreiddur til hálfs eða að fullu. Hún segir að sú stefna hafi gefið góða raun þau þrjú ár sem hreyfingin hafi starfað en að jafnaði hafi um þriðjungur þátttakenda nýtt sér valmöguleikann um niðurgreiðslu. „Okkar reynsla er að frí eða niður- greidd pláss fara til þeirra stúlkna sem mest þurfa á því að halda. Efnaminni stelpur, LGBT (lesbian, gay, bisexual, transgender) stelpur og stelpur með annað móðurmál en íslensku hafa forgang í frí pláss en hingað til höfum við getað boðið öllum sem á þurfa að halda frí pláss.“ Að vera sín eigin fyrirmynd Rokkbúðirnar veita rými þar sem kostur gefst til að efla hæfileika og sjálfstraust í öruggu umhverfi. Áslaug bendir á að samfélagið þarfnist þess að slíkt rými sé skapað því það spretti ekki af sjálfsdáðum. „Á unglingsárum fara strákar frekar út í almenna rýmið og gera hluti á borð við að stofna hljóm- sveitir, en stelpur eru ólíklegri til þess.“ Skortur á fyrirmyndum er hluti af ásatæðunni en Áslaug segir að ungar stelpur séu líklegri til að skorta sjálfs- traust til að koma fram á sviði, taka sér rými og vera með hávaða. Í rokk- búðunum er kennt á gítar, hljómborð, bassa, trommur og söng. Í búðunum eru einnig vinnusmiðjur þar sem meðal annars er farið yfir kvennarokk- sögu, kynjafræði, fjölmiðlaumfjöllun og textagerð. Einnig eru fengnar far- sælar íslenskar tónlistarkonur til að spila á hádegistónleikum og ræða við þátttakendur. Rokkbúðirnar veita þannig þátttakendum tækifæri til að spegla sig og hæfileika sína í öflugum kvenkyns fyrirmyndum. Rokkbúðirnar ýta undir sjálfstraustið Fyrstu rokkbúðirnar voru haldnar í Reykjavík fyrir stúlkur á aldrinum 12- 16 ára en starfið er stöðugt að þróast og síðan þá hafa nýir staðir og áherslur hafa bæst við. Auk stúlkna-rokkbúða eru nú einnig kvenna-rokkbúðir fyrir konur eldri en 20 ára, sjálfboðaliðastarf innan hreyfingarinnar er afar virkt og í ár bætist jafnframt við ungliðastarf. Þar geta 16-18 ára stúlkur tekið þátt í rokkbúðum sem ungliðar og er það nokkurskonar framhaldsnámskeið fyrir þær sem hafa áður tekið þátt rokk- búðunum. Ungliðar aðstoða meðal annars við að halda utan um vinnu- smiðjur og vera leiðbeinendur en með því eru þær sýnilegar og sterkar fyrir- myndir fyrir yngri þátttakendur rokk- búðanna. Rán Birgisdóttir hefur tekið þátt í rokkbúðunum síðastliðin tvö ár en tekur nú þátt sem ungliði. Hún segist alltaf hafa haft áhuga á tónlist og þegar hún sá fyrst auglýsinguna fyrir rokkbúðirnar hafi henni fundist það virka sem skemmtileg leið til að læra eitthvað, kynnast fólki og prófa að vera í hljómsveit. „Fyrst var ég stressuð en stressið fór hratt. Konurnar sem halda utan um þetta unnu vel með stressið og allir urðu strax vinir“. Rokkbúðirnar veita vettvang til að prófa sig áfram gera mistök í umhverfi sem veitir stuðning og samvinna ríkir. „Stelpunum líður vel í þessu umhverfi, þær kynnast nýjum hliðum á sjálfum sér og þær mynda mikilvæg tengsl við aðrar stelpur sem hafa áhuga á að spila og semja tónlist.“ Rán segist vera í góðu sambandi við margar þeirra stúlkna sem hún hefur rokkað með í búðunum og að sumar þeirra séu jafnvel meðal hennar nán- ustu vinkvenna í dag. „Algjörlega þess virði“ Að vera í hljómsveit segir Rán vera ótrúlega skemmtilegt og að þar ríki mikil stemning. Hún segir að það sé gaman að búa eitthvað til með öðrum og sjá vaxa smátt og smátt og verða að einhverju heildstæðu. „Ferlið byrjar á því að einhver kemur með hugmynd og unnið er með hana og í kringum hana. Einhver kemur með gítarlínu, bassinn gerir eitthvað í kring, svo bætast við trommur og sönglína, það kemur smátt og smátt.“ Hún segir að hún hafi ekki áttaði sig á því hversu mikill stráka- heimur tónlistin er, fyrr en hún fór að velta því fyrir sér. „Maður verður oft hissa þegar stelpa er í hljómsveit. en í Rokkbúðunm eru bara stelpur að spila og þær eru ekkert verri en strákar.“ Stelpurnar eru hvattar til þess að líta á sig sem virkar og skapandi tónlistar- konur þar sem þær eru gerendurnir og láta eitthvað verða að veruleika. „Þegar ég kom inn í þetta prógram var ég ekki viss en svo sá ég að ég gat þetta.“ Rán spilaði á bassa í rokkbúðunum og er núna í áframhaldandi námi á bassa í Gítarskóla Íslands. „Ég hvet aðrar stelpur til að þora að taka þátt, það er algjörlega þess virði.“ Næstu rokkbúðir verða haldnar 9. -12. júlí í Ásbrú, Reykjanesbæ, en það verður í fyrsta skipti sem rokkbúðirnar eru haldanar þar. Þessar rokkbúðir eru fyrir allar stúlkur frá 12-16 ára jafnt frá Reykjarnesinu sem annars staðar frá og eru enn pláss laus til um- sóknar. Í haust verður einnig boðið upp á helgarlangar vinnusmiðjur þar sem unnið verður með aðrar hliðar tónlistarstarfs en hafa verið kenndar í rokkbúðunum hingað til, en þar má nefna plötusnúðasmiðju, raftónlist- arsmiðju, rappsmiðju í samstarvi við Reykjavíkurdætur og tónlistarmynd- bandagerð. Frekari upplýsingar um þessa skemmtilegu viðburði má nálg- ast á heimasíðu Stelpur rokka! stelpurrokka. org MENNING Arnhildur Lilý Karlsdóttir arnhildurlily@gmail.com Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt eins og myndirnar bera með sér.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.