Reykjavík - 18.07.2015, Side 16
NÝ
VEFSÍÐA
KOMIN
Í LOFTIÐ!
REIKNIVÉL
Reiknaðu
út dreifingarverð
á fjölpósti með
nýrri reiknivél
Póstdreifingar.
KORT
Kort sem tengt
er við reiknivélina
sýnir hvaða svæði
eru valin.
JÚLÍ TILBOÐ!
Á handhægan hátt getur
þú kannað verð eða fengið
tilboð á fjölpóstdreifingum
á nýjum vef Póstdreifingar.
PÓSTDREIFING EHF
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | S. 585 8300
www.postdreifing.is | postdreifing@postdreifing.is
Auglýsingar: 578 1190 & auglysingar@fotspor.is | Ritstjórn: 659-3442 & ingimarkarlhelgason@gmail.com
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
18. Júlí 2015 • 26. tölublað 6. árgangur
BAKSÍÐAN
Björk Þorleifsdóttir
Rains
regnfatnaður
Laugavegur 45
Sími: 519 66 99
Vefverslun: www.myconceptstore.is
Fyrsti í sumarfríi
Kl. 6:40
Trúi því ekki að ég hafi gleymt að
slökkva á vekjaraklukkunni þegar
ég fór að sofa í gærkvöldi!
Kl. 7:40
Get ekki sofnað aftur, játa mig
sigraða og fæ mér kaffi og byrja að
skipuleggja allt sem ég ætla að gera í
fríinu. Ætli sé kominn mikill póstur
í vinnunetfangið mitt? Opna vinnu-
tölvuna til að kíkja. Nei, þetta er
bannað! Loka vinnutölvunni aftur.
Fæ mér meira kaffi, held áfram að
skipuleggja fríið. Tjaldferðalag er
frábær hugmynd. Vestfirðir? Best
að kíkja á veðurhorfurnar. Ekki
góðar. Austurland? Ekki gott veður
þar heldur. Landið allt? Skítaveður?
Þvílík ósanngirni!
Kl. 9:15
Best að hafa húsið spikk og span
fyrst maður er kominn í frí.
Kl. 10:00
Get ekki byrjað að þrífa fyrr en ég
er búin að starta nýjum lífstíl. Út
í bakarí að kaupa glútenfrítt holl-
ustubrauð.
Kl. 10:30
Vá hvað þetta glútenfría brauð er
þungt í maga – ekki fræðilegur
möguleiki að það sé hægt að þrífa
með þennan stein í maganum. Hvað
ætli sé að frétta á Facebook?
Kl. 12:20
Glútenfría brauðið loksins farið
að sjatna. Annar kaffibolli og smá
netráp og bretta svo upp ermar og
vinda sér í þrifin.
Kl. 14:30
Ú, hvað tíminn flýgur á netinu!
Kl. 17:00
Vinkonurnar komnar heim úr
vinnunni. Best að hringja í þær og
tékka á stöðunni og svo þarf að huga
að kvöldmat.
Kl. 22:30
Alveg úrvinda eftir fyrsta í fríi og
húsið enn óþrifið. Ætla snemma í
háttinn svo ég geti vaknað fyrir allar
aldir, þrifið allt húsið hátt og lágt og
farið í Endurvinnsluna með dósir.
Eða ekki, kannski er bara sniðugt að
taka sér smá frí frá öllu – þar með
talið samviskubitinu yfir því að vera
ekki á milljón í fríinu sínu!
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
Reykjavík vikublaði er dreift á öll heimili í Reykjavík í 50 þúsundum eintökum.