Selfoss - 12.02.2015, Qupperneq 4

Selfoss - 12.02.2015, Qupperneq 4
4 12. Febrúar 2015 ÚTGEFANDI: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Þorlákur Helgi Helgason, netfang: torlakur@fotspor.is Myndir: ÞHH og ýmsir aðrir. Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 9.500 eintök. Dreifing: Íslandspóstur FRÍBLAÐINU ER DREIFT Í 9.500 EINTÖKUM Á ÖLL HEIMILI Á SUÐURLANDI. SELFOSS 3. TBL. 4. ÁRGANGUR 2015 Selfoss inn á hvert heimili! Fundað um framtíðina í kvöld Norræna ráðherranefndin kom á laggirnar viðamiklu verk- efni árabilin 2013-2016 sem fjallar um sjálfbæra svæðisbundna þróun á Norðurslóðum Norðurlanda. Nokkur ólík byggðarlög á Norður- slóðum Norðurlanda eru sérstaklega tekin fyrir og er Árborg eitt þeirra svæða. Hvernig sérðu Árborg fyrir þér næstu 10, 20 eða jafnvel 30 ár? NordRegio og Samtök sunn- lenskra sveitarfélaga standa að opn- um íbúafundi í Árborg í kvöld, 12. febrúar á Hótel Selfossi kl. 17-20. Allir hjartanlega velkomnir. Góðar veitingar í boði. Hátíðardagskrá í Konubókastofunni 22. mars Menningarnefnd Árborgar hefur úthlutað Konu-bókastofunni á Eyrar- bakka 60 þúsund krónum til að efna til dagskrár um kosningaréttinn, kvennabaráttuna og framtíðarhorfur. 22. mars verður dagskrá hjá Konu- bókastofunni tengt kosningaraf- mæli kvenna. Konubókastofan fékk 200.000 krónur í styrk frá afmælis- nefndinni auk styrksins frá Árborg. Anna Jónsdóttir í Konubókastof- unni segir að verið sé að vinna úr hugmyndum. Kostnað­ ur fór 800 milljónum kr. fram úr! Kostnaður við dýpkun í Landyeyjahöfn frá því að höfnin var opnuð hefur numið 1100 milljónum króna frá því að höfnin var opnuð um mitt ár 2010. Fréttablaðið greinir svo frá að í upphaflegri rekstraráætl- un hafi verið miðað við að dæla þyrfti 30 þúsund rúmmetrum af sandi á ári. Við kynningu á höfninni hefði talan verið tvö- til þrefölduð. Þegar upp er staðið hefur magnið orðið allt að tíföldu á ári síðastliðin ár. Það má því gera ráð fyrir að kostnðaur við dýpkun frá vígslu hafnarinnar og fram á daginn í dag hafi farið um 800 milljónum króna fram úr endurskoðaðri rekstraáætlun. Það kemur því ekki á óvart að þingmenn kjördæmisins telji rétt að taka á vanda Landeyjahafnar. „Það er engin ástæða til þess að smíða nýtt skip fyrr en menn eru búnir að ákveða að laga höfnina,“ hefur Fréttablaðið eftir Ásmundi Friðrikssyni þingmanni. Samningur um samvinnu undirritaður: Þjónustan sam- þætt milli heilsugæslu og skóla- og félagsþjónustu Heilsugæslan á Selfossi og skóla- og félagsþjónusta Árborgar hafa undirritað samning sem kveður á um þverfag- lega samvinnu og verklag milli stofn- ana. Markmiðið er að byggja upp samþætta þjónustu, oft séu þessir aðilar að veita sömu einstaklingum þjónustu. Hún yrði heildstæðari og markvissari ef samvinna í vinnslu mála væri aukin. Við udirritun- ina vitnaði Þorsteinn Hjartarson fræðslustjóri til ummæla nýs land- læknis um mikilvægi samhæfingar og teymisvinnu. „Stundum er eins og hver sé í sínu horni.“ Mikilvægt sé að bregðast skjótt við hegðunar- og geðröskunum barna til að minnka eða koma í veg fyrir vandamál sem slíkum röskunum fylgja fyrir barn og fjölskyldu þess. Samstarf eins og gert er ráð fyrir í samningnum sé ekki síst gagnlegt þegar börn glíma við fjölþættan vanda. Í samningnum er kveðið á um markmið, verklag og framkvæmd samstarfssamningins. Fyrir er grein- ingarteymi fyrir ung börn en með samningnum verður til nýtt teymi er fjalla mun um málefni barna á öllum aldri. Samstarfsverkefnið nær til málefna einstaklinga, barna og fjölskyldna í Árborg. ÞHH Þau sem eru á myndinni að lokinni undirritun samnings sl. mánudag, frá vinstri: arnar Þór Guðmundsson, yfirlæknir heilsugæslu Selfoss, Unnur Þormóðsdóttir hjúkrunarstjóri, Þorsteinn Hjartarson fræðslustjóri, Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir félagsmálastjóri. Í aftari röð: Ásta Stefánsdóttir, fram- kvæmdastjóri Árborgar, Sandra Dís Hafþórsdótti, formaður fræðslunefndar, anna Ingadóttir, skólafulltrúi á skrifstofu fræðslusviðs Tvöföldun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss í skilyrðislausan forgang! Bæjarráð Hveragerðisbæjar og Ár-borgar eru einhuga um að leggja beri áherslu á vegarkaflann milli þétt- býlanna um Ölfus. Samgöngunefnd Alþingis setji hann í forgang, það beri að tvöfalda hann við gerð samgöngu- áætlunar til næstu fjögurra ára. „Veg- urinn milli Hveragerðis og Selfoss er afar fjölfarinn og talinn einn af þeim hættulegustu á landinu. Ennfremur er fjöldi innkeyrslna beint inn á veginn sem skapa mikla hættu eins og dæmin hafa ítrekað sýnt. Í ljósi þessa hvetur bæjarráð þingmenn til að beita sér af alefli fyrir þeim nauðsynlegu úrbót- um sem þarna eru svo brýnar.“ Mest fjölgun í Árborg 2006-2014. Fólki fækkar í Vestur-Skaftafellssýslu. Heimild: Talnarýnir á síðu SASS. Mynd: Innanríkisráðuneyti www.fotspor.is SELFOSS- SUÐURLAND Auglýsingasími: 578 1190

x

Selfoss

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.