Reykjavík - 13.06.2015, Qupperneq 11

Reykjavík - 13.06.2015, Qupperneq 11
volundarhus.is · Sími 864-2400 VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m² með 9 m² yfirbyggðri verönd kr. 1.599.000,- án fylgihluta. kr. 1.899.000,- með fylgihlutum og byggingarnefndar teiknisetti. Grunnmynd og nánari upplýsingar á heimasíðu volundarhus.is www.volundarhus.is Vel valið fyrir húsið þitt SUMARTILBOÐ Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM VH /1 4- 04 34 mm bjálki / Tvöföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 9,9 m² - án gólfs kr. 299.900,- án fylgihluta kr. 339.900,- m/fylgihlutum 70 mm bjálki / Tvöföld nótun 34 mm bjálki / Tvöföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m² kr. 299.900,- án fylgihluta kr. 359.900,- m/fylgihlutum TILBOÐ - BARNAHÚS 2,2m² kr. 149.900,- án fylgihluta kr. 169.900,- m/fylgihlutum 28 mm bjálki / Einföld nótun 50% afsláttur af utningi á GARÐHÚSUM og GESTAHÚSUM á allar þjónustu- stöðvar Flytjanda. GESTAHÚS og GARÐHÚS sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður Sjá eiri GESTAHÚS og GARÐHÚS á tilboði á heimasíðunni volundarhus.is 1113. Júní 2015 REYKJAVÍK VIKUBLA Ð meira svigrúm eða umboð en ríkis- sáttasemjari. Við sjáum ekki tilgang í að víkja ríkissáttasemjara til hliðar og setja nýja einstaklinga inn í málið. Auk þess sem það er alveg skýrt frá okkar sjónarhorni hvað þarf að gera. Samn- inganefnd ríkisins er upplýst og okkar samninganefnd er það líka. Öll gögn liggja hjá ríkissáttasemjara. Við gátum ekki metið það með öðrum hætti en að þetta væri einhver tafarleikur. Þótt það hafi kannski ekki verið djúpt hugsað hjá ríkisstjórninni. Ég veit það ekki.“ Pólitík annarra Launadeila Bandalags háskólamanna og ummæli utanríkisráðherra um þann einstakling sem félagsmenn hafa valið til að fara fyrir kjarabaráttunni varpa eina ferðina einn ljósi á óþol Framsóknarflokksins fyrir samfélags- þátttöku þeirra sem ekki eru að fullu samferða flokknum. Frægt var þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, taldi sérfræðing úr faghópi um náttúru og menningarminjar í öðrum áfanga Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða, sem var á öndverðu meiði við ráðherra, vera orðinn um of pólitískan. Þá hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráð- herra nokkrum sinnum komist í hann krappan vegna ummæla sinna um fræðimenn og fólk. Í frægu viðtali við Gísla Martein Baldursson kallaði Sigmundur Davíð til að mynda Þórólf Matthíasson „pólitískan krossfara“ vegna skrifa sinna um landbúnaðar- mál. Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- ráðherra vakti um leið athygli þegar hún sagði Framsóknarmenn ekki lengur nenna að styðja RÚV. Flísin í auga náungans Þegar kemur að þingmönnum Fram- sóknarflokksins virðast nokkuð aðrar reglur gilda. Í þingliði flokksins er Páll Jóhann Pálsson útvegsmaður og stór hluthafi í fjölskyldufyrirtækinu Vísi ehf. í Grindavík, einni kvótamestu út- gerð landsins. Sem þingmaður hefur Páll átt þátt í lækkun veiðigjalda á sig og fjölskyldu sína. Á fyrsta mánuði þing- ferils síns árið 2013 tók hann virkan þátt í þinglegri meðferð á lögum sem spöruðu honum og fjölskyldu hans um 216 milljónir á ári. Hann er talinn hafa sparað sér persónulega um þrettán milljóna króna útgjöld