Reykjavík - 18.07.2015, Side 14

Reykjavík - 18.07.2015, Side 14
14 18. Júlí 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Almenningssamgöngur á Íslandi: Allir þjónustuaðilar á einu korti! Hjólafærni á Íslandi hefur gefið út kortið Public Transport summer 2015 í samvinnu við Hugarflug. Þar eru allar almennings- samgöngur innanlands settar saman í beinulínukort, rútur, ferjur og flug. Við hlið kortsins eru allar upplýsingar um þá sem þjóna hverri leið, nöfn fyrir- tækjanna, símanúmer hjá þeim og slóð á heimasíður þeirra. Mismunandi litir eru notaðir til þess að greina á milli þjónustuaðilana á kortinu. Jafnframt hefur vefurinn www. publictransport.is verið opnaður. Þar er kortið gert gagnvirkt og með því að smella á línurnar, númer leiðanna eða áningastaðina, fer notandinn áfram á frekari upplýsingar um það sem beðið er um. Með útgáfunni og vefnum er brotið blað í miðlun upplýsinga um samgöngutækifæri í landinu og hug- myndum um umhverfisvæna ferða- máta. Kortið er prentað í sérútgáfu, Public transport summer 2015 og er líka birt á bakhlið Cycling Iceland summer 2015 kortsins. Einnig er kortið í ferðabókunum Á ferð um Ísland, íslensku, ensku og þýsku út- gáfunni. Ástæður þess að Hjólafærni fór í útgáfu þessa samgöngukorts, er sterk tenging hjólandi ferðamanna við notkun á almenningssamgöngum. Fljótlega eftir að Leiðarlykillinn fór fyrst í loftið kom í ljós mikil eftirspurn og ánægja með kortið úr röðum starfs- manna í ferðaþjónustu landsins, sem hafði þann starfa að útskýra fyrir alls konar ferðalöngum, hvernig hægt væri að flandra um landið okkar. Og þá kom Public Transport kortið að góðum notum, loksins allir saman á einni mynd og svo bara gúgglað þaðan. Vegagerðin, Ferðamálastofa og þjónustuaðilarnir sem koma við sögu á kortinu hafa allir styrkt þessa vinnu. Hjólafærni stýrir dreifingu á kortinu. Það má panta í síma 864 2776 eða senda tölvupóst á hjolafaerni@hjolafaerni.is Hér má skoða heildarkortið fyrir árið 2015 í PDF skjali: http: //www. hjolafaerni.is/images/stories/Skjol/ Public_Transport_2015. pdf Á kortinu eru þjónustuaðilar sýndir með ólíkum litum og upplýsingar um hvernig hægt er að finna viðkomandi fyrirtæki og þjónustu þess. Einkarekið Apótek Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Fyrirtæki húsFélög Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566 www.þrif.is / www.thrif.net / netfang: thrif@centrum.is Fyrirtæki húsFélög Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566 w.þ if.is / www.thrif.net / netfang: th if@centrum.is Fyrirtæki húsFélög Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566 www.þrif.is / www.thrif.net / netfang: thrif@centrum.is Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu ykkur að kostnaðarlausu. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 ÚTSALAN er hafin 30-50% afsláttur Flott föt, fyrir flottar konur Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni á íslandi leikskólinn Vinagerði tók við Grænfána á hásumri við hátíðlega athöfn. Við athöfnina lék brassband Hins hússins fyrir börn og foreldra og boðið var upp á kaffiveitingar og köku. Grænfáninn er alþjóðlegt verkefni sem miðar að því að efla umhverfismennt og styrkja vitnesku um gildi sjálfbærni í skólum.

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.