Reykjavík - 18.07.2015, Blaðsíða 4

Reykjavík - 18.07.2015, Blaðsíða 4
4 18. Júlí 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Systkini sameinuð Systkinaforgangur í leikskólunum var aflagður árið 2008 með þeim rökum að að slíkur forgangur gengi í berhögg við jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar. Á þeim liðlega sjö árum sem liðin eru frá þeim tíma hefur þeim systkinum fjölgað talsvert sem ekki ganga í sama leikskóla, með til- heyrandi óþægindum fyrir börnin sjálf og foreldra þeirra. Meirihluti skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar hefur nú samþykkt breytingar á innritunar- reglum í leikskóla borgarinnar, sem koma til móts við börn og barnafjöl- skyldur innan þeirra marka sem jafn- ræðisreglan setur borgaryfirvöldum. Nýju innritunarreglurnar gera nú ráð fyrir svonefndu systkinatilliti. Í því felst að börn sem eiga systkini í umsóknarleikskóla njóta systkinatillits í viðkomandi leikskóla svo framar- lega sem þeim börnum sem eru fyrir framan þau á biðlista býðst rými í öðrum leikskóla sem foreldrar setja til vara. Breytingin er mikið fagnaðarefni. Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir hjá Miðstöð forelda og barna, hefur bent á að mikilvægi leikskóla einskorðist ekki við nám heldur sé hann samastaður barna, nánast eins og annað heimili þeirra. Eðilegast sé því að systkini eigi sér sama samastað utan heimilis þeirra. Að auki finni yngri börn oftar en ekki öryggi í því að vita af eldra systkini sínu í grenndinni óháð því að hvort þau séu á sömu deild eða ekki. Að auki sé það dýrmætt að systkini eigi sameiginlegan reynsluheim sem þau deili sín á milli eða með fjölskyldu. Þar fyrir utan myndist samfella og meiri tengsl fjölskyldna við starfsfólk sem gagnast öllum, ekki síst börnunum. Fyrir utan ávinning barnanna sjálfra má nefna hið augljósa hagræði sem í breytingunum felast, en umtalsverður tímasparnaður felst í því fyrir foreldra að fara aðeins á einn stað með börnin, sem að sama skapi leiðir til minni ferðalaga, styttri heildarvistunartíma og minni fjarveru frá vinnu, þegar um sömu skipulags- og viðburðadaga í leikskóla er ræða. Heilt á litið er breytingin því afar jákvæð, enda komið til móts við þau sjónarmið að mikilvægt sé að systkini geti verið á sama leikskóla í borginni. Áfram heldur Reykjavíkurborg að vera í fararbroddi fyrir börn og barnafjöl- skyldur og meðal annarra áherslumála sem unnið hefur verið síðast liðið ár er systkinaafsláttur þvert á skólastig, hærri frístundastyrkur og lægri leik- skólagjöld. Reykjavík er - og verður áfram - barnvæn borg. Mælikvarðar eru ýmsir og misjafnir. Það er á einn mælikvarða virðist lítið, getur verið stórt, þegar skipt er um sjónarhorn.Í Biblíunni eru eitthvað í kringum 770 þúsund orð, misjafnt eftir útgáfum og þýðingum. Einhver gæti litð svo á að ef svo óheppilega vildi til að eitt orð vantaði, að þótt það væri bagalegt, þá væri það um leið „óveru- legt“. minnsta kosti mætti líta þannig á sé þetta orð borið saman við öll hin orðin í textanum. Eitthvað um tíu þúsundasti úr prósenti. Ekkert sérstakt. Tvímælalaust „óverulegt“. Eða hvað? Til önnur leið er að meta áhrifin af því að þetta orð vantaði. Það er að skoða staðinn. Hafi orðið vantað í eitthvert boðorðanna tíu, til dæmis, og jafnvel breytt merkingu boðorðsins. Þá blasir við allt önnur mynd. Á þennan kvarða er hvert einasta orð mikilvægt. Engum dytti í hug að afgreiða slíka breytingu út frá prósentuhlutfalli orðafjölda. Í síðustu viku var gerð breyting á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar. Hún var hvorki rædd né kynnt fyrirfram. Ástæða þess var að hún var talin vera „óveruleg“. Í breytingunni er í reynd gefið leyfi til