á ársgrundvelli. Þar til nýlega var Páll svo bæjarfulltrúi í Grindarvík samhliða þingstörfum. Útgerðarfélagið Marver ehf. , sem gerir út bátinn Daðey GK og er í eigu eig- inkonu Páls Jóhanns. Marver verður úthlutað makrílkvóta að verðmæti 50 milljónir króna samkvæmt makríl- frumvarpi sjávarútvegsráðherra. Páll Jóhann sagðist ekki telja sig vanhæfan til að taka þátt í umræðum um málið. Pólitískir listamenn Það hefur um leið angrað Fram- sóknarmenn að listamenn hafi stjórn- málaskoðanir. Listamaðurinn Snorri Ásmundsson ákvað árið 2014 að gefa skít í flokkinn með verkinu Fram- sóknarmaðurinn. Verkið var gína í sýningaglugga á Laugavegi. Gínan stóð með bakið í vegfarendur, íklædd lopapeysu með veiðihatt og buxurnar á hælunum. Hátalari spilaði svo brot úr þingræðum forsætisráðherra. Eftir að Þórunn Egilsdóttir, núverandi þing- flokksformaður Framsóknarflokksins, hafði í óbeinum hótunum við Snorra vegna verksins ákvað hann að mála XB með skít í gluggann. Aðrir fram- sóknarmenn fylgdu í herferðinni gegn Snorra. „Listamaðurinn“ sem hér um ræðir er líklega mesta athyglishóra á Íslandi nú um stundir. Sú staðreynd að hann skuli fá athygli sýnir enn einu sinni hvað fjölmiðlar hér eru slappir,“ skrifaði Þorsteinn Sæmundsson, þing- maður Framsóknarflokks, á Facebook. Áhrifafólk í flokknum sem tjáði sig um málið virtist ekki telja hegðun Þór- unnar ámælisverða. Hins vegar fékk Snorri það óþvegið. Þeir Þorsteinn og Birkir Jón Jónsson, fyrrverandi þing- maður flokksins, töluðu hann sem „listamann“ innan gæsalappa. Sigrún Magnúsdóttir, nú umhverfisráðherra en þá þingflokksformaður, sakaði Snorra um illmælgi. Í þessu samhengi má svo minna á kröfu Frosta Sigurjónssonar, þingmanns Framsóknar, um að listafólk skyldi stjórnmálin eftir heima og ræddi þau ekki á RÚV af kurteisi við aðra. Fjölmiðlar og Framsókn Flokkurinn hefur átt afar erfitt sam- band við fjölmiðla. Töluvert óþol er í flokknum gagnvart gagnrýni sem fram hefur komið í fjölmiðlum. Framsóknarflokkurinn tilraun til að kaupa Fréttatímann árið 2012 að því er fram kom í DV. Þau kaup gengu ekki eftir en skömmu seinna keyptu aðilar sem tengjast flokknum DV. Egg- ert Skúlason, sem hefur starfað sem spunameistari flokksins var settur yfir blaðið. Þá varð Björn Ingi Hrafnsson útgefandi og stjórnarmaður miðilsins. Gunnlaugur Sigmundsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins og faðir forsætisráðherra, hefur og atast í Reykjavík vikublaði og Reykjavíkur- borg vegna fjórblöðungs sem dreift var með blaðinu einn laugardaginn. Þá hefur Vigdís Hauksdóttir, þingmaður flokksins og formaður fjárlaganefndar Alþingis, verið afar dugleg við að saka fjölmiðla um að hafa skoðanir í and- stöðu við flokkinn. Gróft dæmi var þegar hún hótaði RÚV niðurskurði samhliða umhvörtun vegna umfjöll- unar RÚV á hennar málum. Vigdís hvatti auglýsendur Kvennablaðsins til að fjarlægja sig miðlinum eftir að blaðið hafði safnað saman ummælum Vigdísar og birt. ÚTTEKT Atli Þór Fanndal atli@thorfanndal.com Félagsmenn í BHM hafa oft reynt að vekja athygli stjórnvalda. Gengið var fylktu liði um bæinn í upphafi verkfalls- aðgerða. Þögul mótmæli voru við stjórnarráðshúsið nýlega og í gær kom fólk saman framan við Alþingishúsið.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.