Reykjavík - 13.06.2015, Síða 16

Reykjavík - 13.06.2015, Síða 16
Holl, ristuð hafragrjón HAFR ATREFJAR LÆ K K A KÓL E S T E R ÓL V E L D U H E I L K O R N SÓLSKIN BEINT Í HJARTASTAD- E N N E M M / S ÍA / N M 6 9 5 6 8 Auglýsingar: 578 1190 & auglysingar@fotspor.is | Ritstjórn: 659-3442 & ingimarkarlhelgason@gmail.com VI KU BL AÐREYKJAVÍK 13. Júní 2015 • 22. tölublað 6. árgangur BAKSÍÐAN Brynhildur Bolladóttir VI KU BL AÐREYKJAVÍK Alla laugardaga Auglýsingasíminn er 578 1190 Hátíðarunnandi Samfélagsmiðlar undanfarna viku hafa verið yfirfullir af myndum af börnum foreldra sinna við skólaslit. Tárvot sam- gleðjast þau börnum sínum að hafa lokið enn einu ári grunnskólagöngu sinnar. Það að útskrifast úr grunnskóla er áfangi í lífi hvers og eins og honum ber að fagna. Nýir tímar taka við, börnin hafa vaxið úr grasi og fara að taka ákvarðanir um eigin framtíð. Jafnvel út- skrift úr 7. bekk er ákveðinn áfangi, farið er í unglingadeild eða skipt er um skóla og farið í gagnfræðaskóla. Úr því má gera gleðilega stund þar sem kennarar og starfsfólk skólans er kvatt. Eitt af því fáa sem ég hef sett mér sem markmið um í lífinu er að halda alltaf upp á afmælið mitt. Mér finnst að verð- ugum tilefnum, eins og fæðingu sinni, beri að fagna og gleðjast með þeim sem skipta mann máli. Ég er sannkallaður hátíðarunnandi. Ég myndi aldrei vilja gifta mig á degi sem nú þegar er frátek- inn undir gleðileg tilefni, eins og t.d. 17. júní eða einhvern af hátíðisdögunum í kringum jólin. Ég vil búa til fleiri sérstaka og skemmtilega daga á árinu, eitthvað sem fær mann til að gleyma rokrassinum og ríkisstjórninni. Börn eiga að fá jákvæð viðbrögð og hvatningu við því sem þau gera vel. Hvort að ósköp venjuleg skólaslit, það að einum bekk sé lokið og nýr taki við er ég ekki viss um að sé endilega rétt að gera of mikið úr. Við megum ekki gera sjálfsagða hluti að einhverju mikil- fenglegu. Það er (guði sé lof) sjálfsagður hlutur að börn gangi í skóla hér á landi og þeim ber skylda til þess að gera það. Að brautskrást er annað en að klára ellefu ára bekk, það er sigur og það er kveðjustund. Það er hátíð. Ég tek það þó fram að ég er ekki móðir. Allt breytist víst við það.

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.