þess að setja sextán til átján hæða háhýsi í nýtt deiliskipulag á Barónsreit. Það gengur þvert gegn skýrum og afdráttarlausum fyrirmælum aðalskipulags Reykjavíkur 2010-30. Skýrist þá vonandi pælingin hér að ofan. Hvað er „óveruleg breyting“? Sé flötur einnar blokkar borinn saman við samanlagt land höfuðborgarinnar, þá er þetta nú ekki mikið. Sennilega lítið brot úr prósenti. Ef við prófum hinn kvarðann, þá rifjast upp blómamál aðalskipulagsins um Borgarvernd og hin ströngu skilyrði um hæð húsa, Esjuna og sjálfsmynd Reykvíkinga. Sérstök rök vantar og skilyrði þarf að uppfylla, eigi hús að standa upp úr umhverfi sínu. Þá lýtur miðbærinn innan Hringbrautar sér- stökum lögmálum. Þar gilda enn strangari reglur. Ekkert hús má fara upp fyrir fimm hæðir. Á þennan mælikvarða getur það tæplega talist til óverulegra breytinga að víkja til hliðar grundvallarreglu í grundvallarriti. Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar skýrir hvers vegna þetta var gert í ítarlegu viðtali hér í blaðinu. Hann bendir sömuleiðis á ákvæði skipulagslaga sem við svo búið virðist byggjast á bók- stafstrú á eignarréttinn umfram almannahagsmuni. Borgaryfirvöldum er þannig nokkur vorkunn í þröngri stöðu. Málið allt hið versta og kannski það skársta gert sem staðan leyfði? Hins vegar er það ekki til fyrirmyndar að kalla það óverulegt sem er það ekki. Af hverju var það? Það kemur vonandi einhvern tímann fram í dagsljósið. Ingimar Karl Helgason LEIÐARI „Óveruleg breyting“ Nóg komið „Það var komið nóg,“ sagði Elísabet Indra Ragnarsdóttir sem í hátt á annan áratug hefur sinnt öflugri dagskrár- gerð á Rás 1, en sagið upp störfum á dögunum. Í síðustu viku bárust þær fréttir að tvær öflugar og reyndar dagskrárgerðarkonur hefðu verið reknar, þær Hanna G. Sigurðardóttir og Sigríður Steph- ensen. Elísabet Indra segir að það hafi haft áhrif á sína ákvörðun. Sér- kennilegar ákvarðanir yfirmanna Rúv hafa vakið athygli. Þröstur Helgason dagskrárstjóri Rúv er látinn verja þessar ákvarðanir með þunnum rökum. Útvarpsstjórinn brosandi sést minna. Stjórnar- maður í Rúv bendir á að vinnu- brögð við uppsafnir gangi gegn jafnréttis- og mannauðsstefnu Ríkisútvarpsins. Ha-græða! Landsbankinn ætlar víst að verja 8 milljörðum í að byggja yfir sig höll. Ekki dugir minna en einn dýrasti bletturinn í borginni, við hlið Hörpunnar. Samt segjast menn gæta hagræðingar í sínum ákvörðunum. Bankastjórinn segir við Ríkisútvarpið að nýju höfuð- stöðvarnar séu ekki bruðl. Það er þekktara en ekki hjá bankaelítunni, hérlendis sem erlendis – fyrr og nú – að menn hafa endalaust og botn- laust hlaðið undir rassinn á sjálfum sér og alltaf fundist sjálfsagt. Svo ekki er það frétt. Hins vegar má vel vera að það felist verulegt hagræði í því að starfsstöðvar Landsbankans í fjölmörgum húsum miðsvæðis séu á einum og sama staðnum. Húsnæði sem losnar gæti líka vel orðið öðrum að gagni. 2007 … uh nei Fréttir herma að bílasala sé nú á pari við það sem tíðkaðist á því herrans ári 2007. Hefur salan aukist mjög mikið frá fyrra ári. Rétt er að hafa í huga að bóluárið vonda var um fimmtungur nýrra bíla seldur á bílaleigur. Nú er öldin önnur. Yfir helmingur seldra bíla, 55 prósent fara nú á bílaleigurnar, enda ferðamannastraumurinn mikill. Því er árið 2007 ekki komið aftur, enda þótt einhverjir í banka- kerfinu kunni að standa í þeirri trú. Hver bítur hvern? Fréttablaðið fullyrti á forsíðu á dögunum að kauphækkanir bitu í skottið á sér. Tilfellið er að birgjar, sem er annað heiti á heildsölum, hafa hækkað verð hjá sér og vísa meðal annars í hækkun á kjara- samningum. Það stenst enga skoðun að það kalli á verðhækk- anir hjá heildsölum og það meðan samningarnir hafa varla tekið gildi. Líka er vísað í hækkandi flutnings- verð og hækkandi rafmagnsverð. Enn vekja skýringarnar fleiri spurningar en svör. En líkingin um að bíta í skottið kemur raunar frá Neytendasamtökunum sem í fréttinni rifja upp áróður Samtaka atvinnulífsins úr samningavið- ræðum vetrarins. Í FRÉTTUMUmmæli með erindi: „Þegar verkalýðsfélag grípur til verk- fallsvopnsins er það gert að yfirveguðu máli, því það vita allir að enginn fer í verkfall ótilneyddur.“ - Ásmundur Stefánsson, þá forseti ASÍ, í Þjóðviljanum 4. desember 1991. Íslenska leiðin Það fór allt á hliðina nýlega þegar fréttir komu um að forsætisráð- herra hefði sætt tilraun til fjárkúg- unar. Hótað hefði verið að upp- lýsa um hvernig hópur valdafólks hafi komist yfir fjölmiðil með aðstoð hins fyrrnefnda, hafa fjölmiðlar sagt. Í fram- haldinu fullyrti Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri – sem margir taka mark á – að þetta væri ekkert minna en áfall fyrir blaðamennskuna. Meintir ódæmdir gerendur í þessu máli eru nefnilega félagar í Blaðamannafélagi Íslands. „Blaðamannafélagið verður og hlýtur að fordæma þessi vinnubrögð systranna.“ Auðvitað blasir við öllum hvernig við hljótum að eiga að bregðast á við baktjaldamakki, siðleysi og spill- ingu valdafólks og æðstu ráðamanna. Séu til óhrekjanleg gögn sem staðfesta samsæri gegn almenningi, þá er fyrsta og eina svarið auðvitað krafa um að Blaðamannafélagið álykti um einstaka félagsmenn. Það þarf að stofna hóp á Facebook. Það þarf að safna undir- skriftum. Ekki verður unað við þögn Blaðamannafélagsins öllu lengur. Hversdagurinn Gildishlaðnar fullyrðingar um gjörðir fólks og sekt manna hafa þakið forsíður og fréttatíma frá hruni. Hver getur gleymt fyrirsögnum á borð við „Um- boðssvikarinn mættur“ eða „Lygarinn segist saklaus“. Ekki má heldur gleyma „Glæpónarnir væla undan eðlilegri málsmeðferð“ og svo ekki gleymist ein sú minnisstæðasta: „Tortóladólg- urinn fékk milljarðaafskriftir og heldur fyrirtækinu“. Enginn kippti sér heldur upp við það á dögunum að sjá orðið „fjárkúgunarsystur“ í forsíðufyrirsögn þar sem fjallað var um nafngreindar konur sem hvorki hafa verið ákærðar né sakfelldar. Kannski er þetta bara orðið svona hversdagslegt? Alla vegar sést Jónas ekki kippa sér upp við fram- takið. ESB módelið Ferð Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar til Brussel á dögunum var óvænt og líka undarleg. Fram kemur í pistli á vef Hringbrautar að mest undrunin hafi verið í ráðuneyti utanríkismála. Þar hafi enginn vitað um ferðina og þar á bæ séu menn fjúkandi illir út í forsætisráðherrann. Ferðin hafi verið óþörf, árangurslaus og truflandi. Úr fréttum er sömuleiðis erfitt að finna þessari ferð nokkurn tilgang. Stungið hefur verið upp á því að ráðherrann hafi viljað láta taka af sér mynd. HÉÐAN OG ÞAÐAN … REYKJAVÍK VIKUBLAÐ 26. TBL. 6. ÁRGANGUR 2015 ÚTGEFANDI: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. Framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is, Veffang: fotspor.is, Ritstjóri: Ingimar Karl Helgason, sími: 659-3442 netfang: ingimarkarlhelgason@gmail.com, Blaðamaður: Atli Þór Fanndal. Netfang: atli@ thorfanndal.com. Menningarblaðamaður: Arnhildur Lilý Karlsdóttir. Netfang: arnhildurlily@gmail.com. Umbrot: Prentsnið, Prentun: Landsprent, 50.000 eintök. Dreifing: FRÍBLAÐINU ER DREIFT Í 50.000 E INTÖKUM Í ALLAR ÍBÚÐIR Í REYKJAVÍK. Höfundur er Magnús Már Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Margt er líkt með skyldum en ólíkt hafast menn að. Blaðamaður kom auga á herramanninn til vinstri virða fyrir sér herrann til hægri í bænum á dögunum og fylgdi fordæmi hins fyrrnefnda og fangaði umhverfið á mynd.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.